Bjartsýnni eftir viðræðufund 28. apríl 2009 03:45
Formlegar stjórnar-myndunarviðræður hófust í gær og voru formenn stjórnarflokkanna bjartsýnni eftir fyrsta fund, raunar bjartsýnni eftir fund en fyrir. Bæði Jóhanna og Steingrímur segja það sögulega skyldu vinstri flokkanna að mynda þessa stjórn. „Ég er bjartsýnni eftir að ég kom út af fundinum en áður en ég fór inn. Það hefur ýmislegt skýrst og ég tel að við munum ná ásættanlegri niðurstöðu í Evrópumálum," segir Jóhanna Sigurðardóttir. Steingrímur J. Sigfússon tekur undir það. „Það er gagnkvæmur og sterkur vilji til samstarfs til staðar og ég er bjartsýnni eftir fundinn en fyrir." Á fundinum í gær voru skipaðir viðræðuhópar um Evrópumál og um breytingar á stjórnsýslu. Varaformennirnir leiða hópinn um Evrópu, en þeir Ögmundur Jónasson og Össur Skarphéðinsson sitja einnig í hópnum. Hinn hópurinn verður skipaður í dag. Þá verður á næstunni skipað í hópa um efnahagsmál og atvinnumál. Formennirnir leggja áherslu á að hér sé starfandi meirihlutastjórn og því liggi minna á en ella. Ólafur Ragnar Grímsson forseti áréttaði þetta þegar Jóhanna sótti umboð til stjórnarmyndunar að Bessatöðum í gær. Hann sagði enga þörf á því að setja tímamörk á hvenær viðræðum flokkanna um frekari aðgerðir eða verkefni kunni að ljúka, í ljósi þess að minnihlutastjórnin hafi hlotið meirihluta í kosningunum. Báðir flokkarnir höfðu innköllun aflaheimilda á stefnuskrá sinni fyrir kosningar. Steingrímur segir að sest verði yfir það mál eins og önnur. Jóhanna segir það ljóst að stjórnin muni ráðast í breytingar á sjávarútvegsstefnunni. Ljóst er hins vegar að samningur um Evrópumál er forsenda stjórnar.- kóp, bj /
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira