Erlent

Endeavour-skoti frestað í fimmta skipti

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Geimferjan Atlantis tekst á loft frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída. Erfiðlega gengur að koma Endeavour á loft.
Geimferjan Atlantis tekst á loft frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída. Erfiðlega gengur að koma Endeavour á loft.

Fresta þurfti skoti geimferjunnar Endeavour í gær, þriðja daginn í röð og allt í allt í fimmta skiptið frá því að hefja átti leiðangurinn. Þrumuveður geisaði í innan við 20 sjómílna fjarlægð frá skotpallinum og banna öryggisreglur NASA skot við þær aðstæður. Enn á að gera tilraun til að koma skutlunni í loftið á morgun en takist það þarf þó að stytta leiðangurinn að Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem rússneska geimferjan Progress er einnig væntanleg þangað með birgðir og þarf Endeavour að aftengjast stöðinni áður en hin ferjan kemur að henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×