Innlent

Impregilio ekki launagreiðandi starfsmanna starfsmannaleiga

MYND/GVA

Hæstiréttur féllst í dag á varakröfu verktakafyrirtækisins Impregilo að því bæri ekki að greiða staðgreislu vegna launa portúgalskra starfsmanna. Mennirnir voru ráðnir til vinnu hér á landi í gegnum portúgalskar starfsmannaleigur. Héraðsdómur hafði áður ekki fallist á kröfu Impregilo.

Fram kemur í dómi Hæstaréttar að hinar portúgölsku starfsmannaleigur teldust almennt vera launagreiðendur hinna útleigðu starfsmanna. Þess vegna hefði Impregilo ekki borið almenn skylda til að standa skil á staðgreiðslu vegna launa þessara starsfmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×