Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þóra Kristín hlaut Blaðamannaverðlaun ársins Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, blaðakona mbl.is, hlaut Blaðamannaverðlaun ársins en þau voru veitt við hátíðlega athöfn á Hótel Holti. Við tilnefningu Þóru Kristínar sagði dómnefndin að Þóra flutt vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjölmiðlun. 21.2.2009 18:13
Sakar Samfylkinguna um skipulagða rógsherferð Formaður Framsóknaflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sakar Samfylkinguna um skipulagða rógsherferð gagnvart sér vegna fjármálastöðu sinnar og eiginkonu. Orðin lætur hann falla í helgarviðtali Fréttablaðsins sem kom út í dag. 21.2.2009 13:45
Mótmælendur vilja kvótann aftur til fólksins „Ætli það hafi ekki verið rúmlega þrjúhundruð manns þarna," segir Hörður Torfason en tuttugasti útifundurinn var haldinn í dag klukkan þrjú. Ný krafa var sett fram á fundinum, mótmælendur vilja kvótann til fólksins. 21.2.2009 17:42
Björguðu átta manns eftir ótrúlega hrakningar „Þetta voru þrír fullorðnir einstaklingar og svo fimm börn," segir Óskar Björn Óskarsson sem sótti átta manns til Reesnæs Strandvej í Danmörku en þau voru þar aðframkominn eftir að hafa verið svikinn um vinnu og pening. Um íslenska fjölskyldu er að ræða en með henni var vinur þeirra. Þau voru á þrítugsaldri en börnin frá tveggja ára aldri til ellefu ára. 21.2.2009 17:21
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Ólöf Nordal býður fram í nýju kjördæmi Ólöf Nordal, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi þar sem eiginmaður hennar er forstjóri Alcoa, býður sig nú ekki fram í heimabyggð fjölskyldunnar, og ætlar að taka þátt í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Vekur þetta athygli í ljósi þess að það er hefð fyrir því að bjóða sig fram í heimakjördæmum. 21.2.2009 12:57
Svisslendingar vilja hefna sín á Bandaríkjamönnum Svissneski þjóðarflokkurinn vill hefna sín á Bandaríkjamönnum fyrir að ógna bankaleynd stærsta banka landsins, UBS. 21.2.2009 18:23
Fámennt á mótmælafundi Fámennt var á tuttugustu mótmælunum sem voru haldin á Austurvelli í dag. Ræðumenn voru Marínó G. Njálsson ráðgjafi og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir framkvæmdarstýra. Fundarstjórinn var Hörður Torfason en forskrift fundarins er: Breiðfylking gegn ástandinu. 21.2.2009 15:51
Segir Samfylkinguna hanna pólitískar atburðarásir „Mér hefur þótt Samfylkingarfólk leggja helst til mikla áherslu á að hanna umræðu í stað þess að vera í pólitískri umræðu," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurður hvað hann eigi við með að vel skipulagður hópur innan Samfylkingarinnar hafi lagst í rógsherferð gegn sér og unnust hans. 21.2.2009 15:29
Galið að herða innheimtu Ríki og sveitarfélög hafa síðan fyrir jól farið mildari höndum um skuldara, segir framkvæmdastjóri Credit info á Íslandi. Því er ólíkt farið með ýmis einkafyrirtæki sem hafa hert á innheimtunni. Björn Þorri Viktorsson hæstaréttarlögmaður segir hagsmuni lánardrottna að skuldir verði færðar niður handvirkt. Strax. Enginn hafi hag af því að kreppan dýpki. Það sé í raun galið að ganga hart að skuldurum. 21.2.2009 13:12
Geir H. Haarde: Útilokar breytingar á stjórnarskrá fyrir kosningar Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, segir útilokað að hægt verði að afgreiða lög um breytingar á stjórnarskránni og kosningalögum fyrir komandi kosningar í vor. Hann segir forystumenn stjórnarflokkanna vilja fresta kosningum sem ekki komi til greina að hans mati. 21.2.2009 12:49
Íslendingar valdir að skotárás í Danmörku Svo virðist sem nokkrir Íslendingar hafi valdið skotárás Haslev í Danmörku í gærkvöldi. Lögreglan í Haslev segir í viðtali við Danska ríkisútvarpið að þetta hafi byrjað á bæjarkránni í Haslev í gærkvöldi. 21.2.2009 12:01
Frjálslyndar konur vilja lengja húsnæðislán Landssamband Kvenna í Frjálslynda flokknum skora á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að lengja um helming í húsnæðislánum. Þá eiga þær bæði við verðtryggð sem og erlend myntkörfulán. 21.2.2009 11:50
Tamil tígrar ráðast á Colombo Tvær flugvélar Tamíl tígra gerðu loftárás á Colombo höfuðborg Sri Lanka seint í gærkvöldi. Þær voru báðar skotnar niður. Önnur lenti í mýrlendi við flugvöll borgarinnar en hin steyptist á skrifstofu rikisskattstjórans. Hún stendur stendur skammt frá höfuðstövum flughersins og er talið að höfuðstöðvarnar hafi verið skotmarkið. 21.2.2009 11:33
