Innlent

Fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja á Rúmeníu

Calin Popescu Tariceanu, forsætisráðherra Rúmeníu, vill ólmur í samstarf við íslensk orkufyrirtæki.
Calin Popescu Tariceanu, forsætisráðherra Rúmeníu, vill ólmur í samstarf við íslensk orkufyrirtæki. MYND/AFP

Forsætisráðherra Rúmeníu hvetur íslensk fyrirtæki til að taka virkan þátt í efnahagsuppbyggingunni í landinu og fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja og fjárfestingaraðila á orkulindum landsins. Þetta kom fram á fundi hans með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í morgun, en Ólafur Ragnar er nú í opinberri heimsókn í Rúmeníu.

Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að forsætisráðherrann, Calin Popescu Tariceanu, teldi reynslu Íslendinga forvitnilega því þeim hefði tekist að hefja þjóðina úr fátækt til einhverrar mestu velmegunar sem þekkist í veröldinni á fáeinum áratugum. Rúmenía þyrfti að ná hliðstæðum árangri. Þá lýsti hann áhuga á að koma í heimsókn til Íslands til að kynna sér nánar íslensk orkufyrirtæki og reynslu þjóðarinnar í þessum efnum.

Um 60 manna viðskiptasendinefnd frá 30 fyrirtækjum er með forseta Íslands í för til Rúmeníu ásamt Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra. Efnt var til viðskiptaráðstefnu í Búkarest sem Útflutningsráð undirbjó. Þar var sérstaklega fjallað um möguleika á samvinnu í orkumálum. Fulltrúar íslenskra og rúmenskra orkufyrirtækja fluttu erindi á ráðstefnunni og viðræður fóru fram milli fjölda íslenskra fyrirtækja og hugsanlegra rúmenskra samstarfsaðila.

Íslensk útrás í prentiðnaði

Þá kemur fram í tilkynningunni að íslenska fyrirtækið Kvos, sem meðal annars á Odda og Gutenberg, hafi að undanförnu staðið fyrir mikilli útrás í prentiðnaði til austurs. Fyrirtækið hélt í dag blaðamannafund sem forsetinn tók þátt í og tilkynnti að það hefði nú náð þeim árangri, meðal annars með kaupum á ýmsum fyrirtækjum, að verða stærsta prentfyrirtæki í Suðaustur-Evrópu. Alls starfa um þúsund manns hjá fyrirtækinu sem starfar undir nafninu Infopress Group. Það stefnir enn fremur að því að tvöfalda umsvif sín á næstu 3-4 árum.

Forsetinn mun svo í dag verða viðstaddur opnun nýrrar skrifstofu fjárfestingafyrirtækisins Askar Capital í Búkarest en það stefnir að víðtækum fjárfestingum í Rúmeníu og víðar í Suðaustur-Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×