Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borgin sker niður afturvirkt Reykjavíkurborg ætlar að skera niður framlög til tónlistarskóla í Reykjavík, aftur í tímann, um tólf prósent. Þetta kom fram á fundi Sigurðar Sævarssonar, formanns Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík, með formanni menntaráðs á föstudag. 28.4.2009 06:15
Eitt A4 bréf dugar til ESB Til að sækja um aðild að Evrópusambandinu nægir að ákvörðunin um að gera það hafi verið samþykkt af einföldum meirihluta þings og ríkisstjórnin sendi í framhaldinu bréf til Brussel þar sem óskað er eftir aðildarviðræðum. 28.4.2009 06:00
Íhuga að hætta í óeirðadeild Talsverður fjöldi lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu íhugar að hætta í óeirðadeild embættisins vegna óánægju með breytingar á vinnufyrirkomulagi. 28.4.2009 05:30
Kom á óvart að Íslendingar frestuðu Íslendingar vildu ekki ganga frá þjónustutilskipun ESB daginn fyrir kosningar. „Pólitískar vöðvahnyklingar“ að mati forstöðumanns Evrópuseturs. „Norðmenn geta andað rólega,“ segir ráðherra. 28.4.2009 05:30
Fjórðungur beitti útstrikunum Allt að 25 prósent kjósenda einstakra framboða strikuðu yfir nöfn frambjóðenda á atkvæðaseðlum í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningunum á laugardag. 28.4.2009 05:00
Viðræðuhópar um ESB og stjórnsýslu Formlegar stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingarinnar og VG hófust í gær. Varaformenn flokkanna fara fyrir viðræðuhópi um Evrópumál. Önnur stór mál verða einnig rædd í sérstökum hópum. Bjartsýni ríkir í herbúðum flokkanna. 28.4.2009 05:00
Ekki hættur í stjórnmálum „Þessi niðurstaða er mikil vonbrigði,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, sem er fallinn af þingi. Þar hefur hann átt sæti síðan 2003 og skipaði nú 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. 28.4.2009 05:00
Saga Frjálslyndra er saga deilna og átaka Tíu ára þingsögu Frjálslynda flokksins er lokið. Í flokknum, sem var stofnaður vegna ósættis og óánægju, logaði allt í illdeilum frá fyrsta degi og þar til yfir lauk. 28.4.2009 05:00
Varað við ferðum til Vesturheimslanda Talið er að 150 manns í Mexíkó hafi látist af völdum svínaflensunnar sem farin er að breiðast út um heim. Viðbúnaður hefur verið aukinn á flugvöllum. 28.4.2009 05:00
Skemmdarverk tíð á kirkjunni „Hvort þjóðfélagsástandið er að fara svona illa í fólk skal ég ekki segja um. En maður hefði haldið að svona byggingar fengju að vera í friði,“ segir Stefán Arnaldsson, kirkjuvörður í Akureyrarkirkju. Talsvert hefur verið um skemmdarverk á kirkjunni að undanförnu. 28.4.2009 04:45
Flutti til landsins í ferðatösku Íslenskum ferðalöngum sem voru að taka upp úr töskum sínum eftir dvöl í Taílandi brá í brún þegar þeir fundu lófastóran frosk í einni ferðatöskunni. 28.4.2009 04:45
Stjórnarviðræður tímafrekar Sé litið til sögunnar þarf ekki endilega að búast við því að niðurstaða komist í stjórnarmyndunarviðræður á næstunni. Reyndar eru aðstæður sérkennilegar þar sem minnihlutastjórn fékk meirihluta í kosningum í fyrsta skipti. 28.4.2009 04:45
Enginn læknir með neyðarbíl Landspítalinn hefur ákveðið að hætta að vera með lækni á vakt fyrir neyðarbíl til að fara af stað ef sjúkraflutningamenn í útkalli telja sig þurfa á lækni að halda. Þessi ákvörðun tekur gildi 1. maí. 28.4.2009 04:30
Tugþúsundir tamíla innikróaðar Stjórnvöld á Srí Lanka sögðu í gær að herinn myndi hætta þegar í stað loft- og stórskotaliðsárásum á síðustu vígi Tamíltígra. Með þessari ákvörðun var stjórnin að bregðast við miklum þrýstingi alþjóðasamfélagsins um að hlífa óbreyttum borgurum á átakasvæðinu. 28.4.2009 04:30
Alcoa heldur sínu striki Tómas Sigurðsson, forstjóri Alcoa, segir fyrirtækið halda ótrautt áfram í undirbúningi fyrir álver á Bakka. Hann eigi reglulegan fund með iðnaðarráðuneytinu í dag og ætli ekki að láta stjórnarmyndunarviðræður vinstri flokkanna hafa áhrif á áætlanir fyrirtækisins. 28.4.2009 04:15
Útilokar ekki framboð síðar Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, náði ekki endurkjöri í kosningunum á laugardag. Hún hefur setið á þingi síðan 1995. Arnbjörg telur ófarir Sjálfstæðis-flokksins meðal annars stafa af stuttri kosningabaráttu. 28.4.2009 04:15
Engar viðræður undir þrýstingi Mahmout Abbas, forseti Palestínustjórnar, segir að Palestínumenn ætli ekki að láta þröngva sér í frekari friðarviðræður. 28.4.2009 04:15
Framsókn og frjálslyndir náðu hámarks fylgi Skoðanakönnun Framsóknarflokkur og Frjálslyndir náðu nánast hámarksfylgi sem þeim gafst kostur á, ef úrslit kosninga eru miðuð við greiningu Capacent Gallup á viðhorfi kjósenda til stjórnmálaflokkanna. Flokkarnir fengu skýrslu með slíkri greiningu fyrir kosningar, en hún er dagsett 19. mars. 28.4.2009 04:00
Þrír féllu í átökum við Kúrda Skotbardagi braust út í gær á götum Istanbúl milli lögreglu og herskárra Kúrda. Bardaginn stóð í klukkustund og að honum loknum lágu þrír í valnum. Einn hinna látnu var lögreglumaður, annar Kúrdi og sá þriðji saklaus vegfarandi. Auk þess særðust átta aðrir. 28.4.2009 04:00
Bjartsýnni eftir viðræðufund Formlegar stjórnar-myndunarviðræður hófust í gær og voru formenn stjórnarflokkanna bjartsýnni eftir fyrsta fund, raunar bjartsýnni eftir fund en fyrir. Bæði Jóhanna og Steingrímur segja það sögulega skyldu vinstri flokkanna að mynda þessa stjórn. 28.4.2009 03:45
Átökin í Afganistan og Pakistan ógna stöðugleikanum Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að átökin og óróleikinn í landamærahéruðum Afganistans og Pakistans ógna stöðugleikanum í Pakistan og heimshlutanum. Vesturlönd hafa síðustu misseri haft áhyggjur af auknum umsvifum Talibana við og í Pakistan. 27.4.2009 22:53
Dagur og Katrín stýra starfshóp um Evrópumálin Á fundi forystumanna stjórnarflokkanna í dag var ákveðið að varaformenn flokkanna stýri starfshóp til að ræða Evrópumálin. „Það sem var ákveðið á þessum fundi er skipa starfshópa undir forystu okkar varaformanna sem munu fara yfir stöðuna varðandi Evrópusambandið og við erum ákveðin í að leysa það mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 27.4.2009 19:33
Bifreið alelda í Geldingarnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barst á áttunda tímanum í kvöld tilkynning um bifreið sem var alelda í Geldingarnesi við Grafarvog. Þegar að var komið kom í ljós að um var að ræða leifar yfirgefinnar Toyotu-bifreiðar, að sögn varðstjóra. 27.4.2009 20:21
Kolmunnaveiðunum skipa HB Granda að ljúka Kolmunnaveiðum skipa HB Granda er nú að ljúka en Faxi RE, Ingunn AK og Lundey NS hafa veitt samtals rúmlega 26 þúsund tonn af kolmunna á þessu ári. Fram kemur í tilkynningu að Faxi RE sé á leið til Vopnafjarðar með fullfermi af kolmunna. Von er á skipinu til hafnar fyrir miðnætti. 27.4.2009 23:09
Nærmynd af formanni VG Fjallað var um Steingrím Jóhann Sigfússon, formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, í þættinum Ísland í dag fyrr í kvöld. Þar var sýnd nærmynd af formanninum og rætt við vini og ættingja hans, meðal annars Sigfús Steingrímsson, son flokksforingjans. 27.4.2009 20:52
Miðstjórn Frjálslynda flokksins ræðir um framtíðina Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur verið kölluð saman til fundar næstkomandi fimmtudag til að ræða stöðu flokksins eftir þingkosningarnar á laugardaginn þegar flokkurinn þurrkaðist út af þingi. 27.4.2009 20:13
Stefán upplýsti hjónin um handtöku Arnarnesræningjanna Stefán Eiríksson, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, heimsótti í dag eldri hjón sem haldið var í gíslingu á heimili sínu á laugardagskvöld og tilkynnti þeim að ræningjarnir væru í haldi lögreglu. 27.4.2009 20:01
Meirihluti þingmanna hafa tveggja ára eða minni reynslu af þingstörfum 42 af 63 þingmönnum, eða tveir þriðju þeirra, hafa setið í tvö ár eða skemur á Alþingi. Aðeins 14 þingmenn hafa setið í áratug eða lengur. 27.4.2009 20:00
Barroso sendi Jóhönnu hamingjuóskir - vill samstarf við ríkisstjórnina Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur hamingjuóskir og lofar góðu samstarfi við íslensku ríkisstjórnina. 27.4.2009 20:00
Lögregluforingi skaut tíu manns á stórmarkaði Lögregluforingi í Moskvu skaut tíu manns á stórmarkaði í borginni í dag. Hann hafði lent í rifrildi við konu sína í afmælisveislu. 27.4.2009 19:45
Rannsóknargögn lögreglu skilin eftir á víðavangi Öll rannsóknargögn lögreglu í Pólstjörnumálinu og öðrum umfangsmiklum lögreglumálum voru skilin eftir á víðavangi. Á meðal þess sem þar var að finna voru ljósmyndir og aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar. Lögmaður, sem stóð í flutningum um helgina, er ábyrgur. 27.4.2009 18:59
Viðræðurnar mega ekki taka of langan tíma Helmingi fleiri fyrirtæki urðu gjaldþrota á fyrstu þremur mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Formaður Eflingar segir að stjórnarmyndunarviðræður megi ekki taka langan tíma svo hægt verði að snúa þessari þróun við. 27.4.2009 18:50
Formenn VG og Samfylkingar bjartsýnir Áframhaldandi stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ræðst af því hvort samkomulag næst í Evrópumálum. Formaður Vinstri grænna telur meiri líkur á því en minni að stjórnin lifi. Hann hefur ekki áhyggjur af yfirlýsingum Atla Gíslasonar né þingmanna Samfylkingarinnar. Forsætisráðherra segir æskilegt að ný stjórn hafi verið mynduð áður en Alþingi kemur saman. 27.4.2009 18:40
Fjölmiðlar miskunnarlaust misnotaðir í umfjöllun um ESB Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum og fyrrum ráðherra, segir að fjölmiðlar hafi miskunnarlaust verið misnotaðir í umfjöllun um Evrópumál að undanförnu. Þar á meðal Ríkisútvarpið. Þetta kom í síðdegisútvarpi Rásar 2 í dag. 27.4.2009 18:10
Hvar er hann Simbi? Hann Simbi er horfinn að heiman. Simbi er stór og mikill gulbröndóttur köttur sem býr hjá henni Þóru á Flyðrugrandanum. 27.4.2009 17:49
Arnarnesræningjarnir handteknir Fjórir einstaklingar, tveir menn og tvær konur, sem grunuð eru um að hafa ráðist inn á heimili roskinna hjóna á Arnarnesi á kjördag. Mennirnir voru vopnaðir og grímuklæddir þegar þeir ruddust inn á heimilið og hótuðu hjónunum lífláti ef þau létu ekki fjármuni af hendi. Hjónunum var haldið í gíslingu í 15 til 20 mínútur á meðan þeir fóru ránshendi um íbúðina. 27.4.2009 17:01
