Gæsluvellir komi betur til móts við þarfir barnafjölskyldna 21. september 2007 12:30 MYND/Anton
Til stendur að endurskoða hlutverk gæsluvallanna í borginni með það fyrir augum að koma betur til móts við þarfir barnafjölskyldna. Að sögn formanns leikskólaráðs er meðal annars horft til Svíþjóðar til fyrirmyndar í þessum efnum, þar sem gæslan býðst fyrir eldri börn en leikskólakrakka. Samþykkt var í leikskólaráði að skipa starfshóp sem ætlað er að kanna hvernig gæsluvellirnir eru nýttir núna og hver kostnaðurinn við reksturinn sé. Jafnframt á hópurinn að skila tillögum um það hvernig vellirnir eigi að vera í framtíðinni þannig að þeir nýtist fjölskyldum betur. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, bendir á að gæsluvellir gegni ekki sama hlutverki og fyrr á árum því flest börn séu nú í leikskólum. Hún segir að leikvellir víða í borginni séu lítið notaðir og vægi gæsluvalla fari minnkandi en hins vegar séu lóðir leikskóla mikið nýttar. „Við ætlum að horfa á aðra þjónustu og það er ekkert launungarmál að ég horfi til Svíþjóðar þar sem gæsluvellir þjóna mjög mörgum aldursstigum," segir Þorbjörg Helga en hér á landi hefur nær eingöngu verið boðið upp á gæslu fyrir 6 ára börn og yngri. Þorbjörg segir enn fremur að á gæsluvöllum í Svíþjóð er boðið upp á gæslu á tilteknum tímum en jafnframt séu vellirnir fjölskylduvænir þannig að fjölskyldur geti komið þangað saman með nesti og notið útiveru. Hún segist telja að nýtingin verði aðallega eftir vinnu og um helgar. Starfshópur borgarinnar fær tvo til þrjá mánuði til að skila tillögum en í honum eiga sæti fulltrúar ÍTR, umhverfissviðs og leikskólasviðs.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira