Innlent

Krafist gæsluvarðhalds yfir mönnunum

Alls hafa átta manns í þremur löndum verið handteknir í tenglum við það sem talið er stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar. Fimm þeirra voru handteknir hér á landi og verður gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld. Þrír menn voru handteknir á Fáskrúðsfirði í morgun og tveir til viðbótar í Reykjavík. Um borð í skútunni fundust um 60 kíló af amfetamíni en markaðsvirði þess á götunni er um 500 milljónir króna.

Komið var með einn mannanna með flugi til Reykjavíkur frá Fáskrúðsfirði um klukkan fjögur í dag og var hann fluttur frá Reykjavíkurflugvelli á lögreglustöðina við Hverfisgötu til yfirheyrslu. Auk aðgerðanna á Fáskrúðsfirði þá gerði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu húsleit í tveimur húsum í Reykjavík í dag en ekki er vitað hvað eða hvort eitthvað fannst í leitinni. Í kjölfarið handtók lögreglan hins vegar tvo menn og færði til yfirheyrslu. Alls voru því um fimm menn handteknir vegna málsins hér á landi en til viðbótar hafa tveir menn verið handteknir í Danmörku og einn í Noregi.

Mennirnir fimm sem handteknir voru hér á landi eru allir Íslendingar. Krafist var gæsluvarðhalds yfir einum þeirra nú rétt fyrir fréttir í Héraðsdómi Reykjavíkur og munu hinir fjórir verða leiddir fyrir dómara í kvöld og fyrramálið og krafist gæsluvarðhalds yfir þeim. Rannsókn málsins er enn í fullum gangi, bæði hér á landi og erlendis að því er fram kemur í tilkynningu sem lögreglan hefur sent frá sér og ekki er útilokað að fleiri verði handteknir.

Rannsóknin og lögregluaðgerðin í morgun hefur átt sér langan aðdraganda og að henni koma margar innlendar og erlendar stofnanir. Rannsókninni hefur verið stjórnað af fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu með aðstoð og aðkomu alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra og tengslafulltrúa íslensku lögreglunnar hjá Europol.

Eins og fram hefur komið hefur lögregla lagt hald á um 60 kíló af amfetamíni sem gerir málið að einu stærsta fíkniefnamáli sögunnar. Ef efnið er tiltölulega hreint, eins og gera má ráð fyrir þá er andvirði þess á götunni rúmlega hálfur milljarður króna.

Þá er talið að mennirnir hafi fest kaup á skútunni í þessum tilgangi en andvirði hennar er um 7 milljónir króna. Hámarksrefsins fyrir fíkniefnainnflutning eru 12 ár. Heimildir fréttastofu herma að í það minnsta einn mannanna sé þekktur í fíkniefnaheiminum hér á landi,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×