Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrstu útfarirnar í morgun 38 börn, flest á aldrinum tveggja til fjögurra ára, létust í eldsvoðanum á dagheimilinu í Hermosillo í Mexíkó í fyrradag. Fyrstu útfarirnar fóru fram í morgun. Flest barnanna köfnuðu. 7.6.2009 10:07
Háskólinn á Bifröst hefur keypt aftur fasteignir sínar Háskólinn á Bifröst hefur keypt aftur allar fasteignir sínar. Þetta kom fram í útskriftarræðu Ágústs Einarssonar rektors háskólans í gær. 7.6.2009 10:02
Villtust á Esjunni Um 80 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leit að konu sem villtist í þoku á toppi Esjunnar í gær. Á meðan konan beið þess að vera bjargað rakst hún á tvo Kanadamenn sem einnig voru villtir á fjallinu og ákváðu þeir að bíða eftir björgun með henni. 7.6.2009 09:58
Fluttur slasaður til Reykjavíkur - grunaður um ölvun Karlmaður á fimmtugsaldri slasaðist þegar bifreið sem hann ók skall á brúarstólpa í Ljósavatnsskarði um áttaleytið í gærkvöld. 7.6.2009 09:46
Alvarlega slasaður eftir bílslys í botni Súgandafjarðar Karlmaður á sextugsaldri var fluttur alvarlega slasaður með flugi á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys í botni Súgandafjarðar á sjötta tímanum í morgun. 7.6.2009 09:33
Í varðhaldi vegna innflutnings á töluverði magni af fíkniefnum Karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um aðild að innflutningi á töluverði magni af fíkniefnum. 7.6.2009 08:22
Fylgismenn og andstæðingar Ahmadinejad tókust á Stuðningsmönnum og andstæðingum Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseta, lenti saman í höfuðborginni Teheran í gærkvöldi. Forsetakosningar í Íran fara fram í næstu viku. 7.6.2009 07:45
Forsetaframbjóðandi myrtur í Gíneu Bissau Baciro Dabo, forsetaframbjóðandi og fyrrum varnarmálaráðherra Gíneu Bissau, var myrtur í gær. Annar fyrrum varnarmálaráðherra landsins, Helder Proenc, var einnig myrtur í gær ásamt tveimur lífvörðum sínum. 7.6.2009 06:30
Læknirinn Tiller borinn til grafar George Tiller, læknir sem þekktur var fyrir að framkvæma fóstureyðingar á konum sem gengu með mjög þroskuð fóstur, var borinn til grafar í dag. Hundruð syrgjendur minntust Tillers í borginni Wichita í Kansasfylki en hann var myrtur fyrir viku. Tveir andstæðingar fóstureyðinga voru handteknir í dag þegar athöfnin fór fram. 6.6.2009 23:45
Enginn með allar tölurnar réttar í lottóinu Enginn var með allar lottótölurnar réttar í kvöld þannig fyrsti vinningur því tvöfaldur næst. Þrír voru með bónusvinninginn og hlýtur hver um sig rúmlega 64 þúsund krónur. 6.6.2009 20:03
Samkomulagið veitir ríkissjóði skjól í sjö ár Ríkisstjórnin telur að 33 til 170 milljarðar gætu fallið á ríkissjóð eftir sjö ár vegna Icesave skuldbindinga í Bretlandi og Hollandi sem samtals eru upp á 660 milljarða króna. Leiðtogar stjórnarflokkanna segja mikilvægt að samkomulagið skapi ríkissjóði algert skjól í sjö ár en á þeim tíma eru lán vegna Icesave afborgunarlaus. 6.6.2009 18:57
Deloitte: Fyrningarleiðin glórulaus Bankakerfið hrynur aftur og nánast öll starfandi sjávarútvegsfyrirtæki fara á hausinn innan fimm ára ef fyrningarleið ríkisstjórnarinnar verður farinn, að mati forstjóra endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Fyrirtækið hefur skilað Landssambandi íslenskra útvegsmanna skýrslu um fyrningarleiðina, sem forstjórinn segir glórulausa. 6.6.2009 18:42
12 milljónir króna á fjölskyldu Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu. 6.6.2009 18:35
Gæsluvarðhalds krafist yfir fjórmenningunum vegna íkveikjunnar Þrír karlmenn og kona eru í haldi lögreglu grunuð um að hafa kveikt í húsi við Kleppsveg í morgun. Karlmaður á miðjum aldri náði að forða sér út úr logandi húsinu. Lögregla ætlar að krefjast gæsluvarðhalds yfir fólkinu. 6.6.2009 18:17
Lík úr flugslysinu fundin Brasilíski flugherinn fann í dag lík tveggja karlmanna sem fórust með farþegaþotu Air France aðfaranótt mánudagsins síðasta. Brak úr vélinni sem og persónulegir munir fundust einnig í dag. 6.6.2009 17:23
Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6.6.2009 17:15
Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6.6.2009 16:54
Ágúst vill sameina Bifröst við aðra skóla Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, vill sameina skólann við Listaháskólann og Háskólann í Reykjavík. Undanfarna mánuði hafa forsvarsmenn skólans kannað hvort flötur sé á nánari samvinna skólanna þriggja. 6.6.2009 16:09
Ráðist á lögreglustöð í Pakistan Undanfarið hefur fjöldi fólks farist í mannskæðum sprengjuárásum ódæðismanna í Pakistan. Nú síðast í dag var lögreglustöð í höfuðborginni, Islamabad, skotmarkið. Einn lögreglumaður lést í árásinni og þá eru að minnsta kosti þrír særðir eftir árásina. 6.6.2009 15:43
Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6.6.2009 15:06
Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6.6.2009 15:01
Rússalán rætt í næstu viku Samningaviðræður Íslendinga og Rússa varðandi svokallað Rússalán fara fram í Moskvu í næstu viku. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir Dmitry Pankin, fjármálaráðherra Rússlands. 6.6.2009 14:41
Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6.6.2009 14:31
Átökin innan VR halda áfram Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, segir að einhverstaðar virðast hagsmunir félagsmanna hafa gleymst. Hann hefur að undanförnu birt á vefsíðu sinni birt tölvupósta svokallaðrar „skuggastjórnar VR" sem inniheldur fólk sem sat áður í stjórn félagsins og hugnast ekki ný stjórn undir forystu Kristins Jóhannessonar. 6.6.2009 13:51
Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6.6.2009 13:24
Hnífsstungumálið á Akureyri - maðurinn líklega útskrifaður í dag Karlmaður um fimmtugt sem var stunginn í brjóstkassann í ryskingum í heimahúsi á Akureyri í gærkvöldi er á batavegi og verður líklega útskrifaður af sjúkrahúsi í dag. 6.6.2009 13:04
Innrásarinnar í Normandí minnst Leiðtogar Frakklands, Bandaríkjanna og Bretlands voru viðstaddir minningarathöfn í Frakklandi í morgun, þegar þess var minnst að 65 ár eru liðin frá innrásinni í Normandí. 6.6.2009 12:54
Hátíð hafsins haldin hátíðleg Líf og fjör verður á Grandagarði í Reykjavík alla helgina þar sem haldin er Hátíð hafsins. Þetta er í ellefta sinn sem að hátíðin er haldin en hún samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum. 6.6.2009 12:43
Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6.6.2009 12:19
Fólkið talið hafa kveikt í með bensíni Þrír karlmenn og ein kona voru handtekin í morgun grunuð um að hafa kveikt í einbýlishúsi við Kleppsveg með bensíni. Karlmaður á miðjum aldri forðaði sér út úr brennandi húsinu sem nánast eyðilagðist í eldinum. 6.6.2009 12:11
Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6.6.2009 12:01
Staðfestir ekki brotthvarf Þorsteins Pálssonar Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, staðfestir ekki að Þorsteinn Pálsson láti af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins á næstu dögum. Vefmiðillinn Eyjan fullyrðir að Þorsteinn sé að hætta af eigin ósk sem annar af ritstjórum blaðsins og að Jón Kaldal verði einn ritstjóri. 6.6.2009 11:29
Rannsókn flugslyssins á byrjunarreit Franskir og brasilískir leitaflokkar hafa ekki enn fundið brak sem talið er vera úr Air France farþegaþotunni sem fórst aðfaranótt mánudagsins síðasta. Einn íslenskur ríkisborgari var um borð. 6.6.2009 10:30
