Minnihluti vildi fresta afgreiðslu Grímseyjarferjumáls 20. september 2007 15:32 MYND/Hörður
Minnihlutinn í fjárlaganefnd Alþingis vildi að nefndin frestaði fullnaðarafgreiðslu á greinargerð Ríkisendurskoðunar vegna Grímseyjarferju samkvæmt áliti sem skilað var í dag. Fjallað var um málið á fundi nefndarinnar í morgun og skilaði meirihlutinn skýrslu um málið. Fram kemur í áliti minnihluta Framsóknarflokksins, Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins að frá því að greinargerð Ríkisendurskoðunar hafi litið dagsins ljós hafi verið alvarlegur ágreiningur milli fjármálaráðherra og Ríkisendurskoðunar um hvort ráðherrann hafi haft heimild til þess að ávísa á greiðslur úr ríkissjóði vegna kostnaðar við ferjuna. Fjárlaganefnd eigi að taka afstöðu í málinu enda lúti það meðal annars að grundvallaratriðum í stjórnskipan landsins og mögulegum rétti framkvæmdavaldsins til að taka í eigin hendur það fjárveitingavald sem lög kveða á um að Alþingi fari með. Þá segir meðal annars í áliti þeirra Bjarna Harðarsonar, Jóns Bjarnasonar og Grétars Mars Jónssonar að enn sé óljóst hvert verði heildarumfang og kostnaður endurbótanna á ferjunni. Hjá nefndinni liggi heldur ekki fyrir tímasetning um verklok og áhöld eru um hvort ferjan hæfi yfirhöfuð þeirri þjónustu sem henni er ætlað í siglingum til og frá Grímsey. Enn fremur segir minnihlutinn að varast beri að taka undir með fullyrðingum fjármálaráðherra um að umrætt verklag við framkvæmd fjárlaga eigi sér mörg fordæmi og sé í samræmi við gildandi reglur. Þá sé verið að ganga gegn alvarlegum athugasemdum Ríkisendurskoðunar. Þremenningarnir lögðu fram tillögur í fimm liðum í málinu sem meirihlutinn hafnaði. Í þeim fólst meðal annars að fleiri aðilar yrðu kallaðir á fund fjárlaganefndar, þar á meðal fulltrúar Grímseyinga, ráðgjafarfyrirtækisins og Skipasmíðastöðvarinnar Orms og Víglundar. Þá vildi minnihlutinn að fulltrúar úr áhöfn núverandi Grímseyjarferju gæfu umsögn um hæfi ferjunnar og að gert yrði formlegt lögfræðiáliti vegna ágreinings fjármálaráðherra og ríkisendurskoðanda á túlkun fjárreiðulaga.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira