Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Taka allt að fjórðungi Dæmi eru um að erlendir milliliðir taki allt að fjórðung í þóknun vegna gjaldeyrissendinga til landsins, komi þær frá löndum utan EES-svæðisins. „Íslenskir bankar geta ekki haft áhrif á þetta, jafnvel þótt þeir hafi gert samninga við erlendu bankana um millifærsluna,“ segir Már Másson hjá Íslandsbanka. Innlendir bankar geti hins vegar haft áhrif á greiðslur sem sendar eru frá landinu, og í þeim tilfellum hefur Íslandsbanki hingað til tekið kostnað erlenda bankans á sig. 6.6.2009 03:00
Byggt á fyrra starfsleyfi „Tillaga Umhverfisstofnunar um starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands til ársins 2025 er byggð á grunni fyrra starfsleyfis svo og eftirlitsferðum starfsmanna stofnunarinnar á urðunarsvæðið.“ 6.6.2009 02:45
Námsmenn fá styrki Ungum, íslenskum námsmönnum standa nú til boða framfærslustyrkir til dvalar á hinum Norðurlöndunum. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu kemur fram að menntamálaráðherrar og samstarfsráðherrar Norðurlandanna hafi nýlega samþykkt að veita hluta af ráðstöfunarfé Norrænu ráðherranefndarinnar til slíkra styrkja. 6.6.2009 02:45
Lítil fyrirtæki burðarásarnir „Það er mjög líklegt að litlum fyrirtækjum muni fjölga á næstunni,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. 6.6.2009 02:30
Kettir snúa heim úr áralangri útlegð Örflögumerkingar á köttum, sem krafist er í samþykkt um kattahald í Reykjavíkurborg frá árinu 2005, hefur gefið afar góða raun og hafa fjölmargir kattaeigendur endurheimt ferfætlingana eftir langa útlegð. 6.6.2009 02:30
Spáir betri tíð síðar á árinu „Þetta gerir okkur kleift að nýta betur þau tækifæri sem verða til þegar staðan í alþjóðlegu efnahagslífi batnar,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems. Hann segir margt benda til að það geti orðið á seinni hluta ársins. „Við erum komin í mjög góða stöðu,“ segir hann. 6.6.2009 02:00
Uppstokkun í Bretlandi Breski forsætisráðherrann Gordon Brown ætlar ekki að segja af sér embætti. Sex ráðherrar hafa hætt í ríkisstjórn hans á síðustu dögum. John Hutton varnarmálaráðherra og Geoff Hoon samgönguráðherra sögðu báðir af sér í gær. Afsagnir þeirra í gær komu í kjölfar afsagnar James Purnell atvinnumálaráðherra á fimmtudagskvöld. Áður höfðu Hazel Blears sveitarstjórnarráðherra og Jacqui Smith innanríkisráðherra sagt af sér ráðherradómi. Paul Murphy, ráðherra gagnvart Wales, hefur einnig sagt af sér. 6.6.2009 02:00
Brakið ekki úr vél Air France Brakið sem fannst um 650 kílómetra norðaustur af Brasilíu á þriðjudag mun ekki vera úr flugvél Air France sem hvarf á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands á mánudag. Dominique Bussereau, samgönguráðherra Frakklands, gaf út yfirlýsingu þess efnis í gær. 6.6.2009 02:00
Með töskur úr kókaíni í flug Ung kona var handtekin í Chile fyrr í vikunni fyrir fíkniefnasmygl. Konan ætlaði að fara um borð í flugvél á leið frá Chile til Spánar með tvær ferðatöskur, sem voru gerðar úr kókaíni. 6.6.2009 02:00
Atorka fer í greiðslustöðvun Atorka hefur óskað eftir greiðslustöðvun, að því er fram kemur í kauphallartilkynningu. 6.6.2009 01:45
Lögum verði breytt um Seðlabankann Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra efast um að Seðlabanki Íslands eigi að vera sjálfstæð stofnun áfram. 6.6.2009 01:30
Aðstaða batnar á Vopnafirði Vopnfirðingar eiga von á flutningaskipi á vegum HB Granda sem inniheldur nýjan löndunarkrana fyrir fiskimjölsverksmiðjuna á staðnum. Er um að ræða einn lið í uppbyggingu uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á staðnum. Nú stendur fyrir dyrum flutningur á tíu mjölturnum frá Reykjavíkurhöfn til Vopnafjarðar. 6.6.2009 01:00
