Innlent

Kolmunnaveiðunum skipa HB Granda að ljúka

Kolmunnaveiðum skipa HB Granda er nú að ljúka en Faxi RE, Ingunn AK og Lundey NS hafa veitt samtals rúmlega 26 þúsund tonn af kolmunna á þessu ári.

Fram kemur í tilkynningu að Faxi RE sé á leið til Vopnafjarðar með fullfermi af kolmunna. Von er á skipinu til hafnar fyrir miðnætti.

Ingunn AK er enn að veiðum og í morgun var skipið komið með rúmlega 1300 tonna afla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×