Gagnrýna harðlega sjálvirkt ferli verðhækkana 26. mars 2008 16:31 Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. MYN/GVA
Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega það sjálfvirka ferli verðhækkana sem fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa boðað og þegar er hafið. Í ályktun sem miðstjórnin hefur samþykkt kemur fram að hækkanirnar séu langt umfram efnisleg tilefni og með þessu sú fyrirtæki að boða aukna álagningu og þar með að auka hagnað sinn við erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. ASÍ minnir á að verkalýðshreyfingin hafi í nýgerðum kjarasamningum sýnt mikla ábyrgð með hófstilltum samningum þar sem áhersla var lögð á að auka kaupmátt þeirra tekjulægstu. Meginmarkmið samninganna hafi hins vegar verið einfalt en gríðarlega mikilvægt, að lækka verðbólgu og treysta þannig kaupmátt launafólks. Frá þessu markmiði megi ekki hvika. ASÍ krefst þess að fyrirtækin í landinu axli með skýrum hætti ábyrgð á markmiðum kjarasamninga sem Samtök atvinnulífsins hafi undirritaði fyrir þeirra hönd fyrir rúmum mánuði og leggi sitt af mörkum til að treysta þær forsendur sem þeir byggja á. Þá lýsir miðsstjórn ASÍ yfir vonbrigðum með aðgerðar- og úrræðaleysi stjórnvalda og telur mikilvægt að viðbragðshópur með fulltrúum launfólks, atvinnurekanda og stjórnvalda verði settur á fót til að ræða aðgerðir til úrlausnar aðsteðjandi vanda. „Það verður ekki við það unað að byrðinni af efnahagsástandinu verði alfarið velt yfir á launafólk. Þá er ljóst að aukin verðbólga og þær miklu vaxtahækkanir sem orðið hafa upp koma sérstaklega illa við skuldsett heimili. Einkum ungs fólks sem er að koma sér þakið yfir höfuðið. Við þessum aðstæðum verður að bregðast áður en í óefni er komið," segir í ályktun miðstjórnarinnar.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar Innlent Fleiri fréttir „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu