Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir framsal vatnsréttinda stjórnarskrárbrot Álfheiður Ingadótttir, þingmaður Vinstri - grænna, telur að framsal þriggja ráðherra á vatnsréttindum í neðri hluta Þjórsár til Landsvirkjunar sé skýrt brot á stjórnarskránni enda hafi ekki verið leitað lagaheimildar fyrir því. Hún segir það siðleysi og fordæmalausa ósvífni af hálfu fyrrverandi ríkisstjórnar að gera þetta án nokkurs fyrirvara. 22.8.2007 17:02
Vilja stórar og æsandi geirvörtur Brjóstastækkanir hafa lengi verið gerðar. Raunar eru fáir líkamshlutar eftir sem læknar hafa ekki verið fengnir til þess að krukka í. Til þess að stækka eða fegra. Og nú eru stórar geirvötur að komast í tísku. Lýtalæknirinn Bruce Nadler í New York hefur sérhæft sig í að stækka geirvörtur. Hann segir að konurnar sem í slíkar aðgerðir komi vilji fá "ögrandi" útlit fyrir barm sinn. 22.8.2007 16:21
Byrjað að dreifa fríkortum í strætó Byrjað var að dreifa fríkortum í strætó í gær. Nemendur í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fengu fyrstu kortin afhent og mynduðust langar biðraðir eftir þeim, segir Gunnar Hersveinn, upplýsingafulltrúi Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. 22.8.2007 16:04
Ríkisendurskoðun skoði vatnsréttindasamning Þingflokkur Vinstri - grænna hefur óskað eftir því við Ríkisendurskoðun að hún fari ofan í saumana á samningi íslenska ríkisins og Landsvirkjunar um yfirtöku vatnsréttinda í neðri hluta Þjórsár og kanni hvort sá gerningur fái staðist. Í samningnum kemur fram að Landsvirkjun hafi 15 ár til að biðja um virkjanaleyfi á þessum slóðum. 22.8.2007 16:02
Endurtekið efni hjá dönskum umhverfissamtökum „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða kemur upp og ekkert nýtt í þessu," segir Ólafur Haukur Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Ó.Johnson & Kaaber sem flytur inn Colgate-tannkrem. Danskir miðlar greina frá því í dag að tvær tegundir Colgate-tannkrems hafi að geyma efnið triclosam sem sé umhverfisskaðlegt. 22.8.2007 15:21
Flugvél Icelandair gat ekki lent Farþegum í flugvél Icelandair brá í brún þegar vélin kom frá Portúgal í nótt. Þegar vélin var í aðflugi varð að hætta við lendingu og hringsólaði vélin í háloftunum í 30 mínútur vegna þess að flugbrautin var ljóslaus. 22.8.2007 15:17
Opnunartíma skemmtistaða verður ekki breytt Á fundi sem lögreglustjóri og borgaryfirvöld héldu með veitingamönnum í miðbænum í Rúgbrauðsgerðinni í dag kom m.a. fram að engin áform eru uppi um að breyta opnunartíma skemmtistaða. Fundurinn var mjög fjölsóttur og gat Stefán Eiríksson lögreglustjóri þess raunar í inngangsorðum sínum að fleiri væru mættir en boðaðir voru. 22.8.2007 15:08
150 gripnir við hraðakstur í Hvalfjarðargöngum í vikunni Liðlega 150 manns hafa verið staðnir að hraðakstri í Hvalfjarðargöngum það sem af er vikunni en brot þeirra náðust á hraðamyndavél. Eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni var meðalhraði hinna brotlegu tæplega 84 kílómetrar á klukkustund en leyfður hámarkshraði í göngunum er 70. 22.8.2007 15:06
Samkomulagið var gert korteri fyrir kosningar Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, staðfestir að samkomulag um vatnsréttindi hafi verið gert við ríkisstjórnina skömmu fyrir síðustu kosningar. Samkomulagið fól í sér að ríflega 90 prósent vatnsréttinda ríkisins í Neðri-Þjórsá yrðu framseld tímabundið til Landsvirkjunar skömmu fyrir kosningar. 22.8.2007 15:00
Uppskeruhátíð í Grasagarðinum Árleg uppskeruhátíð verður haldin í nytjajurtagarði Grasagarðs Reykjavíkur laugardaginn kemur en þar gefst fólki kostur á að fræðast og bragða á hinum ýmsu tegundum mat- og kryddjurta. Enn fremur verða sýndar tegundir sem notaðar eru til lækninga og heilsubóta. 22.8.2007 14:42
