Fleiri fréttir

Ný flugstöð á Heathrow flugvelli

Fimmta flugstöðin á Heathrow flugvelli í London var tekin í notkun í nótt þegar vél á vegum Brithish Airways, sem var að koma frá Hong Kong, lenti við hana.

Keilufellsmaður ófundinn

Pólverjinn, sem lögregla lýsti í gær eftir, vegna rannsóknar á Keilufellsmálinu svonefnda, er ófundinn. Ekkert liggur fyrir um það hvort hann hefur komist úr landi, eða dvelur hér enn Nú sitja fjórir Pólverjar og einn Lithái í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur þeirra, sem kærðu úrskurð Héraðsdóms til réttarins.-

Lögregla kom í veg fyrir flótta af leikskólanum

Betur fór en á horfðist þegar 5 ára drengur var að príla yfir grindverk við leikskóla á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Hinn ungi klifurkappi kom nefnilega ekki standandi niður heldur datt á gangstéttina en fallið var nokkuð.

Rúmeni og Þjóðverji ætluðu með milljónir úr landi

Mennirnir tveir sem handteknir voru í Leifsstöð í gær með fullar ferðatöskur af peningum sem þeir höfðu rænt úr hraðbönkum í Reykjavík gætu hafa náð út allt að tíu milljónum króna samkvæmt heimildum Vísis. Þeir eru frá Rúmeníu og Þýskalandi.

Þorsteinn er frumheimildin

Karl Th. Birgisson, ritstjóri tímaritsins Herðubreiðar, segir að frumheimildin á bak við símtals söguna sem sögð er í palladómi um Styrmi Gunnarsson ritstjóra Morgunblaðsins í síðasta tölublaði sé Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag nú fyrir stundu.

Kínverskar konur handteknar með fölsuð vegabréf

Tvær kínverskar konur voru handteknar í Leifsstöð á föstudaginn langa þegar þær reyndu að komast inn í landið á fölsuðum vegabréfum. Konurnar eru á þrítugsaldri og framvísuðu þær suður-kóreskum vegabréfum sem búið var að falsa.

Frönskum dátum í Afganistan fjölgar

Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, lýsti því yfir í dag að Frakkar hyggðust senda fleiri hermenn til Afganistan til þess að styðja við aðgerðir NATO í landinu. Sarkozy er í opinberri heimsókn á Bretlandi sagði í dag að formlega yrði tilkynnt um fjölgunina á næsta NATO fundi sem fram fer í Búkarest í næstu viku.

Lögmaður dagskrárstjóra vill að úrskurðarnefnd endurskoði mál þeirra

Lögmaður Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra hjá Ríkisútvarpinu, hefur óskað eftir því að úrskurðarnefnd um upplýsingamál taki mál þeirra til endurskoðunar. Ritstjóri Vísis segir kröfuna einungis til þess fallna að drepa málinu á dreif. Magnús Geir Eyjólfsson.

Teknir með milljónir í ferðatöskum í Leifsstöð

Tveir erlendir karlmenn voru handteknir í Leifsstöð í gær með milljónir íslenskra króna í ferðatöskum. Talið er að þeir hafi ætlað að smygla peningunum úr landi en þá tóku þeir út úr hraðbönkum hér á landi um páskana. RÚV greindi frá þessu í kvöldfréttum sínum.

Gæsluvarðhald yfir einum árásarmannana staðfest

Pólverjinn sem handtekinn var í Reykjanesbæ í gær í tenglsum við rannsókn á árás sem gerð var í Keilufelli um helgina var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald nú fyrir stundu. Fimm eru nú í haldi vegna málsins en lögregla leitar enn að Tomasz Krzysztof Jagiela sem grunaður er um aðild.

Húsunum við Hverfisgötu verður lokað

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á hörfuðborgarsvæðinu segir að forsvarsmenn Festa sem eiga húsin við Hverfisgötu sem ítrekað hefur kviknað í síðustu mánuði, ætli að gera gangskör að því að loka húsunum tryggilega. Hann fór í vettvangsferð á Hverfisgötuna í morgun og segir að sér hafi verið töluvert brugðið.

Dæmdur kynferðisbrotamaður áfram í haldi

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Anthony Lee Bellere, dæmdum kynferðisbrotamanni, á meðan mál hans er fyrir Hæstarétti, en þó ekki lengur en til 30. maí.

Heift og hættuleg vopn í Keilufelli

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveim þeirra sem grunaðir eru um að hafa ráðist inn í hús í Fellahverfi á laugardaginn síðasta vopnaðir bareflum og lúskrað á sjö Pólverjum sem þar voru

Eldri handrit Shakespeares brátt rafræn

Tvö bókasöfn í Bandaríkjunum og Bretlandi hyggjast eiga í samvinnu um að birta öll handrit að leikritum Williams Shakespeare eldri en frá 1641 á Netinu.

Ránstilraun á Akureyri

Um klukkan 21.00 í gærkvöldi ruddist grímuklæddur maður inn í verslunina Hreiðrið á Akureyri og ógnaði þar afgreiðslukonu með barefli og krafðist þess að fá peninga afhenta.

Barni bjargað úr brunni eftir 27 tíma

Tveggja ára gamalli stúlku var bjargað í dag úr brunni á Indlandi eftir að vera föst þar í 27 klukkustundir. Vandana var að leika sér þegar hún féll tæpa 14 metra niður óvarinn brunninn skammt frá höfuðborginni New Delhi. Herinn var kallaður til aðstoðar og björgunarmenn grófu göng niður við hlið brunnsins þar sem Vandana sat föst.

Eigandinn á Bergstaðastræti: Útigangsfólk hafði ekkert leyfi

Þorsteinn Pálsson, einn eigenda BBH byggingafélags sem á lóðina að Bergstaðastræti 16, segir það koma sér algjörlega í opna skjöldu ef útigangsfólk haldi til í gámi á lóðinni eins og greint hefur verið frá í dag. Hann segir það ekki rétt sem haldið hefur verið fram að útgangsfólkið hafi dvalið þar með sínu leyfi.

Kínverjar ósáttir við sendingu eldflaugahluta

Kínversk stjórnvöld lýstu í dag andúð sinni á sendingu frá Bandaríkjunum sem innihélt hluta í skotflaugar og fór að sögn bandarískra hermálayfirvalda til Taiwan fyrir slysni.

Árni ekki vanhæfur heldur Kjartan Þór

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og stjórnarmaður í Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, er að mati Ríkisendurskoðunar ekki vanhæfur í sölu Þróunarfélagsins á eignum til eignarhaldsfélagsins Keilis þrátt fyrir að vera stjórnarformaður Keilis.

Geir: Dagur má hafa sínar skoðanir

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hafði ekki séð viðbrögð Dags B. Eggertssonar við bréfinu sem Geir sendi borgarstjóra Reykjavíkur vegna framúrkeyrslu við byggingu nýrrar stúku við Laugardalsvöll og vildi því ekki tjá sig um svörin þegar Vísir ræddi við hann í dag.

Flugmaður hleypti af byssu í flugstjórnarklefa

WASHINGTON (CNN) Flugmanni hjá flugfélaginu US Airways hefur verið vikið úr starfi eftir að hann hleypti fyrir slysni af skammbyssu í flugstjórnarklefa vélar sem hann flaug á laugardag.

Forseti Verzló segir hæfni skipta meira máli en kyn

Hafsteinn Gunnar Hauksson nýkjörinn forseti nemendafélags Verzlunarskóla Íslands segir vissulega rétt hjá Kvenréttindafélagi Íslands að hlutfall kvenna við skólann birtist ekki í stjórn nemendafélagsins. Það segi hinsvegar ekki alla söguna.

Vaxandi ólga í Tíbet

Enn halda mótmæli áfram í Tíbet vegna framferðis kínverskra stjórnvalda en í dag vöktu nokkur hundruð mótmælendur athygli á málstað sínum með því að setjast niður á götu í Qinghai-héraði í vesturhluta landsins.

Búa í gámi í miðbænum

Tvær til þrjár manneskjur hafa búið í gámi við Bergstaðastræti í Reykjavík síðastliðnar vikur. Íbúar við götuna eru orðnir þreyttir á ónæði og sóðaskap sem fylgir fólkinu. Kári Halldór, íbúi við götuna, segir fólkið hafa búið í gámnum með leyfi verktakans sem er að gera húsið upp.

Hluti af eldflaug féll nærri kamri

Bóndi, sem rekur býli sitt nærri Baikonur-geimskotstöðinni í Kasakstan, hefur stefnt hinni rússnesku Roskosmos-geimferðastofnun eftir að þriggja metra langur málmhlutur féll af geimflaug og lenti á landareign hans, aðeins steinsnar frá kamrinum.

Ekki er grunur um pólskt glæpagengi í Röstinni

Pólverjinn sem handtekinn var í Reykjanesbæ í gærkvöldi býr ásamt samlöndum sínum í húsi sem heitir Röstin. Húsið er í eigu Víkurrastar ehf en þar eru leigð út herbergi. Ákveðið verður seinni partinn í dag hvort maðurinn verði úrskurðaður í gæsluvarðhald en handtakan tengist hrottalegri árás í Keilufelli um helgina.

Fjörutíu fallnir í átökum í Basra

Minnst fjörutíu hafa fallið í átökum í Basra í Írak síðan í gær. Íraskar hersveitir hafa reynt að kveða niður átök andstæðra fylkinga múslima þar.

Dagur segir augljósar missagnir í máli formanns KSÍ

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að efni bréfs sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sendi borgarstjóra varðandi störf nefndar um byggingaframkvæmdir á Laugadalsvelli komi sér á óvart.

Koma fyrir neti hjá rúllustiga

Forráðamenn Rúmfatalagersins á Akureyri hafa komið fyrir neti þar sem stúlka féll 6 metra niður úr rúllustiga fyrir skömmu. Öryggi barna er tryggt, segir verslunarstjóri.

Íslendingar ekki svartsýnni í sex ár

Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni á efnahagshorfur síðan á erfiðleikatímabilinu í janúar árið 2002 samkvæmt væntingavísitölu Gallups.

Framtalsskil í dag

Í dag eru hinstu forvöð þeirra, sem ekki hafa leitað eftir sérstökum fresti, til að gera skil á skattframtali sínu til skattstjóra. Hjá embætti ríkisskattstjóra fengust þær upplýsingar að 69.250 framtölum hefði verið skilað laust fyrir kl. 11 í morgun, þar af 2.500 á pappír.

Sjá næstu 50 fréttir