Innlent

Björgvin vill að Alþingi kjósi um ESB umsókn

Björgvin G. SIgurðsson.
Björgvin G. SIgurðsson.

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar á Suðurlandi segir að vel mætti hugsa sér að ríkisstjórnin leggi fyrir Alþingi ályktun um aðildarumsókn að ESB. Þetta kemur fram í pistli sem hann skrifar á vefritið Sunnlendingur.is. „Málið er þverpólitískt í eðli sínu og þannig á að nálgast það. Sé á Alþingi meirihluti er málið í lýðræðislegum farvegi þings og þjóðar. Við höfum viljann til samstarfs. Nú er að finna leiðina," skrifar Björgvin.

Hann segir að eigi vinstriflokkarnir að ná að starfa saman á kjörtímabilinu verði þeir að ná samstöðu um Evrópusambandið og segist hann trúa því að það sé hægt með lýðræðislegri aðkomu almennings og Alþingis að málinu. „Ekki má glutra glæstum sigri niður. Okkur ber að ná saman um endurnýjað samstarf Samfylkingar og Vg," segir Björgvin einnig.

Pistil Björgvins má lesa hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×