Mál manns sem lést í fangaklefa í rannsókn Lögregla hefur staðfest að karlmaður á fimmtugsaldri sem tók líf sitt í fangaklefa í gærmorgun hafi hengt sig. Fullyrt er í Fréttablaðinu í morgun að maðurinn hafi hengt sig, með teppi, en Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn gat ekki staðfest það í samtali við fréttastofu í morgun. Málið er í rannsókn og beðið er niðurstöðu krufningar. 6.6.2009 10:12
Tugir barna létust í eldsvoða Að minnsta kosti 29 börn létust þegar eldur braust út á dagheimili í norðvesturhluta Mexíkó í gær. Tugir barna slösuðust í eldinum. 6.6.2009 10:08
Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6.6.2009 10:01
Bíll valt á Snæfellsnesvegi í nótt Umferðaróhapp varð á Snæfellsnesvegi vestan Borgarness klukkan rúmlega tvö í nótt þegar fólksbíll valt. Tvennt var í bílnum sem slasaðist ekki mikið en fólkið var flutt á næstu heilsugæslu til aðhlynningar, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Bifreiðin er ónýt en svo virðist sem að ökumaðurinn hafi misst stjórn á henni með fyrrgreindum afleiðingum. 6.6.2009 09:35
Eldur í húsi á Kleppsvegi - þrír handteknir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í einbýlishúsi á Kleppsvegi á níunda tímanum í morgun. Húsið mun hafa verið mannlaust. Þrír karlmenn hafa verið handteknir grunaðir um íkveikju, að sögn lögreglu sem vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. 6.6.2009 08:57
Hnífsstungan á Akureyri: Málsatvik enn óljós Málsatvik í hnífstungumáli á Akureyri í gær eru enn óljós að sögn lögreglu. Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á sextugsaldri sem voru handtekin vegna málsins verða yfirheyrð í dag. 6.6.2009 08:54
Rýr kvóti næstu ár Hafrannsóknastofnun (Hafró) leggur til að þorskkvótinn á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn. Það er tíu þúsund tonnum minna en á yfirstandandi fiskveiðiári. Þó ber þess að geta að upphaflega var úthlutað 130 þúsund tonnum í fyrra og þar með farið eftir ráðleggingum Hafró en síðan var 30 þúsund tonnum bætt við. Útlit er fyrir að þess verði að bíða í þrjú til fjögur ár uns hægt verði að úthluta verulega meiri afla en nú. Einnig leggur stofnunin til að verulega verði dregið úr veiðum á ufsa og ýsu. Þar að auki er útlitið ekki gott fyrir loðnuvertíð næsta vetur en hins vegar mun betra fyrir veturinn þar á eftir. 6.6.2009 06:00
Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6.6.2009 05:15
Røkke og Jón Helgi leita Drekaolíu Tveir af þekktustu athafnamönnum Íslands og Noregs standa að fyrirtækjunum tveimur sem sóttu um sérleyfi til rannsóknar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Þetta eru þeir Kjell Inge Røkke, sem stendur að Aker Exploration, og Jón Helgi Guðmundsson, einn aðaleigenda Norvik, sem er einn af stærstu hluthöfunum í Sagex í gegnum Lindir Resources. 6.6.2009 05:15
Niðurgreiðum ekki strætó „Námsmenn af landsbyggðinni eyða hverri krónu á höfuðborgarsvæðinu í húsaleigu og kaup á annarri þjónustu og því ekki nema sanngjarnt að þeir njóti sömu kjara hjá höfuðborgarsveitarfélögunum og þeirra eigin íbúar,“ segir í svari til Stúdentaráðs Háskóla Íslands frá sveitarstjórn Mýrdalshrepps sem kveðst ekki telja eðlilegt að hreppurinn niðurgreiði rekstur almenningssamgangna í höfuðborginni. 6.6.2009 05:00
Hart barist gegn sorpinu Tillaga Umhverfisstofnunar um framlengt starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands, sem kveður á um að sorp verði urðað í landi Kirkjuferjuhjáleigu næstu sextán árin, hefur vakið harða andstöðu íbúa í nágrenni stöðvarinnar. Umrædd tillaga var kynnt á borgarafundi fyrr í vikunni. 6.6.2009 05:00
Hver íbúi skuldar um milljón Skuldir Álftanesbæjar eru um 2,6 milljarðar króna. Það þýðir 1.048 þúsund krónur á hvern íbúa. Eigið fé sveitarfélagsins er neikvætt um 126 milljónir. Þetta kemur fram í óbirtum ársreikningi Álftaness. 6.6.2009 04:30