Fleiri fréttir

Skosk gervihönd hlýtur MacRobert-verðlaunin

Hönnuðum skoskrar gervihandar hafa verið veitt hin virtu MacRobert-verkfræðiverðlaun en höndin hefur meðal annars verið grædd á hermenn sem börðust í Írak.

Olíuverð áfram hátt segja spár

Bíleigendum, sem brá illa við í gær þegar bensínlítrinn fór yfir 170 krónur og dísillítirnn í tæpar 180, geta ekki einu sinni sætt sig við að hámarkinu sé náð.

Missti nær auga við árás uglu

Sænskur náttúruljósmyndari var heppinn að missa ekki sjónina þegar valugla gerði atlögu að honum. Ljósmyndarinn var staddur í Enviken við að mynda hreiður uglunnar.

Norskra feðga leitað í alla nótt

Björgunarsveitarmenn af Norðaustur- og Austurlandi hafa í alla nótt leitað að fertugum Norðmanni og átta ára syni hans á hálendinu, en þeir hafa ekkert látið ættingja heyra frá sér síðan á fimmtudagskvöld.

Fátækum fjölgar í Bandaríkjunum

Tæpar 29 milljónir Bandaríkjamanna fengu matarmiða í mars en það er hækkun um eina og hálfa milljón frá því árinu áður. Þetta er talið vera áþreifanlegt merki um að fátækt sé að aukast í Bandaríkjunum.

Umferðartollur tekinn upp í Manchester

Manchester verður bráðlega önnur borgin á Englandi til þess að taka upp umferðartoll í miðbæ sínum. Þetta er gert til þess að vinna gegn umferðarteppum og draga úr losun gróðurhúsaefna.

Kennedy kominn heim eftir erfiða aðgerð

Edward Kennedy, höfuð hinar margrómuðu bandarísku Kennedy fjölskyldu, er kominn aftur til síns heima eftir vel heppnaða skurðaðgerð. Læknar fjarlægðu góðkynja æxli í heila Kennedy fyrir viku.

Samkynhneigður biskup gengur að eiga unnusta sinn

Gene Robinson, biskup í bandarísku biskupakirkjunni gekk í dag að eiga unnusta sinn til 19 ára, Mark Andrew. Athöfnin var borgaraleg og fór fram í Boston í Massachusettsríki. Massachusetts er eitt af fjórum ríkjum í Bandaríkjunum sem heimilar hjónaband samkynhneigðra.

Boeing reisir öryggisgirðingu

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að semja við fyrirtækið Boeing um byggingu umdeildrar öryggisgirðingar á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut

Um klukkan 14:00 var tilkynnt um fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut skammt austan við Grindavíkurveg. Ökumenn þriggja bifreiða höfðu stöðvað en þá kom sá fjórði og ók aftan á öftustu bifreiðina. Hinar þrjár lentu svo saman við höggið. Tvær bifreiðar voru óökufærar eftir óhappið. Tveir ökumenn fundu til eymsla í háls og baki.

Jón Steinar konungur sératkvæðanna

Enginn hæstaréttardómari hefur skilað viðlíka fjölda sératkvæða í dómum réttarins og Jón Steinar Gunnlaugsson. Umdeildustu dómararnir skila flestum sératkvæðum. Lögspekingar telja þau ýmist eðlilegan fylgifisk flókinna mála eða merki um flokkadrætti og slæman samstarfsanda í Hæstarétti.

Eldur á Álfaskeiði

Eldur kom upp í tveggja hæða íbúð við Álfaskeið í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan 16 í dag. Einn drengur var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp en sakaði ekki. Íbúðin er mikið skemmd á efri hæðinni en slökkvilið hefur ráðið niðurlögum eldsins. Eldsupptök eru ókunn.

Sóley Tómasdóttir: Kynjaskipt leikföng hefta val barna

Eins og Vísir greindi frá í dag eru leikföngin sem fylgja barnaboxum á McDonald's þessa dagana skipt eftir kynjum og fá strákar myndir af leikmönnum á EM og stelpur leikföng tengt dansi. Vísir leitaði til Sóleyjar Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa og femínista hvað henni fyndist um að McDonald‘s væru með kynjaskipt leikföng.

Dísilolíulítrinn nálgast 200 krónur

Dísilolíulítrinn nálgast nú óðfluga 200 króna markið eftir að hann hækkaði um sjö krónur í dag hjá bæði Shell og Olís. Þá hækkaði bensínlítrinn um sex krónur hjá félögunum báðum.

Guðni: Ekki hægt að greiða sjómönnum bætur

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir seinagang í viðbrögðum við áliti mannréttindanefndar SÞ varðandi kvótakerfið. Hann segir að ófremdarástand hefði skapast ef sjómönnum yrðu greiddar bætur.

Átta árangurslaus fjárnám hjá formanni bæjarráðs

Sýslumaðurinn í Keflavík hefur gert átta árangurslaus fjárnám hjá Herði Harðarssyni, formanni bæjarráðs í Vogum. Hörður segist ætla að axla ábyrgð ef málið fer í gjaldþrot. Hann segir heift og persónuleg illindi hlaupin í deilur bæjarstjórna Voga.

Vill hefja endurskoðun á fiskveiðikerfi strax

Karl V. Matthíasson, varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, segist hafa viljað sjá í svarbréfi ríkisstjórnarinnar til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna að skýrar væri kveðið á um tímasetningar um endurskoðun og uppstokkun núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis. Af því leyti segist hann vera glaður með bréfið en að endurskoðunarvinnan þurfi að hefjast strax.

Segja samgönguyfirvöld vinna gegn Sundagöngum

Umhverfis- og samgönguráð borgarinnar gagnrýnir að samgönguyfirvöld skuli vinna gegn Sundagöngum, miklu hagsmunamáli landsmanna allra, á meðan þrenn jarðgöng á landsbyggðinni séu sett á framkvæmdaáætlun.

Lokuðu kjarnorkuveri vegna raksápu

Raksápa varð til þess að sænsk yfirvöld ákváðu í síðasta mánuði að loka Oskarshamn-kjarnorkuverinu af ótta við hryðjuverk. Frá þessu greina norrænir miðlar í dag.

Samfylkingin hræðist ekki Óskar

"Það eru einhverjir framsóknarmenn sem hafa áhyggjur af því að við séum ekki stolt af Óskari Bergssyni en það er rangt," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Fæti barns bjargað í móðurkviði

Ástralskir skurðlæknar björguðu fæti barns sem var enn í móðurkviði þegar móðirin var aðeins komin 22 vikur á leið. Aðgerðin var framkvæmd vegna þess að aukavefur úr leginu vafðist um fætur fóstrins. Lasergeisli var notaður til þess að skera vefinn utan af vinstri fætinum en hægri fóturinn var of fastur í vefunum.

Rýtingur í bakið

Kormákur Geirharðsson, vert á Ölstofu Kormáks og Skjaldar, segir ekki koma til greina annað en að þeim takist að hnekkja ákvörðun borgaryfirvalda um að stytta opnunartíma Ölstofunnar og Vegamóta en bréf þess efnis barst í síðustu viku eins og greint var frá í Fréttablaðinu á laugardag. Hann er sérstaklega ósáttur við að fá bréfið í kjölfarið á fundi sem hann sat með þeim sem með þessi mál fara, þar á meðal borgarstjóra og lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.

Steingrímur segir svarbréf ríkisstjórnarinnar ,,galopið og loðið"

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir svarbréf Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna vera ,,næstum því eins aumt og það getur verið." Hann segir flokk sinn gagnrýna viðbrögð ríkisstjórnarinnar ,,harðlega."

Kynjaskipt leikföng í barnaboxum McDonald’s

Nú þegar Evrópumótið í fótbolta er hafið eru komin ný leikföng í barnabox McDonald´s skyndibitakeðjunnar, fóboltamyndir af leikmönnum í keppninni. Myndirnar eru hins vegar ætlaðar strákum en fyrir stúlkurnar eru leikföng tengd dansi. McDonald’s á Íslandi fær leikföngin að utan en segir þetta fara eftir því sem flestir krakkarnir vilja. Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna telur að það ætti að vera sömu leikföng eða að minnsta kosti val.

Á landleið með fullfermi af síld

Að minnsta kosti tvö síldveiðiskip eru nú á landleið með fullfermi úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem þau fengu skammt frá Jan Mayen og þar eru sjö önnur íslensk skip að veiðum.

Bakarísstelpa stígur fram: Hnetuvínarbrauð afþídd í bakaríum

„Bakkelsið kom næstum allt inn frosið og svo vorum við látin hita það upp," segir Heiðrún Backmann, fyrrverandi starfsmaður Bakarameistarans. Svo virðist sem bakaríin baki ekki bakkelsi á staðnum heldur láti afgreiðslustúlkur hita upp forbakaðar og frostnar vörur.

Vélhjólamaður á batavegi

Líðan mannsins sem slasaðist í mótorhjólaslysi á Sæbraut í gær er stöðug og er hann á batavegi.

Hundrað breskir hermenn fallnir í Afganistan

Eitt hundrað breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá því Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra réðust inn í landið í október 2001 og hröktu talíbana frá völdum.

Vara ferðamenn við óvæntum hættum

Skoskur ferðamaður slasaðist þegar hann féll í íshelli í Sólheimajökli í gær. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sett upplýsingaefni inn á Netið til að vara erlenda ferðamenn við ýmsum óvæntum hættum hér á landi.

Tilkynnti á Netinu að hann ætlaði að láta til skarar skríða

Maður sem myrti sjö í hnífaárás í Japan í gær tilkynnti hvar og hvenær hann ætlaði að láta til skarar skríða í netskilaboðum skömmu áður en ódæðin voru framin. Japönsk yfirvöld íhuga að takmarka veiðihnífaeign þar í landi en hörð byssulöggjöf er sögð hafa fækkað byssuárásum til muna.

Alþingi gefið utan undir með bráðabirgðalögum

Formaður þingflokks frjálslyndra segir ríkisstjórnina hafa gefið Alþingi utan undir þegar hún samþykkti bráðabirgðalög um Viðlagatryggingu Íslands vegna Suðurlandsskjálftans. Hann segir að bregðast verði við sívaxandi áráttu einstakra ráðherra til að beita bráðabirgðalagavaldi.

Ráðherra boðar gangskör í geðheilbrigðismálum

Geðheilbrigðismál verða tekin til sérstakrar endurskoðunar þegar starfshópur verður settur á laggirnar í sumar. Munu málefni réttargeðdeildarinnar á Sogni falla undir þá endurskoðun. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í samtali við Vísi.

Meismaður hafði slasað tvo fyrir handtöku

Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum telur lögreglumenn ekki hafa beitt of miklu harðræði þegar maður var handtekinn fyrir utan félagsheimilið á Patreksfirði eftir sjómannadagsball þar í bæ í síðustu viku. Hann segir að það hefði verið ábyrgðarhluti að láta manninn ganga lausan þar sem hann hefði verið búinn að slasa tvo menn.

Lúðvík sammála Gunnari og Kristjáni Þór

Búist er við verulegum samdrætti á tekjum ríkissjóðs eins og spár fjármálaráðuneytinsins gera ráð fyrir. Lúðvík Bergvinsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar tekur undir með Gunnari Svavarssyni formanni fjárlaganefndar og Kristjáni Þór Júlíussyni varaformanni fjárlaganefndar og segir að fjárlög ,,verði að taka mið af ástandi efnahagsmála hverju sinni."

Hvað hefði Hillary getað gert við peningana?

Hillary Clinton eyddi svimandi háum fjárhæðum í tilraun sinni til að tryggja sér tilnefningu demókrata til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Dagblaðið New York Daily News hefur tekið saman kostnaðinn og gefur henni nokkur dæmi um hvað hún hefði getað gert við peningana annað en að henda þeim á glæ í kosningabaráttu sem tapaðist.

Sjá næstu 50 fréttir