Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stærsti landsfundur VG til þessa Landsfundur Vinstri grænna hefst á morgun og stendur um helgina á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn verður sá fjölmennasti í sögu flokksins. 19.3.2009 13:18
Fritzl dæmdur til ævilangrar vistunar á geðdeild Josef Fritzl, Austurríkismaðurinn sem hélt dóttur sinni í gíslingu í 24 ár og átti með henni sjö börn, var í dag fundinn sekur um öll ákæruatriði, þar á meðal morð af völdum vanrækslu þegar eitt barna hans lést. Hann mun enda ævina á geðsjúkrahúsi. 19.3.2009 13:12
Ræði arðgreiðslurnar við stjórn HB-Granda Verkalýðshreyfingin krefst þess að Samtök atvinnulífsins ræði umdeildar arðgreiðslur við stjórnendur HB Granda. Fulltrúar ASÍ og verkalýðsfélaga funduðu í morgun með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins þar sem verkalýðshreyfingin lýsti áhyggjum af málinu. 19.3.2009 12:26
Dómarar gagnrýna lögreglu vegna Kragh málsins Dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdu í máli Þorsteins Kragh og Jacobs Hinte, gagnrýna vinnubrögð lögreglunnar við rannsókn málsins þar sem Þorsteini Kragh var ítrekað meinað að komast í mikinn fjölda skjala sem vörðuðu rannsókn málsins. 19.3.2009 12:15
Páfi í vandræðum vegna smokka Benedikt páfi er lentur í sannkallaðri orrahríð eftir að hann lýsti því yfir í heimsókn sinni í Afríku að smokkar veittu ekki vernd gegn alnæmi. 19.3.2009 12:10
Catalina hefur tólf vændiskonur á sínum snærum Catalina Ncoco, konan sem haldið hefur úti vændishúsum í Reykjavík undanfarin misseri, segist hafa tólf vændiskonur á sínum snærum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Í viðtali við Vikuna segist hún fara reglulega til Brasilíu til að finna konur til að stunda vændi hér á landi. 19.3.2009 12:03
Ráðist á úrsmið Nú fyrir stundu var ráðist á Frank Michelsen og vökva sprautað í augun á honum, hugsanlega piparúða. 19.3.2009 11:45
Þiggur ekki þriðja sætið - vill baráttusætið Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, ætlar ekki að taka þriðja sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar 25. apríl. Þess í stað vill hann skipa baráttusæti flokksins. Nái Lúðvík kjöri lætur hann af störfum sem bæjarstjóri. 19.3.2009 11:27
Þorsteinn Kragh í níu ára fangelsi Þorsteinn Kragh var í dag dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að smygla til landsins tæpum 200 kílóum af hassi og hálfu öðru kílói af kókaíni. Jacob van Hinte, hollenskur samstarfsmaður Þorsteins var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi en dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan ellefu í morgun. Þorsteinn mætti ekki við dómsuppsögu málsins. 19.3.2009 11:06
Mannfæð á þingi þingflokksformönnum að kenna Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnarflokkana fyrir skipulagsleysi við þinghald. 19.3.2009 10:45
Nágrannar grunlausir um risa kannabisræktun Það fór lítið fyrir umfangsmestu kannabisræktun sögunnar en nágrannar sem Vísir hafði samband við höfðu ekki hugmynd um þá ólöglegu starfsemi sem átti sér stað í húsnæðinu. 19.3.2009 10:37
Blaut tuska framan í heimili og fyrirtæki „1% stýrivaxtalækkun er blaut tuska framan í heimili og fyrirtæki þessa lands. Nefndin hefði að mínu mati átt að leggja til mun meiri lækkun stýrivaxta," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti í 17%. 19.3.2009 10:26
