Innlent

Alvarlega slasaður eftir bílslys í botni Súgandafjarðar

Karlmaður á sextugsaldri var fluttur alvarlega slasaður með flugi á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys í botni Súgandafjarðar á sjötta tímanum í morgun.

Maðurinn var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði en því næst var hann fluttur til Reykjavíkur. Maðurinn var einn í bílnum þegar slysið varð, að sögn lögreglunnar á Ísafirði.

Bílinn er mikið skemmdur. Unnið er að rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×