Talsvert af Íslendingum býr í Mexíkó Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segist ekki hafa spurnir af því að einhverjir Íslendingar hafi verið að koma frá Mexíkó undanfarna daga. Rösklega 100 manns hafa látíst af völdum fuglaflensu undanfarna daga og hefur Alþjóða heilbrigðisstofnunin varað við mögulegum heimsfaraldri. 27.4.2009 16:49
Búinn að greiða 77 milljónir „Málinu var frestað til 18. maí en við munum sátt í málinu, þessar 290 þúsund krónur verða greiddar," segir fyrrum veitingamaðurinn Hendrik Björn Hermannsson sem fór ansi illa út úr veitingarekstrinum Skólabrú en hann var ákærður fyrir fjárdrátt þar sem félag hans greiddi ekki ríkinu tæpar 300 þúsund krónur í gjöld af launum. Réttað var í málinu í dag en framkvæmdastjórinn einn mætti, ekki Hendrik sjálfur eins og ranglega var greint frá í frétt á Vísi fyrr í dag. 27.4.2009 16:42
Kjörklefakúkarinn reyndist kona og hústökumaður Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis þá var kjörklefakúkarinn 26 ára kona. Sjónarvottur sá hana fara inn í kjörklefann í Grafarvogi rétt fyrir lokun á laugardagskvöldið. Inn í klefanum gerði hún stykki sín og skeindi sig á kjörseðlinum. Svo braut hún seðilinn saman og skilaði honum í kjörkassann. Atkvæðið ógeðfellda uppgvötaðist stuttu síðar. 27.4.2009 16:19
Jóhanna sækir umboð til Ólafs - Fyrsti fundur í Norræna húsinu Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar fékk í dag formlegt umboð þingflokksins til þess að mynda stjórn með Vinstri hreyfingunni -grænu framboði. Jóhanna fundar nú á Bessastöðum með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta þar sem hún greinir honum frá stöðu mála en búist er við því að Ólafur veiti henni formlegt umboð til stjórnarmyndunar. 27.4.2009 16:09
Stjórnarflokkarnir verða að leysa málin Þingmenn þeirra flokka sem ekki eiga aðild að ríkisstjórninni hafa fátt að segja um þá hugmynd Björgvins G. Sigurðarsonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um að ríkisstjórnin leggi fram þingsályktunartillögu um ESB aðild sem þingmenn geta svo kosið um. 27.4.2009 15:51
Tvíhöfða lamb fæddist um kosningahelgina Tvíhöfða lamb fæddist nú um kosningahelgina samkvæmt Skessuhorni.is. Það var hjá bóndanum Jóni Eyjólfssyni sem ein ær fæddi tvíhöfða lamb. 27.4.2009 14:39
Björgvin vill að Alþingi kjósi um ESB umsókn Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar á Suðurlandi segir að vel mætti hugsa sér að ríkisstjórnin leggi fyrir Alþingi ályktun um aðildarumsókn að ESB. Þetta kemur fram í pistli sem hann skrifar á vefritið Sunnlendingur.is. „Málið er þverpólitískt í eðli sínu og þannig á að nálgast það. Sé á Alþingi meirihluti er málið í lýðræðislegum farvegi þings og þjóðar. Við höfum viljann til samstarfs. Nú er að finna leiðina," skrifar Björgvin. 27.4.2009 14:20
Stjórnarmaður ákærður fyrir fjárdrátt Veitingahúsamaðurinn Hendrik Hermannsson hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt sem stjórnarmaður Buff veitinga ehf en málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þá er framkvæmdastjóri félagsins einnig ákærð en hún var ekki viðstödd þingfestingu. 27.4.2009 14:17
Þingflokkar VG og Samfylkingarinnar funda Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs komu saman í Alþingishúsinu klukkan hálftvö í dag. 27.4.2009 13:50