Hanna Birna greini frá tengslum við Björgólfsfeðga Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, hyggst spyrja Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, um tengsl hennar við Samson Properties á fundi borgarráðs í dag. Ólafur vill meðal annars að hún upplýsi hvort hún hafi þegið fjárframlög frá félaginu. 19.3.2009 10:25
Stýrivaxtalækkunin allt of lítil „Að mínu mati er þessi lækkun allt of lítil. Það eru mikil vonbrigði að þeir skyldu ekki taka stærra skref," segir Jón Steindór Valdimarsson, formaður Samtaka iðnaðarins, um þá ákvörðun Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti um 1%, niður í 17%. 19.3.2009 10:11
Elísabet Fritzl var í dómssalnum Helsta ástæða þess að Austurríkismaðurinn Josef Fritzl lýsti sig að fullu sekan í gær af ákærum um nauðgun, sifjaspell og morð var sú að dóttir hans Elísabet var í dómssalnum. 19.3.2009 09:11
Saga síðasta geldings Kína komin út á ensku Sun Yaoting átti það til að fella tár þegar hann rifjaði upp æsku sína og uppvaxtarár með sagnfræðingnum Jia Yinghua sem skrásett hefur sögu hans og gefið út undir heitinu „Síðasti geldingurinn í Kína". 19.3.2009 08:10
Mokafli í miðri höfninni Stóra fjölveiðiskipið Kap VE fékk 600 tonn af síld inni í miðri Vestmannaeyjahöfn í gær og landaði aflanum til bræðslu í gærkvöldi. Mikið hefur verið af síld í höfninni að undanförnu og talsvert af henni hefur verið að drepast vegna sýkingar, svo áhöfnin á Kap sló til og kastaði nótinni við Básaskersbryggjuna, þar sem nokkur hundruð tonn fengust. 19.3.2009 08:07
Dæmdir brotamenn ganga lausir í Danmörku Tuttugu og átta dæmdir afbrotamenn ganga lausir í Danmörku og bíða eftir að hefja afplánun. Frá þessu er greint í Berlingske Tidende og jafnframt tekið fram að langflestir brotamannanna tilheyri vélhjólaklíkum og glæpasamtökum. 19.3.2009 07:57
Offramboð á enskum prestsetrum Á annað hundrað fyrr- og núverandi prestsetur prýða nú auglýsingasíður breskra fasteignasala og er það mál manna að sjaldan hafi verið hægt að næla sér í virðulega fasteign á borð við slík setur fyrir hóflegar upphæðir. 19.3.2009 07:18
Samdráttur í skemmtisiglingum Rekstraraðilar skemmtiferðaskipa gera nú allt sem í þeirra valdi stendur til að lokka til sín viðskiptavini fyrir vertíðina sem nú er um það bil að hefjast. Heimturnar eru þó mun dræmari en í meðalári og tilboð af ýmsum gerðum eru farin að líta dagsins ljós. 19.3.2009 07:17
Öryggisráðstafanir vegna G20-ráðstefnu hertar Til stendur að auka til muna öryggisráðstafanir vegna ráðstefnu 20 stórra iðnríkja í London sem hefst 2. apríl. 19.3.2009 07:13
Þjófagengi á ferð við Sauðárkrók Lögreglan á Sauðárkróki sleppti, að loknum yfirheyrslum í nótt, fimm af þeim sex manneskjum, sem hún handtók í gær vegna ýmissa afbrota. 19.3.2009 07:07
Ökumaður nær meðvitundarlaus af ölvun Ofurölvi ökumaður var stöðvaður í Höfðahverfi í Reykjavík undir morgun og reyndist áfengismagn í blóði hans vera sex til sjö sinnum yfir leyfilegu hámarki. Samkvæmt þeirri mælingu hefði hann átt að vera löngu sofnaður áfengisdauða. 19.3.2009 07:02
Umfangsmesta kannabisræktun sögunnar stöðvuð á Kjalarnesi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla fíkniefnaframleiðslu á Kjalarnesi nú í kvöld. Um er að ræða kannabisræktun í Iðnaðarhúsnæði en tveir voru handteknir vegna málsins. Einnig fannst lítilræði af hvítu dufti á svæðinu. 18.3.2009 21:34
Sturla vörubílstjóri leiðir lista Frjálslynda flokksins Sturla Jónsson vörubílstjóri og Ásgerður Jóna Flosadóttir varaformaður Frjálslynda flokksins munu leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í komandi alþingiskosningum. 18.3.2009 22:19
Skrifstofu Atlantsskipa lokað í dag Skrifstofa Atlantsskipa í Hafnarfirði var ekki starfrækt í dag. Um 10 manns vinna á skrifstofunni sem var ekki opin vegna erfiðleika í rekstri. Símon Kjærnested stjórnarmaður Atlantsskipa vonast til þess að félagið komist yfir umrædda erfiðleika en flutningar til og frá landinu hafa verið afar litlir upp á síðkastið. Öllum starfsmönnum félagsins hefur verið sagt upp störfum. 18.3.2009 21:24
Samningar Nýsis og Hafnarfjarðarbæjar í uppnámi Samningar Nýsis og Hafnarfjarðarbæjar eru í ákveðnu uppnámi að sögn Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra. Um er að ræða samninga sem Hafnarfjarðarbær gerði við Nýsi um rekstur tveggja íþróttahúsa, leikskóla og grunnskóla sem félagið byggði. Lúðvík segir Hafnarfjarðarbæ hafa verið ósáttan við samningana frá upphafi og vonast til þess að niðurstaða náist fljótlega í málinu. Fasteignahluti Nýsis var tekinn til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. 18.3.2009 20:22
Sjö kærðir fyrir of hraðan akstur Sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í dag. Sá er ók hraðast var á 125 km hraða á Grindavíkurvegi, en hámarkshraði þar er 90 km/klst. 18.3.2009 22:00
Leiðir lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík norður Karl V. Matthíasson þingmaður mun leiða lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík norður í næstu alþingiskosningum. Karl gekk nýlega til liðs við flokkinn en hann var áður þingmaður Samfylkingarinnar. 18.3.2009 21:02
Vilja að Samfylking og VG gangi bundnir til kosninga Stjórn Samfylkingarinnar á Ísafirði hvetur forystu flokksins til þess að taka upp viðræður við Vinstri græna um að flokkarnir gangi bundnir til kosninga, þannig að fái þeir fylgi, myndi þeir ríkisstjórn eftir næstu alþingiskosningar. 18.3.2009 20:50
Seinheppnir þjófar í Skagafirði - fangageymslur fullar Það voru snar handtök lögreglunnar á Sauðárkróki sem urðu til þess að í dag voru handteknir sex eintaklingar í Skagafirði og eru því fangageymslur lögreglunnar á Sauðkróki troðfullar. 18.3.2009 20:38
Við síldveiðar í höfninni í Vestmannaeyjum Síldveiðiskipið Kap VE var við síldveiðar inni í sjálfri höfninni í Vestmannaeyjum seinni partinn í dag. Þetta kemur fram á fréttavefnum eyjar.net. 18.3.2009 20:30
Undrast ályktun Eyjamanna Eins og þekkt er þá hefur RSÍ umfram önnur stéttarfélög frekar valið að vera með marga kjarasamninga en einn eins og sum stéttarfélög. Í vetur hefur RSÍ tekist ágætlega að ganga að frá þessum samningum eins og reyndar ætlast er til að kjarasamningar séu endurnýjaðir þegar þeir renna út. En almenni samningur sambandsins hefur einn fylgt hinu svokallaða samfloti ASÍ. 18.3.2009 20:03
Kim Jong Il við hestaheilsu Svo virðist sem Kim Jong Il leiðtogi Norður-Kóreu sé ekki dauður. Allavega kom hann í opinbera heimsókn til Kína í dag. Leiðtoginn hefur ekki sést opinberlega í marga mánuði og orðrómur var á kreiki um að hann væri allur eða að minnsta kosti alvarlega veikur. 18.3.2009 20:00
Fréttaskýring: Saga Baugsveldisins Saga Baugsveldisins spannar 20 ár. Frá því að fyrsta Bónusverslunin var opnuð árið 1989 og til dagsins í dag var vöxtur félagsins gríðarlegur. Baugur tók yfir stóran hluta af breskri smávöruverslun, og stimplaði sig þar með rækilega inn í breskt efnahagslíf. 18.3.2009 19:33
Segja ríkið ekki standa við samkomulag um húsaleigubætur Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var um sl. mánaðamót, var m.a. fjallað um húsaleigubætur og fjárvöntun vegna hlutar ríkisins í húsaleigubótum. Á fundinum var upplýst að fjárvöntunin vegna ársins 2008 er um 147 m.kr. og miðað við fjárheimildir í fjárlögum ársins 2009 mun vanta um 229 m.kr. upp á að ríkissjóður standi við samkomulag ríkissjóðs og sambandsins frá 7. apríl 2008 um fjárhæðir húsaleigubóta og greiðsluhlutfall ríkis og sveitarfélaga. 18.3.2009 19:30
Seðlabankinn mismunar við afgreiðslu á gjaldeyri Seðlabanki Íslands mismunar einstaklingum og fyrirtækjum við afgreiðslu á gjaldeyri, fullyrðir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem segir að menn virðist geta fengið undanþágur ef þeir eiga góða vini á réttum stöðum. 18.3.2009 18:45
Miðstýring á að minnka hjá lögreglu Meiriháttar skiplagsbreytingar eru framundan hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fimm sjálfstæðar lögreglustöðvar verða settar upp, miðstýring minnkar og fjölmennara lið lögreglu fer út í hverfin. 18.3.2009 18:43
Allt mömmu að kenna Verjandi Jósefs Fritzels segir að það sé mömmu hans að kenna að hann lokaði dóttur sína inni og nauðgaði henni í tuttugu og fjögur ár. 18.3.2009 18:30
Segja Landsbankann ekki hafa afskrifaði milljónir Björgvins Lansbankinn hefur aldrei afskrifað neinar kröfur á Björgvin G. Sigurðsson fyrrum viðskiptaráðherra. Þar með staðfestir bankinn orð Björgvins í grein sem hann ritaði í Morgunblaðið í dag. Það er fréttavefurinn sunnlendingur.is sem sem segist hafa fengið gögn í hendurnar sem staðfesti þetta. 18.3.2009 18:04
Saka stjórn HB-Granda um að fegra bókhaldið Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um hundruð milljón króna arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður og skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar. 18.3.2009 17:12
Rýmingu aflétt í Bolungarvík Veðurstofan í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum hefur afturkallað hættustig á reit 4 í Bolungarvík og er rýmingu aflétt því samfara. Óvissustig er þó áfram á reitnum. 18.3.2009 16:26
Byr vill leysa erlenda tékkamálið „Almenna reglan er að selja ekki erlenda tékka nema okkar viðskiptavinum. Við leitum þó allra leiða til að aðstoða fólki með slík mál og erum tilbúin að skoða hvert mál fyrir sig," segir markaðsfulltrúi Byrs, Salóme Rúnarsdóttir, varðandi vandkvæði Kanadafara sem vilja fá erlenda tékka þannig þeir geti borgað umsýslugjald vegna atvinuleyfis út í Kanada. 18.3.2009 16:26
Lýsa vantrausti á störf forseta og samninganefndar ASÍ Drífandi stéttarfélag fagnar góðum uppgjörum sjávarútvegsfyrirtækja undanfarið. Staða margra fyrirtækja er góð þrátt fyrir þrengingar í þjóðfélaginu. Það sýnir að málflutningur þeirra stéttarfélaga er kröfðust þess að launahækkunin kæmi til framkvæmda 1. mars, var hárréttur. 18.3.2009 15:11
Byrgisstelpa stal frá nágrannanum Ólöf Ósk Erlendsdóttir var dæmd í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað, fíkniefnabrot og hylmingu auk eignaspjalla. Þar á meðal stal hún margvísislegum hlutum frá nágranna sínum sem bjó í sama fjölbýlishúsi og hún sjálf. 18.3.2009 14:57