Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Greið leið fyrir fíkniefnasmyglara víða um land Ekki er virkt sólarhringseftirlit í öllum höfnum landsins og því meiri líkur á að greið leið sé fyrir fíkniefnasmyglara þar sem eftirliti er ábótavant. Þetta segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Hann setur spurningarmerki við það að stjórnvöld verji miklu fé í hryðjuverkavarnir og segir að skoða verði hvernig fjármunum til eftirlits sé varið. 21.9.2007 13:00
Fujimori verður framseldur Hæstiréttur í Chile hefur ákveðið að framselja Alberto Fujimori fyrrverandi forseta Perú. Fujimori er sakaður um fjárdrátt og mannréttindabrot í valdatíð sinni á tíunda áratugnum. 21.9.2007 12:59
Bankarán í Danmörku Tveir grímuklæddir menn vopnaði hnífum rændu útibú Danske Bank í bænum Lyngby í Danmörku í morgun. Mennirnir ógnuðu starfsfólki bankans og höfðu á brott með sér peninga sem þeir tóku úr peningakassa gjaldkera. 21.9.2007 12:36
Gæsluvellir komi betur til móts við þarfir barnafjölskyldna Til stendur að endurskoða hlutverk gæsluvallanna í borginni með það fyrir augum að koma betur til móts við þarfir barnafjölskyldna. Að sögn formanns leikskólaráðs er meðal annars horft til Svíþjóðar til fyrirmyndar í þessum efnum, þar sem gæslan býðst fyrir eldri börn en leikskólakrakka. 21.9.2007 12:30
Varðskipið farið frá Fáskrúðsfirði Smyglskútan,sem kom til Fáskrúðsfjarðar, var hífð upp á flutningavagn í morgun og verður ekið til Reykjavíkur til frekari rannsóknar. 21.9.2007 12:23
Gera loftárásir á Tamíl Tígra Stjórnarher Sri Lanka gerði í morgun loftárásir á bækistöðar uppreisnarmanna Tamíl Tígra á yfirráðasvæði þeirra í norðurhluta landsins. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem herinn gerir árás á svæðið, en þeir segjast hafa fyrir því heimildir að þar fari nú fram fundur háttsettra Tamíltígra. 21.9.2007 12:13
Bræður úr Garðabæ handteknir í fíkniefnamálinu Tveir þeirra sem voru handteknir í smyglskútumálinu í gær eru bræður úr Garðabæ. Annar þeirra var handtekinn á höfuðborgarsvæðinu en hinn í Noregi. Annar er þeirra fæddur 1976 en hinn 1980. 21.9.2007 11:35
Tveir særast í skotárás í Delaware-háskóla Tveir nemendur særðust í skotárás í háskólanum í Delaware í Bandaríkjunum í morgun. Þeir voru fluttir á sjúkrahús þar sem annar þeirra berst nú fyrir lífi sínu að sögn Fox fréttastofunnar. 21.9.2007 11:31
Rauðu ljósin slokkna í Amsterdam Um þriðjungur af Rauða hverfinu svokallaða í Amsterdam heyrir brátt sögunni til. Stærsti hóruhúsaeigendi borgarinnar hefur nefnilega selt starfsemi sína til fasteignafélags. Alls er um 18 byggingar að ræða með 51 rauðlýsandi gluggum. Verðið á þessum húsum nemur tæpum 2 milljörðum króna. 21.9.2007 11:29
Fundað um rafræna stjórnsýslu í Evrópu Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra fer fyrir níu manna íslenskri sendinefnd sem nú situr ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu í Lissabon. 21.9.2007 11:19
Vilja taka harðar á einelti á netinu Yfirvöld í Bretlandi hvetja skóla í landinu til að taka harðar á nemendum sem leggja önnur börn í einelti gegnum net og farsíma. Meira en þriðjungur unglinga í Bretlandi hefur orðið fyrir einhverskonar einelti á netinu, eftir því sem fram kemur í rannsókn stjórnvalda. 21.9.2007 11:12
Nýr olíu- og orkumálaráðherra í Noregi Olíu- og orkumálaráðherra Noregs,Odd Roger Enoksen, hefur sagt af sér og Áslaug Haga, flokkssystir hans, tekur við. Frá þessu var greint á blaðamannafundi sem Jens Stoltenberg forsætisráðherra boðaði til í morgun. 21.9.2007 10:44
Framdi sjálfsmorð í Woolworths 23 ára gamall maður framdi í gær sjálfsmorð í matvöruverslun Woolworths í Cornish á Bretlandi. Maðurinn ruddist inn í verslunina um miðjan dag í gær og veifaði hnífi. Starfsfólk búðarinnar rýmdi hana umsvifalaust og hringdi á lögreglu og sjúkralið. Þegar sjúkraliðið kom á vettvang hafði maðurinn skorið sig á háls. Að sögn BBC fréttastofunnar var maðurinn látinn þegar að var komið. Starfsfólk var mjög slegið yfir atburðinum, og var boðin áfallahjálp. 21.9.2007 10:39
Tævan vill ekki sjá Ólympíueldinn Ólympíueldurinn er ekki velkominn í Tævan. Þessu eru stjórnvöld þar hörð á, en Kína og Tævan deila nú um hvaða leið eldurinn á að fara á leið sinni til Ólympíuleikana í Peking árið 2008. 21.9.2007 10:17
Reyndu að smygla bæði amfetamíni og e-pillum Búið er að handtaka tíu menn í tengslum við fíkniefnamálið á Fáskrúðsfirði, fimm á Íslandi, tvo í Færeyjum, tvo í Danmörku og einn í Noregi. Allir eru Íslendingar nema einn sem er Dani. 21.9.2007 09:59
Norrænir fjölmiðlar fjalla um fíkniefnamálið Öll helstu dagblöðin í Danmörku hafa fjallað um stóra fíkniefnamálið á síðum sínum í gærdag. Auk þess var VG í Noregi og norska ríkisútvarpið með fréttir af málinu. Nær allur fréttaflutningurinn byggir á skeyti frá ritzau-fréttastofunni. 21.9.2007 09:50
Fimmtán ára nauðgar og myrðir gamla konu Fimmtán ára drengur var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Álaborg, eftir að hafa viðurkennt að hafa nauðgað og myrt áttatíu og fimm ára gamla konu. Danska ríkisútvarpið greindi frá þessu í dag. Drengurinn stakk af frá stofnun þar sem hann var vistaður og braust inn í íbúð konunnar þar sem hann framdi morðið. 21.9.2007 09:35
Seglskútan flutt til Reykjavíkur Seglskútan sem notuð var til að smygla fleiri tugum kílóa af amfetamíni til landsins í gær var hífð upp á flutningakerru í morgun og verður hún nú flutt til Reykjavíkur til frekari rannsóknar. 21.9.2007 09:24
Stóra smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði Tíu menn voru handteknir á Norðurlöndunum í dag vegna stærsta smyglmáls Íslandssögunar. Lögreglan fann rúmlega 60 kíló af eiturlyfjum í seglskútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn og handtók þrjá menn á staðnum. Undir lok dags höfðu fimm menn verið dæmdir í gæsluvarðhald á Íslandi. Þrír til viðbótar eru í haldi lögreglu Færeyjum og Noregi. Þá hefur pari sem handtekið var í Danmörku verið sleppt. 20.9.2007 23:31
Fordæma lokun mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum Lokun mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum er enn ein aðför að hefðbundinni búsetu og atvinnulífi dreifbýlisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá AFL starfgreinafélagi. Félagið fordæmir lokun stöðvarinnar og skorar á Mjólkurbú Flóamanna að endurskoða ákvörðunina. 20.9.2007 20:42
Einn Norðmaður meðal þeirra handteknu Einn Norðmaður er meðal þeirra átta sem handteknir voru í tengslum við fíkniefnafundinn á Fáskrúðsfirði í morgun. Þetta er fullyrt í vefútgáfu norska dagblaðsins Stavanger Aftenbladet. 20.9.2007 19:50
Fáskrúðsfirðingum brugðið Fáskrúðsfirðingar vöknuðu upp við vondan draum í morgun þegar skyndilega voru þar tugir löggæslumanna í einhverri umfangsmestu lögregluaðgerð sem sögur fara af og er eðlilega brugðið. 20.9.2007 19:29
Greint frá fíkniefnafundi í dönskum fjölmiðlum Greint er frá fíkniefnafundinum á Fáskrúðsfirði í vefútgáfu danska dagblaðsins BT. Þar segir að tveir Íslendingar hafi verið handteknir í Kaupmannahöfn vegna málsins og að þá hafi danska lögreglan einnig lagt hald á fíkniefni. 20.9.2007 19:19
Krafist gæsluvarðhalds yfir mönnunum Alls hafa átta manns í þremur löndum verið handteknir í tenglum við það sem talið er stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar. Fimm þeirra voru handteknir hér á landi og verður gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld. Þrír menn voru handteknir á Fáskrúðsfirði í morgun og tveir til viðbótar í Reykjavík. 20.9.2007 18:41
Síðasti borgarstjórnarfundur Árna Þórs Árni Þór Sigurðsson lét af störfum í fyrradag sem borgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur. Árni var kosinn á þing fyrir Vinstri græna í vor og sat hann í dag sinn síðasta borgarstjórnarfund á þessu kjörtímabili. 20.9.2007 18:38
Impregilio ekki launagreiðandi starfsmanna starfsmannaleiga Hæstiréttur féllst í dag á varakröfu verktakafyrirtækisins Impregilo að því bæri ekki að greiða staðgreislu vegna launa portúgalskra starfsmanna. Mennirnir voru ráðnir til vinnu hér á landi í gegnum portúgalskar starfsmannaleigur. Héraðsdómur hafði áður ekki fallist á kröfu Impregilo. 20.9.2007 17:12
50 til 60 kíló af amfetamíni um borð í bátnum 50 til 60 kíló af ætluðu amfetamíni voru um borð í smyglskútunni á Fáskrúðsfirði. Fimm Íslendingar hafa verið handteknir vegna málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Europol. Aðgerðir lögreglu hafa farið fram í Danmörku, Færeyjum og í Noregi auk Íslands. Tveir hafa verið handteknir í Danmörku og einn í Noregi. 20.9.2007 16:55
TSH fær ekki bætur vegna Rúgbrauðsgerðarinnar Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem Trésmiðja Snorra Hjaltasonar höfðaði á hendur íslenska ríkinu í tengslum við fasteignakaup. Trésmiðjan keypti húseigina að Borgartúni 6, sem oft hefur verið nefnd Rúgbrauðsgerðin, af íslenska ríkinu. 20.9.2007 16:51
Landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna hættir Mike Johanns landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna hefur hætt störfum eftir næstum þrjú ár í embætti. Johanns býður sig fram til öldungadeildarþings í Nebraska, þar sem hann naut vinsælda sem ríkisstjóri tvö kjörtímabil. Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti ákvörðun Johanns í dag, en hann er sá síðasti í röð háttsettra embættismanna í stjórn Bush að láta af embætti. 20.9.2007 16:27
Bin Laden hvetur til heilags stríðs Osama Bin Laden hvetur til heilags stríðs í Pakistan til að hrinda Pervez Musharraf af stóli sem forseta landsins. Í nýrri hljóðupptöku sem birt var á íslamskri vefsíðu í dag lofar hann hefnd fyrir áhlaupið á Rauðu moskuna í Islamabad í júlí þar sem hundruð manna voru í gíslingu. 20.9.2007 16:16
Framlengir atvinnuveiðar á hrefnu Sjávarútvegsráðuneytið hefur framlengt þann 30 dýra veiðikvóta á hrefnu sem sjávarútvegsráðherra heimilaði í fyrrahaust þegar hann ákvað að leyfa atvinnuveiðar á ný. 20.9.2007 16:11
Smyglskútan flutt til Reykjavíkur Smyglskútan á Fáskrúðsfirði verður flutt til Reykjavíkur á morgun. Heimildir Vísis herma að báturinn verði fluttur landleiðina á flutningabíl. Skútur af þessari stærð eru með þónokkuð burðarþol og ætti að vera hægðarleikur að smygla nokkur hundruð kílóum til landsins í einni ferð, miðað við að tveir séu í áhöfn. 20.9.2007 16:04
Græddi „óvart" 10 milljónir á sölu stofnfjár í SPRON Árni Þór Sigurðsson þingmaður hefur selt allt stofnfé sitt í SPRON að nafnvirði einnar og hálfrar milljónar. Í samtali við Vísi vildi Árni ekki segja hversu mikið hann fékk fyrir hlut sinn í fyrirtækinu. 20.9.2007 15:53
Bush boðar friðsamlega lausn í Íran George Bush sagði í dag að hann væri vongóður um að sannfæra írani í gegnum diplomatískar leiðir að hætta við kjarnorkuáætlanir sínar. Hann sagði að Bandaríkjastjórn myndi viðhalda þrýstingi á yfirvöld í Íran, en það yrði gert á friðsamlegan hátt. 20.9.2007 15:50
Gríðarlegt vatnstjón í Glerárhverfi Mikið vatnstjón varð í Glerárhverfi á Akureyri í dag. Um tíuleitið í morgun kom óvænt þrýstibylgja komið inn á heitavatnskerfið með þeim afleiðingum að kranar og öryggislokar sprungu. 20.9.2007 15:45
Minnihluti vildi fresta afgreiðslu Grímseyjarferjumáls Minnihlutinn í fjárlaganefnd Alþingis vildi að nefndin frestaði fullnaðarafgreiðslu á greinargerð Ríkisendurskoðunar vegna Grímseyjarferju samkvæmt áliti sem skilað var í dag. Fjallað var um málið á fundi nefndarinnar í morgun og skilaði meirihlutinn skýrslu um málið. 20.9.2007 15:32
Reglur verði gerðar skýrari Fjárlaganefnd Alþingis skilaði af sér skýrslu í dag þar sem fjallað er um greinargerð Ríkisendurskoðunar í Grímseyjarferjumálinu. Til stóð að nefndin í heild sinni stæði að skýrslunni en af því varð ekki. 20.9.2007 15:20
Systir lestarstöðvarstúlkunnar hræddist föðurinn Grace Xue hálfsystir stúlkunnar sem var yfirgefin á lestarstöð í Ástralíu á laugardag segir að hún hafi áhyggjur af líðan Qian systur sinnar og að sem barn hafi hún óttast föður sinn. Hann hafi yfirgefið hana einungis tveimur mánuðum eftir komuna til Nýja Sjálands og hún hafi ekki átt í nein hús að venda. 20.9.2007 15:14
Lítil áhrif á fíkniefnamarkaðinn Fíkniefnafundur lögreglunnar á Fáskrúðsfirði mun ekki hafa mikil áhrif til verðhækkana á fíkniefnamarkaði til langs tíma litið að mati Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi. Hann segir nægt magn fíkniefna nú þegar til staðar hér á landi til að anna eftirspurn. 20.9.2007 14:40
Fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja á Rúmeníu Forsætisráðherra Rúmeníu hvetur íslensk fyrirtæki til að taka virkan þátt í efnahagsuppbyggingunni í landinu og fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja og fjárfestingaraðila á orkulindum landsins. Þetta kom fram á fundi hans með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í morgun, en Ólafur Ragnar er nú í opinberri heimsókn í Rúmeníu. 20.9.2007 14:38
Lögregluaðgerðum lokið á Fáskrúðsfirði Lögregluaðgerðum er lokið á Fáskrúðsfirði. Eins og Vísir greindi frá í morgun voru tveir menn handteknir sem komu með skútu á leið til hafnar í morgun. Talið er að í skútunni hafi verið tugir kílóa af fíkniefnum. Skútunnar beið aðkomubíll á bryggjunni og var ökumaður bílsins handtekinn. Að lögregluaðgerðinni komu fjölmennt lið lögreglunnar á Fáskrúðsfirði, Landhelgisgæslan, tollgæslan, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra. 20.9.2007 14:34
Rússar enn á ferð við Íslandsstrendur Langdrægar rússneskar sprengiflugvélar af gerðinni Tupolev 95 flugu inn á íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið norður af landinu klukkan hálf sex í morgun. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu flugu vélarnar í hringferð um landið og komu næst landinu u.þ.b. 43 sjómílur suður af Kötlutanga. 20.9.2007 14:26
Vilja koma á fót jarðskjálftasetri á Kópaskeri Hugmyndir eru uppi um að setja á fót jarðskjálftasetur á Kópaskeri sem hæfi starfsemi strax næsta vor. 20.9.2007 14:13
Kompáslögmaður selur glæsivillu og flytur til Spánar Kompáslögmaðurinn svokallaði, sem var til umfjöllunnar í fréttaþættinum Kompás á þriðjudagskvöldið, hefur sett glæsivillu sína í Fossvogi á sölu og er fluttur til Spánar. 20.9.2007 14:00
Meðalaldur ríkisstarfsmanna hækkar Meðalaldur ríkisstarfsmanna er 45,4 ár og hefur hækkað um rúm fjögur ár frá árinu 1995. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þá hefur hlutfall þeirra ríkisstarfsmanna sem eru með háskólamenntun hækkað töluvert á innan við áratug. 20.9.2007 13:43