Byr vill leysa erlenda tékkamálið Valur Grettisson skrifar 18. mars 2009 16:26 Byr sparisjóðurinn er tilbúinn til þess að mæta vandamálum Kanadafara sem getur ekki fengið erlendan tékka. „
Almenna reglan er að selja ekki erlenda tékka nema okkar viðskiptavinum. Við leitum þó allra leiða til að aðstoða fólki með slík mál og erum tilbúin að skoða hvert mál fyrir sig," segir markaðsfulltrúi Byrs, Salóme Rúnarsdóttir, varðandi vandkvæði Kanadafara sem vilja fá erlenda tékka þannig þeir geti borgað umsýslugjald vegna atvinnuleyfis út í Kanada. Vísir sagði fyrr í dag frá máli Finns Torfa Þorgeirssonar sem hefur reynt án árangurs að fá erlendan tékka til þess að greiða 150 dollara umsýslugjald sem þarf að borga vilji Íslendingar fá atvinnuleyfi í landinu. Hann fékk þau svör hjá sendiráði Kanada að tékkana væri hægt að nálgast í Byr og SPRON en báðir bankarnir hafa þá reglu að gefa ekki þá ekki út nema til viðskiptavina sinna. Ástæðan er meðal annars misferli sem hefur komið upp varðandi tékkana, þó í því sé engin dómur fólgin yfir þeim einstaklingum sem sækjast almennt eftir þeim. Án tékkanna er hinsvegar ekki hægt að fá atvinnuleyfi í Kanada, og því setur málið þann fjölda sem hyggst flytja til landsins í vonda stöðu. Þess má geta að hundruði manna sóttu kynningarfund um málið í Kennaraháskólanum í síðustu viku. Finnur sagðist jafnframt hafa fengið þau svör hjá Byr að fleiri einstaklingum, í sömu erindagjörðum og hann, hefði verið vísað frá af þessari ástæðu. Þá er illmögulegt að nálgast slíka tékka í stóru viðskiptabönkunum sem hafa verið þjóðnýttir. „Varðandi þetta ákveðna mál, þá þekki ég ekki alveg forsögu þess en ég hvet viðkomandi aðila til að hafa samband við okkur aftur þannig að við getum farið yfir málið með honum," segi Salóme og bendir á að hvert tilfelli sé skoðað fyrir sig og þau séu tilbúin að finna lausnir í tékkamálinu. Samkvæmt tilkynningu sem barst frá kanadíska sendiráðinu þá er ekki hægt að greiða umsýslugjaldið með reiðufé, né öðrum gjaldmiðlum en breskum pundum og kanadískum dollurum. Þá vill sendiherra Kanada, Anna Blauveldt, koma því á framfæri að sendiráðið hafi ekki tekið afstöðu til trúverðugleika bankanna, en í fyrri greininni sagði Finnur Torfi að kanadíska sendiráðið hefði bent honum á að nálgast tékkana hjá SPRON og Byr vegna ærumissis viðskiptabankanna þriggja eftir bankahrun. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk hjá Kaupþingi þá er bankinn með virka greiðslumiðlun og getur gefið út erlendan tékka fyrir þá sem vilja borga umsýslugjöld í Kanada. Þá vill Kaupþing einnig koma því á framfæri að bankinn er tilbúinn að aðstoða Finn Torfa vegna málsins en fulltrúi frá bankanum hafði samband við hann fyrr í dag. Þá má benda fleiri einstaklingum sem íhuga að fara til Kanada að vinna að hægt er að fá aðstoð í útibúum Kaupþings vegna erlendra tékka. Þegar haft var samband við Finn var hann þakklátur fyrir viðbrögðin.Þegar haft var samband við Finn var hann þakklátur fyrir viðbrögðin.
Tengdar fréttir Í vitlausum banka og kemst ekki til Kanada Ég byrjaði á því að fara í Landsbankann þar sem ég tók út orlof og ætlaði að greiða umsýslugjaldið," segir hinn tvítugi Finnur Torfi Þorgeirsson, sem er einn af fjölmörgum sem ætlar að nýta sér möguleikann á því að fara til Manitoba í Kanada og starfa þar í kreppunni. 18. mars 2009 11:35 Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira
Í vitlausum banka og kemst ekki til Kanada Ég byrjaði á því að fara í Landsbankann þar sem ég tók út orlof og ætlaði að greiða umsýslugjaldið," segir hinn tvítugi Finnur Torfi Þorgeirsson, sem er einn af fjölmörgum sem ætlar að nýta sér möguleikann á því að fara til Manitoba í Kanada og starfa þar í kreppunni. 18. mars 2009 11:35