Meirihluti þingmanna hafa tveggja ára eða minni reynslu af þingstörfum 27. apríl 2009 20:00
42 af 63 þingmönnum, eða tveir þriðju þeirra, hafa setið í tvö ár eða skemur á Alþingi. Aðeins 14 þingmenn hafa setið í áratug eða lengur. Mikil endurnýjun varð á Alþingi í kosningunum um helgina þegar 27 nýir þingmenn náðu kjöri. Talsverð breyting varð einnig á þingmannahópnum í kosningunum fyrir tveimur árum en þá tóku 24 nýir þingmenn til starfa eftir kosningar. Þingmannahópurinn hefur því breyst mikið á aðeins tveimur árum. Aðeins 14 af 63 þingmönnum hafa setið í áratug eða lengur á þingi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er reynslumest. Hún tók sæti á þingi árið 1978 og hefur setið þar síðan eða í rúma þrjá áratugi. Þeir sem koma þar á eftir eru Steingrímur J. Sigfússon og Árni Johnsen sem tóku fyrst sæti á Alþingi 1983, seta Árna hefur þó verið með hléum. Sjálfstæðismaðurinn Einar K. Guðfinnsson var fyrst kosinn á þing árið 1991 og það sama á við um Össur Skarphéðinsson. Siv Friðleifsdóttir hefur mesta þingreynslu framsóknarmanna en hún hefur setið þar frá árinu 1995 líkt og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Pétur H. Blöndal og Ögmundur Jónasson. Þá hafa þingmennirnir Jón Bjarnason, Kristján L. Möller, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þuríður Backman tíu ára þingreynslu. Þau komu öll ný inn á þing árið 1999. 42 þingmenn hafa hins vegar aðeins tveggja ára reynslu eða minni af þingstörfum. 14 komu nýir inn árið 2007 einn árið 2008 og 27 nýir þingmenn taka sæti á þingi þegar það kemur aftur saman.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira