Innlent

Reyndu að smygla bæði amfetamíni og e-pillum

Eins og sjá má eru um gríðarlegt magn fíkniefna að ræða.
Eins og sjá má eru um gríðarlegt magn fíkniefna að ræða. MYND/Stöð 2
Búið er að handtaka tíu menn í tengslum við fíkniefnamálið á Fáskrúðsfirði, fimm á Íslandi, tvo í Færeyjum, tvo í Danmörku og einn í Noregi. Allir eru Íslendingar nema einn sem er Dani.

Fram kom á blaðamannafundi lögreglunnar að mennirnir fimm sem teknir voru hér á landi hefðu verið úrskurðaðir í mánaðar gæsluvarðhald að einum undanskildum, sem hefði verið úrskurðaður í einnar viku gæsluvarðhald. Þeir eru allir á þrítugs- og fertugsaldri og hafa allir komið við sögu lögreglu áður vegna fíkniefnamála, segir lögreglan. Lögregluyfirvöld í hinum löndunum myndu taka um það ákvörðun í dag hvort krafist yrði gæsluvarðhalds yfir mönnunum. Síðar yrði ákveðið hvort farið yrði fram á framsal mannanna til Íslands.

Lögregla gerði húsleit á fimm stöðum á Íslandi í gær en vildi ekki greina frá því hvað hefði fundist þar. Enn fremur var leitað í bifreiðum. Þá gerði lögregla húsleit í Færeyjum og Danmörku og þar fundust fíkniefni.

Bráðabirgðaniðurstöður sýna að 60 kíló af fíkniefnum hefðu fundist í skútunni, meirihlutinn amfetamín en einnig 14 kíló af e-töfludufti og 1800 e-töflur. Bendir margt til að styrkleiki efnanna sé mikill. Enn fremur kom fram að íslenskir fíkniefnealögreglumenn hefðu verið starfandi erlendis vegna málsins undanfarna mánuði.

Lögreglan greindi frá framvindu rannsóknarinnar á fíkniefnasmyglinu á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í morgun.MYND/Stöð 2
Yfirheyrslur yfir sakborningunum eru þegar hafnar bæði hér og erlendis en rannsókn á eftir að leiða í ljós hver hlutur hvers og eins í málinu sé.

Þá sagði lögregla að skútan sem notuð var í smyglið hefði verið leigð í Evópu og henni siglt þaðan með viðkomu í Færeyjum. Verið er að flytja skútuna til Reykjavíkur þar sem nákvæmnisleit í henni fer fram.

Von er á tilkynningu frá lögreglu síðar í dag vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×