Haldið sofandi eftir tunnuslys Tvær konur, sem slösuðust alvarlega þegar lok af mæjónestunnu þeyttist í höfuð þeirra, er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Borgarspítalans í Fossvogi. Líðan þeirra er stöðug en báðar gengust þær undir aðgerðir í nótt við áverkum sínum. Konurnar eru verst slasaðar á höfði og í andliti. 21.2.2009 10:54
Fíkniefnasali handtekinn í Vestmannaeyjum Í nótt var aðili handtekinn á heimili sínu í Vestmannaeyjum þar sem við leit hafði fundist nokkuð magn af ætluðu amfetamíni samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. 21.2.2009 10:22
Herða eftirlit með flugfélögum í kreppunni Danska flugmálastjórnin herðir eftirlit með flugfélögum af ótta við að slakað verði á öryggiskröfum til þess að bregðast við verri rekstraraðstæðum sem framundan eru. 20.2.2009 23:50
Nauðungaruppboðum fjölgar um 180% Auglýstum nauðungaruppboðum á eignum landsmanna hefur fjölgað um nærri 180 prósent á þessu ári. „Við erum á efnahagslegu Tjernobilsvæði," segir hæstaréttarlögmaður, sem segir nauðungaruppboð á heimilum fólks dapurlegar samkomur. 20.2.2009 20:03
Gangast undir aðgerðir eftir sprengingu í Þykkvabænum Konurnar tvær sem voru fluttar á slysadeild eftir sprengingu í kartöfluverksmiðju í Þykkvabænum eru báðar alvarlega slasaðar, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild. Þær eru báðar með áverka í andliti og þurfa að gangast undir aðgerðir. Það var um tvöleytið í dag sem sprenging varð í kartöfluverksmiðjunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun majones-ketill hafa sprungið með fyrrgreindum afleiðingum. 20.2.2009 17:36
Starfshlutfall hugsanlega skert hjá blaðamönnum Fréttablaðsins Til greina kemur að allir starfsmenn Fréttablaðsins sem vinna í 100% starfi muni fara í 90 prósent starfshlutfall frá og með næstu mánaðamótum. Þá verður fjórum blaðamönnum sagt upp störfum. 20.2.2009 18:28
29 gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík Alls gefa 29 kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir þingkosningar 25. Apríl næstkomandi. Prófkjörið fer fram dagana 13. - 14. mars næskomandi. Framboðsfrestur rann út klukkan fimm í dag. 20.2.2009 18:00
Fagna viljayfirlýsingu um Tónlistarhúsið Samtök ferðaþjónustunnar fagna því að ríkið og Reykjavíkurborg skuli hafa undirritað viljayfirlýsingu um að ljúka byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins. ,,Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand þarf að skoða afleiðingar þess að hafast ekki að og ljóst að miklir fjármunir færu í súginn yrði hætt við bygginguna að sinni. Hálfklárað stórhýsi í miðbæ Reykjavíkur myndi þar að auki setja dapurlegan svip á bæinn,“ segir í tilkynningu. 20.2.2009 15:44
Skáli Íslendings afhentur í dag Ferðaþjónustufyrirtækið Íslendingur ehf., tók í dag við Skála Íslendings úr höndum verktakafyrirtækisins Spangar sem stýrt hefur framkvæmdum við verkið á Fitjum í Reykjanesbæ. 20.2.2009 21:11
Lilja Mósesdóttir gefur kost á sér í forvali Vinstri grænna Lilja Mósesdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til setu í öðru sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir næstu kosningar. 20.2.2009 20:16
Bæjarstjórinn í Garði vill á þing Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjörkjördæmi. 20.2.2009 16:48
Starfsfólki í Þykkvabæ mjög brugðið Starfsfólkinu í Kartöfluverksmiðjunni í Þykkvabæ er mjög brugðið eftir að tvær starfsstúlkur slösuðust alvarlega í dag. 20.2.2009 16:47
Sprenging í kartöfluverksmiðju - tveir alvarlega slasaðir Tvær konur voru fluttir alvarlega slasaðir á slysadeild Borgarspítalans með þyrlu, eftir að sprenging varð í kartöfluverksmiðju í Þykkvabæ um tvö leytið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis mun Majones ketill hafa sprungið með þessum afleiðingum. 20.2.2009 15:54
Sækist eftir forystusæti í Reykjavík Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður dagana 13. og 14. mars næstkomandi vegna komandi Alþingiskosninga. Sigurður Kári sækist eftir forystusæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og óskar eftir stuðningi í 2.-3. sæti í prófkjörinu. 20.2.2009 15:47
Þriggja bíla árekstur við Hamraborg Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag. Rúta og tvær fólksbifreiðar rákust saman og varHafnarfjarðarvegi lokað um stund. Umferð hefur verið opnuð á nýjan leik. 20.2.2009 15:33
Anna Pála vill 5. sætið hjá Samfylkingunni í Reykjavík Anna Pála Sverrisdóttir, meistaranemi í lögfræði, sækist eftir 5. sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. 20.2.2009 15:08
Ákvörðun um hvalveiðar óskiljanleg Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum vonbrigðum með að ákvörðun Einars K. Guðfinnsonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um veiðar á hrefnu og langreyði skuli standa. Samtökin segja hana óskiljanlega. 20.2.2009 14:33
Tuttugasti útifundur Radda fólksins Raddir fólksins standa fyrir útifundi á Austurvelli á morgun en þetta er tuttugasti laugardaginn í röð sem samtökin boða til mótmælafundar. Sem fyrr er fundað undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu. 20.2.2009 14:08
Gefur ekki kost á sér í Suðurkjördæmi Helga Sigrún Harðardóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, sækist ekki eftir sæta á framboðslista flokksins í kjördæminu. Helga Sigrún hyggst tilkynna um helgina hvort hún gefi kost sér til Alþingis og þá í hvaða kjördæmi. 20.2.2009 13:50
Hvergi verði slegið af í baráttunni gegn umferðarslysum Í nýrri ályktun frá Umferðarráði er bent á að það sem af sé ári hafi þrír einstaklingar látist í umferðarslysum. „Það er óásættanlegt,“ segir einnig. „Þrátt fyrir að fjöldi látinna í umferð hafi verið með lægsta móti á síðasta ári er full ástæða til að halda vöku sinni og slá hvergi af í baráttunni gegn umferðarslysum,“ segir einnig. 20.2.2009 13:45
ESB-aðild hefur lítil áhrif á yfirráðarétt orkuauðlinda Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, segir að ekki sé hægt að halda fram hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi hafa veruleg áhrif á stöðu landsins og möguleika varðandi yfirráðarétt og nýtingu jarðrænna auðlinda. Þetta kom fram í erindi Guðna á aðalfundi Samorku um íslenskar orkulindir og ESB. 20.2.2009 13:30
Sýndarsjúklingurinn Hermann á ferð og flugi á morgun Sýndarsjúklingurinn Hermann verður fluttur frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi á morgun með sjúkrabifreið yfir á Háskólatorg. Flutningarnir munu verða strax upp úr hádegi og má reikna með ýmsum uppátækjum í Hermanni. 20.2.2009 13:14
Ingi Björn snýr aftur Ingi Björn Albertsson, fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til Alþingis á nýjan leik en hann sat í átta ár þingi frá 1987 til 1995. Ingi Björn hyggst taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en framboðsfrestur rennur út í dag. 20.2.2009 13:10
Gefur kost á sér í kraganum Íris Björg Kristjánsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-5. sæti á prófkjörslista Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. 20.2.2009 13:01
Skúli vill 1. eða 2. sætið í Suðurkjördæmi Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1. - 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. 20.2.2009 12:42
Bankarnir sýna Alþingi óvirðingu Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kvartaði undan því á Alþingi í morgun að enn hafi ekki borist svör við tveggja mánaða gamalli fyrirspurn frá henni um bifreiðahlunnindi fyrrverandi og núverandi starfsmanna bankanna. Hún sagði bankanna sýna Alþingi óvirðingu. 20.2.2009 12:29
Skókastarinn iðrast einskis Íraski blaðamaðurinn sem kastaði skónum sínum að George Bush fyrrverandi bandaríkjaforseta iðraðist einskis þegar réttarhöldin yfir honum hófust í dag. 20.2.2009 12:25
Biskup gerður landrækur Kaþólski biskupinn sem neitaði að helförin hefði átt sér stað hefur verið gerður landrækur frá Argentínu. 20.2.2009 12:22
Reiknað með að búðarþjófnaðir kosti níu milljarða á árinu Áætlað er að stolið verði fyrir um sjö milljarða króna úr verslunum á Íslandi á þessu ári og að kostnaður fyrirtækjanna vegna þessa verði um níu milljarðar króna. 20.2.2009 12:05
Í framboð fyrir VG Brynja Björg Halldórsdóttir býður sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík. Hún er formaður Ungra Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu og leggur mesta áherslu á kvenfrelsismál, umhverfisvernd, og málefni ungs fólks. 20.2.2009 11:43
ASÍ ekki treystandi fyrir verðlagseftirliti Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri 10-11, segir að Alþýðusambandi Íslands sé ekki treystandi fyrir verðlagseftirliti. Hann segir að enn einu sinni hafi starfsmenn verðlagseftirlits ASÍ gerst uppvísir að því að skrá hjá sér röng verð í verðkönnun. 20.2.2009 11:33
Sambýlismaðurinn laus úr gæsluvarðhaldi Sambýlismaður konunnar sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar grunaður um aðild að andláti konunnar. Sá grunur stendur enn að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar. Ekki liggur fyrir niðurstaða krufningar. 20.2.2009 11:31