Formenn VG og Samfylkingar bjartsýnir 27. apríl 2009 18:40
Áframhaldandi stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ræðst af því hvort samkomulag næst í Evrópumálum. Formaður Vinstri grænna telur meiri líkur á því en minni að stjórnin lifi. Hann hefur ekki áhyggjur af yfirlýsingum Atla Gíslasonar né þingmanna Samfylkingarinnar. Forsætisráðherra segir æskilegt að ný stjórn hafi verið mynduð áður en Alþingi kemur saman. Þingflokkar stjórnarflokkanna komu saman til fundar um klukkan hálf tvö í dag en nú hefur sú breyting orðið á stöðu þeirra að þeir mynda ekki lengur minnihlutastjórn, þar sem þeir hafa nú meirihluta Alþingis á bakvið sig. Jóhanna sagði mikinn samhljóm hafa verið í hinum nýja þingflokki. „Ég fékk umboð til að leiða stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar og Vinstri grænna til lykta," segir Jóhanna sem er bjartsýn að niðurstaða náist í viðræðunum. Samkvæmt lögum þarf Alþingi að koma saman innan tíu vikna frá kosningum en Jóhanna sagði ekki ljóst hvenær Alþingi kæmi saman, en hún vonaði að það gæti orðið innan þriggja vikna. Hún leggi mikla áherslu á Evrópumálin. „Þannig að ég vona að við sjáum til lands í því að við fáum niðurstöðu í þetta mál svo við getum rætt önnur mál," segir Jóhanna. Önnur mál séu auðleystari. Af þessu viðtali loknu var Jóhanna rokin út á Bessastaði til að gera forseta Íslands grein fyrir stöðu mála. Þangað kom hún um klukkan fjögur og átti tæplega klukkustundarfund með forsetanum. Forsetinn sagði ríkisstjórnina nú hafa meirihluta þjóðarinnar á bakvið sig. Forystumenn flokkanna komu svo saman í Norræna húsinu um klukkan fimm, þar sem áframhaldandi stjórnsamstarf var rætt, en sérstakur starfshópur þeirra um Evrópumál tekur einnig til starfa í dag eða á morgun. Þingflokkur Vinstri grænna samþykkti að fela formanni og varaformanni að hefja stjórnarmyndunarviðræður og stuðning við núverandi ríkisstjórn. Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna sagði í hádegisfréttum okkar að ef Samfylkingin stæði hörð á Evrópusambandsaðild, ætti hún að snúa sér annað. Steingrímur telur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af yfirlýsingum hans né einstakra þingmanna Samfylkingarinnar. „Já, ég tel tvímælalaust að þetta gangi vel hjá okkur. Ég treysti bara á það," segir Steingrímur spurður hvort hann telji að flokkarnir nái saman um myndun ríkisstjórnar.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira