Fleiri fréttir

Flugslys í Súdan - 100 látnir

Súdönsk farþegaflugvél, með um 200 farþega innanborðs, varð alelda skömmu eftir að hún lenti á flugvellinum í Khartoum, höfuðborg Súdan, síðdegis í dag. CNN greinir frá því að um 100 manns séu látnir. Björgunarmenn vinna að því að slökkva eldinn en talið er að hann hafi kviknað efir að farþegavélinn rann út af flugbrautinni í lendingunni.

Smábörn tékkuð tvisvar inn

Hópur Íslendinga varð strandaglópar á Kanaríeyjum á leiðinni til Teneriffe seinni partinn í dag. Ástæðan voru mistök við innritun í vél Heimsferða í Leifsstöð í morgun.

30 stúlkur bólusettar gegn leghálskrabbameini

Tæplega þrjátíu stúlkur á Íslandi hafa verið bólusettar gegn leghálskrabbameini á kostnað foreldra sinna. Bóluefnið fæst í apótekum en kostar sitt. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvenær eða hvort stúlkur verða bólusettar fyrir þessu krabbameini

Söfnuðu 18 milljónum með sölu á notuðum fötum

Á morgun mun fatasöfnunarverkefni Rauða kross Íslands afhenda neyðaraðstoða Alþjóða Rauða krossins 18 milljón króna sem söfnuðust við sölu á notuðum fötum sem gefin voru til verkefnissins.

Sókn í gróðursetningu trjáa í Reykjavík

Skógræktarfélag Reykjavíkur og Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar hafa gert með sér samning um gróðursetningu 460 þúsund skógarplantna í Heiðmörk, Esjuhlíðum og Úlfarsfelli.

Kenískur ráðherra lést í flugslysi

Vegmálaráðherra Kenía og aðstoðarráðherra létust þegar flugvél hrapaði til jarðar og hafnaði á húsi í hinu afskekkta Kojonga-héraði ekki langt frá Masai Mara verndarsvæðinu í Kenía.

Stóra bakarísmálið: Lesendur tjá sig

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir réttmætum spurningum varpað upp í umfjöllun Vísis um starfshætti bakaría og stórmakaða. Viðbrögð lesenda við fréttum um frosna kleinuhringi og pólsk brauð eru sterk.

1800 milljarðar gufa upp í Írak

Um 23 milljarðar dollara, jafnvirði um 1800 milljarða íslenskra króna, hafa gufað upp í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Þetta fullyrða fréttamenn þáttarins Panorama á BBC sem rannsakað hafa hvert fjármunir sem verja átti í uppbyggingarstarf fóru.

Stelpur stjórna ungliðahreyfingunum

Konur gegna nú formennsku í þremur ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka. Það mun vera í fyrsta sinn það gerist og er nú meirihluta ungliðahreyfinganna stýrt af konum.

Dæmdur vegna ástarjárna og rassakrems

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Stefán Karl Lúðvíksson, eiganda erótísku verslunarinnar Amor, til að greiða 40.000 krónur í sekt fyrir að flytja til landsins ástarhandjárn og sleipiefnið Anal-ease.

Eldsneytisþjófnaður í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú eldsneytisþjófnað þar í bæ sem tilkynnt var um í síðustu viku.

Steingrímur vill að aðdragandi Baugsmálsins verði upplýstur

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna vill að aðdragandi Baugsmálsins verði upplýstur. ,,Ég tók undir það á sínum tíma að það þyrfti að upplýsa um aðdraganda málsins og ég er enn sama sinnis." Aðdragandi og upphaf málsins var ,,umlukið ákveðinni dulúð" og Steingrímur segir að það væri ,,gagnlegt að fá fram bakgrunn málsins og draga af því lærdóm." Hann bendir þó að í dómi Hæstaréttar hafi verið sakfelling og því verði ,,fólk að gæta að fella ekki einhliða dóma í framhaldinu þó niðurstaðan hafi verið ansi rýr."

Árangurslaus fundur hjá ríki og hjúkrunarfræðingum

Kjarafundur samninganefndar ríkisins með Félagi íslenksra hjúkrunarfræðinga í morgun skilaði engum árangri og hefur næsti fundur ekki verið boðaður fyrr en eftir tvær vikur. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir áfram unnið að undirbúningi aðgerða til þess að knýja á um samning.

Frjókornin farin á stjá

Nú þegar flestir gleðjast yfir sumarveðrinu er þó einn hópur manna ekki eins glaður og eru það frjóofnnæmissjúklingar. Síðustu 5 sumur hafa verið mikil frjókornasumur þannig að spurningin er hvort sumarið í ár verði einhver eftirbátur síðustu ára með frjókorn að gera.

Írönum hótað frekari refsiaðgerðum

Bandaríkin og Evrópusambandið hafa enn á ný hótað írönum hertum aðgerðum láti þeir ekki af auðgun úrans þegar í stað. Til stendur að herða refsiaðgerðirnar gegn landinu og var það upplýst á fundi sem George Bush hélt í Slóveníu en forsetinn bandaríski er nú í sinni síðustu heimsókn til Evrópu.

Vilja fund vegna skjálfta á Suðurlandi

Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson, þingmenn Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hafa farið þessi á leit við fyrsta þingmann kjördæmisins, Árna M. Mathiesen, að hann boði alþingismenn Suðurkjördæmis til fundar vegna nýafstaðinna jarðskjálfta.

Bush telur hægt að gera loftlagssamning fyrir lok kjörtímabils

George Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að enn væri hægt að ná einhvers konar samningi á heimsvísu til þess að berjast gegn loftlagsbreytingum fyrir lok kjörtímabil hans sem endar byrjun 2009. Þetta sagði hann á fréttafundi í Slóveníu í dag þar sem hann heldur fund með æðstu mönnum Evrópusambandsins í Slóveníu.

Þorvaldur Gylfason krefur Skuggahverfi um milljónir

"Þetta er vegna galla á íbúð þeirra hjóna," segir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Þorvalds Gylfasonar og Önnu Karítasar Bjarnadóttur, eiginkonu hans. Aðalmeðferð í máli þeirra hjóna gegn 101 Skuggahverfi hf. fór fram í Héraðsdómi í gær.

Kerstin Fritzl til meðvitundar

Kerstin Fritzl, sem haldið var nauðugri í kjallara á heimili föður síns í 18 ár, er komin til meðvitundar. Frá þessu greindu spítalayfirvöld í Austurríki í dag en sögðu jafnframt að hún væri enn nokkuð veik.

Sjö foreldrar létust frá 12 börnum vegna vímuefnaneyslu

Sjö foreldrar sem höfðu haft forsjá tólf barna létust frá þeim af völdum vímuefnaneyslu og geðræns vanda á árinu 2007 og til loka maí í ár. Þetta kemur fram í upplýsingum sem Barnaverndarstofa aflaði í kjölfar mikillar umræðu í fjölmiðlum um aðstæður barna sem fíklar létust frá.

Borgarstjóri heimsækir Færeyjar

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri er staddur í Færeyjum í formlegri heimsókn. Þangað fór hann ásamt föruneyti í gærkvöldi og er tilgangur ferðarinnar að rækta vinabæjartengs á milli Reykjavíkur, Nuuk á Grænlandi og Þórsöfn í Færeyjum.

Menn Mugabes myrða andstæðinga hans

Seinni umferð forsetakosninganna í Simbabve síðar í þessum mánuði getur aldrei farið fram með lýðræðislegum hætti að mati mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. Í nýrri skýrslu samtakanna eru fjörutíu morð á stjórnarandstæðingum rakin til liðsmanna Mugabe, forseta landsins.

Ríkissaksóknari rannsakar ekki Baugsrannsókn

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir að embættið muni ekki rannsaka aðdraganda Baugsmálsins og hvernig farið var með lögreglu- og ákværuvald í málinu. ,,Það stendur ekki til og hefur ekki verið rætt sérstaklega."

Vinnuvélar og vörubílar seldir úr landi

Tugir vinnuvéla og stórra vörubíla eru verkefnalaustir um allt land. Vegna gengisbreytinga og hækkunar á olíuverði eru bílarnir reknir með miklu tapi. Til að losa sig út úr skuldum eru menn farnir að selja bílana úr landi.

Pólsk brauð í bakaríum Myllunnar

Fyrrverandi bakari hjá Myllunni segir brauðið sem Myllan selur í Hagkaupum flutt inn frá Póllandi; honum hafi verið sagt að ljúga þegar fólk spurði hvort bakkelsi væri bakað á staðnum.

Próflaus á bíl kærastans

Lögreglan á Akranesi hafði í síðustu viku afskipti af ungri konu á rúntinum vegna einkennilegs ökulags hennar.

Sextán milljóna króna leikritunarsjóður við Þjóðleikhúsið

Hjónin Bjarni Ármansson og Helga Sverrisdóttir hafa í samvinnu við Þjóðleikhúsið stofnað sjóð sem hefur það að markmiði að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið. Stofnframlag sjóðsins er 16 milljónir króna, en sjóðurinn mun starfa frá árinu 2008 til ársins 2010 eftir því sem segir í tilkynningu leikhússins.

Áskrifendur tölvuleiksins EVE fleiri en Íslendingar í árslok?

Nú stendur yfir uppfærsla á hinum íslenska tölvuleikjarheimi EVE-Online sem kallast Empyrean Age sem myndi útleggjast á íslensku sem Öld eldhiminsins. Gengur þessi nýja útfærsla út á að stríð er hafið í heiminum á milli hinna fjöggurra kynþátta sem leikmenn geta valið sér að tilheyra. CCP, fyrirtækið sem heldur úti leiknum, gerir ráð fyrir að þessi uppfærsla eigi eftir að fjölga áskrifendum til muna og vonast til þess að ná fjölda íslensku þjóðarinnar í árslok.

Kallar klárlega á frekari skoðun sprautunotkunar

„Ég stefni á geðið og eitthvað vímuefnatengt,“ sagði Jóna Sigríður Gunnarsdóttir, sem útskrifast hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands næstkomandi laugardag, í spjalli við Vísi.

Hundruð farþega bíða eftir tollinum

Norræna lagði að höfn í Seyðisfirði klukkan rúmlega níu í morgun. Samkvæmt upplýsingum á sýsluskrifstofunni á Seyðisfirði átti skipið að leggja að höfn klukkan 12 að hádegi og því verður það ekki tollafgreitt fyrr enn þá.

Vill rannsaka rannsókn Baugsmálsins

Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, vill sjálfstæða rannsókn á Baugsmálinu. "Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds og eðlilegt að hann myndi stjórna rannsókn á málinu," segir hann.

Vatni veitt úr jarðskjálftalóni í Kína

Kínverskum hermönnum hefur tekist að beina vatni, sem safnaðist upp í lón á skjálftasvæðunum þar í landi, niður í yfirgefinn bæ og þannig minnkað hættuna á að vatnið ógni lífi milljóna manna.

Ólafur Skúlason biskup látinn

Herra Ólafur Skúlason biskup lést í nótt. Hann hafði um nokkurt skeið átt við veikindi að stríða og var á sjúkrahúsi fram að því síðasta. Ólafur var fæddur 29. desember 1929 í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, sonur þeirra Sigríðar Ágústsdóttur húsmóður og Skúla Oddleifssonar umsjónarmanns.

Rak vörubílspall upp í háspennulínu í Skorradal

Mildi þykir að vörubílstjóri skildi sleppa lifandi og óskaddaður eftir að pallurinn á bílnum rakst upp í 19 þúsund volta háspennulínur í Skorradal í gær og sleit tvær af þremur línum.

Sjá næstu 50 fréttir