Vonandi stutt í eigendastefnu „Eignarhalds- og eigendastefnumálin eru hér í vinnslu og þess vonandi skammt að bíða að stefnumótun og reglur þar að lútandi verði birtar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 6.6.2009 01:00
Veiði færeyskra skipa minni nú en árið 2008 Færeysk skip hafa veitt 628 tonn af botnfiski við Ísland á þessu ári og er þorskaflinn þar af 167 tonn. Færeysk skip hafa leyfi til að veiða 1.200 tonn af þorski í landhelginni. 6.6.2009 00:45
Fangelsisyfirvöld gerðu mistök Fangelsismálayfirvöld í Bretlandi hafa viðurkennt að hafa gert mistök sem áttu hlut í því að tveir franskir námsmenn voru myrtir á hrottalegan hátt í London í fyrra. Annar morðingjanna var á skilorði og átti að vera undir miklu eftirliti. Tveir breskir menn voru í gær fundnir sekir um morðin hrottalegu. 6.6.2009 00:45
Tugir hjóna að falla á tíma Íslensk ættleiðing og Foreldrafélag ættleiddra barna hafa lagt til við dómsmálaráðherra að aldurshámark verði fellt úr reglugerð um ættleiðingar og miðað verði við aldurshámark upprunaríkisins, segir í nýju fréttariti Íslenskrar ættleiðingar. 6.6.2009 00:30
Óttast að þeir semji af sér „Samningurinn verður sennilega undirritaður í kvöld eða nótt, ég er samt að vona ekki,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins í gærkvöldi. Hann segir samninginn afar slæman. 6.6.2009 00:30
Tóku að sér og ala upp unga Tvær samkynhneigðar mörgæsir hafa komið unga á legg og ala hann nú upp í dýragarðinum í Bremerhaven í Þýskalandi. 6.6.2009 00:15
Fundu óvænt risastórt eldfjall Vísindamenn hafa við rannsóknir á eðli flóðbylgja uppgötvað risavaxið neðansjávareldfjall undan vesturströnd Indónesíu. Fjallið er um 4.600 metrar á hæð og fimmtíu kílómetrar að þvermáli. „Þetta var algjörlega óvænt,“ sagði einn vísindamannanna í gær. 6.6.2009 00:00
ION GX leitar á Drekasvæðinu Orkustofnun veitti í dag bandaríska fyrirtækinu ION GX Technology leyfi til leitar að olíu og gasi á norðanverðu Drekasvæðinu út þetta ár. 5.6.2009 20:59
Pálmi í Fons: Þeir mega rannsaka allt mín vegna ,,Þeir mega rannsaka allt mín vegna, nema að ég þurfi að borga kostnaðinn sem hlýst af rannsókninni," segir Pálmi Haraldsson kenndur við Fons. Hann segist ekkert hafa að fela. Enginn hafi tapað meira á Sterling en Fons. 5.6.2009 19:40
Tekinn vegna stórfellds fíkniefnainnflutnings Karlmaður á þrítugsaldri hefur setið í gæsluvarðhaldi síðustu tvær vikur vegna gruns um aðild að innflutningi á rúmlega 5 kílóum af hörðum fíkniefnum. 5.6.2009 20:04
Maður stungin á Akureyri Maður var stunginn í húsi við Hafnarstræti á Akureyri nú á sjötta tímanum. Sjónarvottur sá mannin koma kjagandi út og var hann blóðugur en með meðvitund. Sjónarvotturinn hringdi í neyðarlínuna og komu þrír lögreglubílar og sjúkrabíll á vettvang. Frá þessu er greint á vefnum akureyri.net. 5.6.2009 18:52
Starfsmaður flugvallarsvæðis grunaður um smygl Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlaðan innflutning á umtalsverðu magni af fíkniefnum hingað til lands. 5.6.2009 18:38
Grettisgötufórnalamb úr öndunarvél Maðurinn sem lenti í lífshættulegri líkamsárás á Grettisgötunni í gær er kominn úr öndunarvél. Að auki hefur hann verið færður af gjörgæslu yfir á almenna deild. 5.6.2009 18:19
Framtíðaráætlun lögð fram á sunnudaginn „Varðandi ríkisfjármálin þá er búið að ákveða að á sunnudaginn klukkan eitt þá kynnir ríkisstjórnin og setur fram til umræðu, útlínur af því hvernig allur þessi pakki sem snýr að því að ná fjárlagahallanum niður geti litið út," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins en fundað var um stöðugleikasáttmálann í dag. 5.6.2009 17:58
Blaðamannafundur vegna Icesave á morgun Blaðamannafundur vegna Icesave deilunnar verður haldin á morgun samkvæmt aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Viðræður vegna Icesave deilunnar hafa staðið yfir að undanförnu að hans sögn og verður þeim viðræðum áfram haldið í kvöld. 5.6.2009 17:32
Brown mun ekki segja af sér Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að ný ríkisstjórn muni einbeita sér að því að þjóna þjóð sinni af heilum hug en fimm ráðherrar hafa sagt af sér á undanförnum fjórum dögum. 5.6.2009 16:54
Flýðu þegar Vinnumálastofnun mætti Tveir menn lögðu á flótta þegar vinnueftirlitsmenn á vegum stéttarfélaganna og Vinnumálastofnunar mættu á staðinn í gær. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. 5.6.2009 16:02
Icesave lánið er til 15 ára Skuldin sem ríkissjóður þarf að gangast í ábyrgð fyrir vegna Icesave reikninganna á að vera fullgreidd að fimmtán árum liðnum. Lánið nemur samkvæmt heimildum fréttastofu 640 milljörðum króna en byrjað verður að greiða af því eftir sjö ár. Lánskjörin er 5,5% vextir. 5.6.2009 15:51
Maðurinn sem gekk berserksgang lést í fangaklefa í morgun Maður sem gekk berserksgang í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi lést í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í morgun. Þetta staðfestir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. 5.6.2009 15:23
Tveir karlar og tvær konur í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar Tveir karlar og tvær konur voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í gæsluvarðhald til 15. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Er það í tengslum við fólskulega líkamsárás á Grettisgötu í gærdag. Um er að ræða tvo karlmenn og tvær konur. Þrjú þeirra hafa kært niðurstöðuna til Hæstaréttar en fólkið er á þrítugs- og fimmtugsaldri. 5.6.2009 14:37
Byrjum að borga eftir sjö ár Í þeim samningum sem nú eru í sjónmáli í Icesave deilunni felst að vextirnir á lánum vegna skuldbindinga Íslands verða 5,5 prósent á ári. Ekki þarf að byrja að borga af láninu fyrr en eftir sjö ár en vextir reiknast af því á meðan. Skuldbindingarnar nema 650 milljörðum í heildina, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ekki er ljóst til hve langs tíma lánið er. 5.6.2009 14:07
Úttekt Deloitte ekki birt fyrr en á þriðjudag Úttekt endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte sem kynna átti fyrir bæjarfulltrúm í Kópavogi í hádeginu í dag verður ekki kynnt fyrr en á þriðjudag. 5.6.2009 14:00
Ekkert innihald fyrir ítrekuðum yfirlýsingum um gríðarmikinn árangur Í morgun var þingflokki Sjálfstæðisflokks og utanríkismálanefnd gerð grein fyrir meginatriðum þess samkomulags sem er í burðarliðnum vegna Icesave deilunnar. Á engan hátt var um að ræða heildstæða kynningu á málinu, réttara væri að tala um reifun á helstu þáttum samkomulagsins. 5.6.2009 13:48
Krefjast þess að leynd verði aflétt af Icesave málinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins krafðist þess í upphafi þingfundar í dag, að Icesave málið yrði þegar tekið fyrir á dagskrá Alþingis og leynd yfir málinu verði aflétt. En trúnaður ríkir um þau mál sem tekin eru fyrir í utanríkismálanefnd þar sem Sigmundur Davíð á sæti. Sigmundur sagði að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi sagt ósatt í síðustu viku, þegar hann sagði að samningaviðræður um Icesave væru að hefjast, en nú kæmi í ljós að samningsniðurstaða lægi fyrir. 5.6.2009 13:37
Flugdólgur trylltist á leið til Tenerife - yfirbugaður af farþegum Svanur Kristinsson lögregluþjónn á Selfossi var á leið í vikufrí til Tenerife á miðvikudaginn í síðustu viku. Áður en hann fór upp í flugvélina veitti hann manni athygli sem virtist vera í annarlegu ástandi. Skömmu eftir flugtak missti maðurinn síðan gjörsamlega stjórn á sér og áhöfnin óskaði eftir aðstoð farþega. Svanur og Bjarni nokkur fyrrverandi slökkviliðsmaður frá Selfossi skiptust síðan á að sitja yfir manninum næstu þrjá tímana. Við komuna til Tenerife var dólgurinn síðan leiddur út í járnum og beit spænskan lögregluþjón. Matthías Imsland framkvæmdarstjóri Iceland Express segir að maðurinn fari ekki aftur upp í vél frá félaginu, nema þá í lögreglufylgd. 5.6.2009 13:07
Skýrsla Hafró: Ýsuafli lækki um tæp 40% Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn, sem er 10 þúsund tonnum minna en veiða má á yfirstandandi fiskveiðiári. Þá leggur stofnunin til að leyfilegur ýsuafli verði 57 þúsund tonn. Tillaga Hafró á síðasta ári var 83 þúsund tonn en aflamarkið var 93 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Slík lækkun nemur um 40%. 5.6.2009 12:36
Lögreglan minnir knattspyrnuáhugamenn á að leggja löglega Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Lögreglan vekur athygli á málinu núna vegna landsleiks Íslendinga og Hollendinga sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld. 5.6.2009 12:20
Leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári 150 þúsund tonn Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn, sem er 10 þúsund tonnum minna en veiða má á yfirstandandi fiskveiðiári. Sjávarútvegsráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fylgir loforði forvera síns og auki þorskkvótann í 160 þúsund tonn. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir tillögu Hafró vonbrigði en fagnar því að þorskstofninn virðist vera stækka. 5.6.2009 11:50
Nýr mengunarvarnarbúnaður kynntur Norska varðskipið Harstad er nú hér á landi í boði Landhelgisgæslunnar. Skipið er nánast systurskip íslenska varðskipsins Þórs sem er í smíðum í Chile. Í morgun hefur farið fram kynning á nýjum mengunarvarnarbúnaði sem er svipaður þeim sem verið er að setja í Þór. Mengunarvarnarbúnaðurinn er sannkölluð bylting þegar kemur að því að dæla olíu úr sjó. 5.6.2009 11:30
Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir Grettisgötuhrottum Friðrik Smári Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að yfirheyrslur yfir sex Litháum sem grunaðir eru um að hafa veitt samlanda sínum lífshættulega áverka hafi farið fram í gær og í morgun og að þeim verði framhaldið í dag. 5.6.2009 11:29
Lést ekki af völdum áverka heldur ofkælingu Niðurstöður úr krufningu á líki Sirreyar Maríu Axelsdóttur sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði í byrjun febrúar liggja nú fyrir. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru dánarorsökin ofkæling. 5.6.2009 11:18
Formaður VR með 800 þúsund á mánuði Kristinn Örn Jóhannesson er með átta hundruð þúsund krónur á mánuði sem formaður VR samkvæmt tilkynningu sem birt er á vefsvæði félagsins í dag. Þar kemur fram að heildarkjör hans er 35% lægri en forvera hans Gunnars Páls Pálssonar. 5.6.2009 11:12
Jóhönnu var ekki kunnugt um umdeilda Möltuferð Össurar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræddi við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar ræddi hann meðal annars um frækna för sína til Möltu sem hefur verið nokkuð umdeild en Össur kom heim seint í gærkvöldi. Hann sagðist ekki hafa farið í ferðina með samráði ráðherra Vinstri grænna en gerði ráð fyrir því að þeir hefðu vitað af ferðinni. Í máli Jóhönnu Sigurðardóttur nú fyrir stundu á Alþingi sagðist henni ekki hafa verið kunnugt um ferð Össurar sem kom til baka í mjög góðu skapi. 5.6.2009 10:59