Innlent

Ekki hættur í stjórnmálum

Sigurður Kári.
Sigurður Kári.

„Þessi niðurstaða er mikil vonbrigði," segir Sigurður Kári Kristjánsson, sem er fallinn af þingi. Þar hefur hann átt sæti síðan 2003 og skipaði nú 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Sigurður Kári segir tap Sjálfstæðisflokksins fyrst og fremst helgast af efnahagshruninu. „Sjálfstæðisflokknum einum var kennt um það. Við fengum ekki að njóta þess góða sem gert var í okkar stjórnartíð. Styrkjamálin voru okkur líka mjög óþægileg."

Ekki er ljóst hvað tekur nú við hjá Sigurði Kára. „Það kom bara í ljós í gærmorgun [sunnudagsmorgun] að ég næði ekki endurkjöri. Hvað ég tek mér fyrir hendur kemur í ljós með tíð og tíma. Ég held þó að ég muni verða þátttakandi í stjórnmálum alla ævi. Ég er ekki af baki dottinn."

- bs








Fleiri fréttir

Sjá meira


×