Konum bjargað úr miðri á Konurnar sem sátu fastar á þaki bifreiðar í miðri á í Svartadal eru komnar á þurrt. Þær sluppu ómeiddar, en voru nokkuð skelkaðar að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til bjargar konunum ásamt björgunarsveitum af Suðurlandi og úr Eyjafirði. 22.8.2007 14:39
T-rex myndi hlaupa uppi fótboltamann Skaðræðis risaeðlan Tyrannosaurus rex mun hafa hlaupið hraðar en knattspyrnumaður á sínum tíma. Þetta kemur fram nýrri rannsókn sem styðst við tölvulíkan. 22.8.2007 14:36
Umhverfisskaðlegt efni í tveimur tegundum Colgate-tannkrems Komið hefur í ljós að tvær tegundir Colgate-tannkrems hafa að geyma umhverfisskaðlegt efni sem yfirvöld í mörgum evrópskum löndum, þar á meðal Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi, hafa ráðið fólki frá að neyta. 22.8.2007 14:13
Nýbýlavegi lokað að hluta frá fimmtudegi til laugardags Nýbýlavegi verður lokað milli Birkigrundar og Sæbólsbrautar frá og með fimmtudeginum 23. ágúst vegna framkvæmda. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni er stefnt er að því að opna veginn aftur laugardagskvöldið 25. ágúst. 22.8.2007 13:46
Fastar á þaki bíls í miðri á Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir úr Eyjafirði og af Suðurlandi voru kallaðar að Köldukvisl í Svartadal fyrir um 20 mínútum síðan. Tvær konur sitja fastar í miðri ánni. Konurnar hugðust fara á bíl yfir ána en svo illa vildi til að bíllinn festist í ánni. Miklir vatnavextir eru í ánni og því neyddust konurnar til að klifra upp á þak bílsins til að forðast vatnselginn. 22.8.2007 13:44
Legg ég svo á og mæli um Þýskur maður skilaði egypska sendiráðinu í Berlín útskurðarmynd af egypskum faraó sem fósturfaðir hans stal meðan hann var í heimsókn í Egyptalandi árið 2004. Maðurinn taldi að bölvun faraós hefði fylgt fósturföðurnum til Þýskalands. Þegar þangað kom þjáðist hann af ógleði, lömun, hitasóttum og krabbameini. Hann lést fyrir skömmu. 22.8.2007 13:30
Vill selja forsetagallana á netinu Fyrrverandi forseti Lettlands Vaira Vike-Freiberga er að hugsa um að selja forsetafötin sín á netinu til þess að endurheimta eitthvað af þeim peningum sem hún varði til þess að líta forsetalega út meðan hún gegndi embættinu. Í viðtali við lettneska útvarpsstöð sagði hún að hún hefði varið öllum launum sínum í föt til þess að vera landi sínu til sóma við opinberar athafnir. 22.8.2007 13:15
Kvartað undan nýjum vef Strætós Nýr vefur Strætó þykir mun lakari en sá gamli og á netinu er skorað á forsvarsmenn strætó til að opna gamla vefinn aftur. Tæpum fimm milljónum var eytt í vinnu við gamla vefinn sem nú nýtist Strætó ekki neitt. 22.8.2007 13:15
Stuðmenn biðja þjóðina afsökunar "Við Stuðmenn ætlum að biðja þjóðina afsökunar á síðustu tónleikum okkar sem greinilega hafa farið eitthvað þvert í þjóðarsálina," segir Tómas M. Tómasson bassaleikari Stuðmanna með tárin í augunum. "Við höfum alltaf verið vinsælir og ætlum okkur að vera það áfram." 22.8.2007 12:55
Príla upp húsveggi til þess að komast í pott að næturlagi Stór heitur pottur, sem er utan dyra á þriðju hæð húsnæðis líkamsræktarstöðvar í Spönginni í Grafarvogi, er orðinn vinsæll samkomustaður unglinga í hverfinu, að næturlagi. 22.8.2007 12:45
Höfðað til yngri leikhúsgesta á Akureyri Dagskrá Leikfélags Akureyrar verður viðameiri í vetur en nokkru sinni, segir leikhússtjórinn. Áfram verður unnið eftir þeirri stefnu að höfða til yngri leikhúsgesta og verður fyrsta frumsýning vetrarins á fjölskylduleikritinu Óvitar! 22.8.2007 12:42
1400 nýnemar í grunnskólum Reykjavíkur Skólahald í grunnskólum borgarinnar hófst í dag. Rúmlega 14700 börn eru skráð í grunnskólana í vetur og rúm fjórtán hundruð börn hefja sína skólagöngu í fyrsta sinn. 22.8.2007 12:30
Slapp lítið slasaður úr flugslysi Tvítugur Kanadamaður vann frækilegt afrek þegar hann bjargaði Íslendingi og kanadískri konu úr flaki flugvélarinnar sem hrapaði í Kanada á laugardaginn. Faðir Íslendingsins segir hann hafa sloppið vel. Annar Íslendingur fórst í slysinu en hann flaug flugvélinni. 22.8.2007 12:20
Hefur ekki mikil áhrif á arðsemi virkjunarinnar Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að matið á vatnsréttindum landeigenda við Jökulsdal og Fljótsdal hafi ekki mikil áhrif á arðsemi Kárahnjúkavirkjunar. „Þetta mat upp á 1,6 milljarða króna er að vísu umtalsvert hærra en þær tæpu 400 milljónir króna sem við gerðum ráð fyrir í okkar áætlunum," segir Friðrik. 22.8.2007 12:15
Mun erfiðara að eignast fyrstu íbúð eftir innreið banka á fasteignamarkað Mun erfiðara er fyrir fólk að eignast sína fyrstu íbúð núna en fyrir þremur árum þegar bankarnir héldu innreið sína á íbúðalánamarkaðinn. 22.8.2007 12:12
Slasaðist í bílveltu í Vatnsdal Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að Ford Taurus bifreið valt út í skurð við Þrístapa í Vatnsdal rétt fyrir miðnætti í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi missti ökumaður stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór utan vegar. 22.8.2007 12:04
Þingmenn vilja ekki í fíkniefnapróf Þingmenn á serbneska þinginu deila nú hart um tillögu þessa efnis að þingmönnum verði framvegis gert skylt að fara í fíkniefnapróf. Stjórnarandstaðan segir tillöguna vera móðgandi. 22.8.2007 12:00
Ratsjárstöðvum verði stýrt frá Bolafjalli í stað Miðnesheiðar Bæjarráð Bolungarvíkur samþykkti bókun á fundi sínum í dag þar sem lögð er áhersla á að stöfum fækki ekki í Bolungarvík í tengslum við uppsagnir starfsmanna Ratstjárstofnunar. Þá óskar bæjarráð eftir því að skoðað verði hvort mögulegt geti verið að öðrum ratsjárstöðvum á Íslandi verði fjarstýrt frá Bolafjalli í stað Miðnesheiðar. 22.8.2007 11:41
Slasaðist eftir árekstur í miðborginni Ökumaður bifreiðar var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir að tveir bílar rákust saman. Slysið varð á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis um 10 leytið í morgun. Að sögn sjúkraflutningamanna voru meiðsl mannsins minniháttar. Nokkurn tíma tók að hreinsa upp olíu og frostlög sem lak úr bílunum eftir áreksturinn. 22.8.2007 11:38
Eru öll vatnsréttindi landsins 15 milljarða kr. virði spyr landeigandi „Ég veit ekki hvort á að hlæja eða gráta. Þessir menn eru með óráði," segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður en hann er einn fjölmargra landeigenda við Jökulsá á Dal. Og Jakob spyr hvort þessi niðurstaða sýni að öll vatnsaflsréttindi landsins séu aðeins 15 milljarða kr. virði? 22.8.2007 11:26
Átján stiga hiti á Hallormsstað í morgun Átján stiga hiti mældist klukkan níu á morgun í Hallormsstað á Austurlandi og á Skjaldþingsstöðum við Vopnafjörð var hitinn kominn í rúmar 17 gráður klukkan níu 22.8.2007 11:23
Lögreglan í Kaupmannhöfn ræðst gegn fíkniefnasölum í Kristjaníu Fjölmenn liðsveit frá lögreglunni í Kaupmannahöfn kom sér fyrir á götum Kristjaníu í morgun. Aðgerðir lögreglu beinast fyrst og fremst að sölu ólöglegra fíkniefna á svæðinu. 22.8.2007 11:19
Biskup þegir í bili um könnun presta Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, mun að líkindum ekki tjá sig um niðurstöðu nýrrar viðhorfskönnunar meðal presta um heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra, að minnsta kosti ekki meðan kenningarnefnd Þjóðkirkjunnar fjallar um málið. 22.8.2007 11:13
Stálu bílum og tölvubúnaði fyrir milljónir króna Tveir 25 ára gamlir menn hafa verið ákærðir fyrir stórfelld og ítrekuð hegningarlagabrot. Ákærulistinn er langur. Mennirnir eru meðal annars sakaðir um að hafa stolið bílum og tölvubúnaði fyrir milljónir króna. Einnig eru þeir ákærðir fyrir fjölmörg innbrot, lyfjaakstur og umferðarlagabrot. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 22.8.2007 10:54
Hörð átök milli stúdenta og lögreglu í Bangladesh Einn maður lét lífið og yfir þrjú hundruð særðust í átökum sem brutust út milli lögreglu og stúdenta í borginni Dhaka í Bangladesh í morgun. Mótmælin hófust á mánudaginn þegar hermenn réðust á stúdenta sem voru að mótmæla veru þeirra á háskólalóðinni. 22.8.2007 10:47
Bóndi á Jökuldal segir matið hreinan dónaskap Vilhjálmur Snædal, bóndi á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, segir að niðurstaða matsnefndarinnar á vatnsréttindum í tengslum við Kárahnjúkavirkjun sé hreinn dónaskapur í garð landeigenda. „Það er eins og þeir hafi tekið Blöndusamninginn og framreiknað hann," segir Vilhjálmur. Þórður Bogason, lögmaður Landsvirkjunnar, segir að þarna sé um hærri upphæðir að ræða fyrir vatnsréttindi en áður hafa þekkst. 22.8.2007 10:35
Konur hafa bleik gen Ný rannsókn hefur leitt í ljós að ást á bleika litnum er í genum kvenna. Anya Hurlbert sem er prófessor við háskólann í Newcastle telur að það megi rekja til aftur til steinaldar þegar mannskepnan lifði á veiðum og tínslu. Karlmennirnir veiddu dýr en konurnar tíndu ávexti og annan jarðargróður í matinn. 22.8.2007 10:30
Kona deyr af völdum fuglaflensu í Indónesíu Heilbrigðisyfirvöld í Indónesíu hafa staðfest að kona sem lést á spítala á eyjunni Bali í gærmorgun hafi látist af völdum H5N1 veirunnar sem veldur fuglaflensu. Konan, sem verslaði með fuglakjöt, var aðeins 28 ára gömul. 22.8.2007 10:08
Sérálit um vatnsréttindin upp á 10 milljarða kr. Matsnefnd sú sem skipuð var til að meta vatnsréttindin sem tapast á Jökuldal og efrihluta Fljótsdals vegna Kárahnjúkavirkjunnar telur þau nema um 1,6 milljörðum kr. Greint var frá þessu á Egilsstöðum nú fyrir nokkrum mínútum að viðstöddum lögmönnum Landsvirkjunnar og landeigenda. Einn nefndarmanna skilaði séráliti þar sem réttindin eru metin á 10 milljarða kr. 22.8.2007 10:02
Nefndarmönnum greint frá framsali vatnsréttinda Nefndarmönnum í umhverfisnefnd og iðnaðarnefnd Alþingis var greint frá því á fundi í Árnesi fyrir helgi að meirihluti vatnsréttinda í neðri hluta Þjórsár hefði verið framseldur til Landsvirkunar nokkrum dögum fyrir kosningar í vor. 22.8.2007 09:50
Níu af hverjum tíu jákvæðir í garð ÖBÍ Tæplega 89 prósent þjóðarinnar eru jákvæð í garð Öryrkjabandalags Íslands samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir bandalagið. Markmiðið með könnuninni var að skoða ímynda almennings af starfsemi bandalagsins. 22.8.2007 09:38
Þuklaraballið er á laugardagskvöld Í frétt Vísis í gærdag um landskeppni í hrútaþukli, ullarkeppni og þuklaraball í félagsheimilinu á Húsavík mátti misskilja textann þannig að öll atriðin yrðu á sunnudag. Hið rétta er að þuklaraballið er á laugardagskvöld en hrútaþuklið á sunnudag. Arnar Jónsson forstöðumaður Sauðfjársetursins á Ströndum segir ennfremur að fólk verði að skrá sig á þuklaraballið þar sem búist er við tölvuverðum fjölda gesta sem vilji taka þátt í því. 22.8.2007 09:33
Þrír menn særast í átökum í Kaupmannahöfn Þrír menn særðust þegar til átaka kom á Norgesgade í Amager í Kaupmannahöfn í morgun. Átökin brutust út eftir að maður neitaði að yfirgefa íbúð á svæðinu. 22.8.2007 09:33
Þuklaraballið er á laugardagskvöld Í frétt á Vísi í gær um keppni í hrútaþukli og þuklaraballl á 22.8.2007 09:10
Um 20 láta lífið í sjálfsmorðsárás í Írak Að minnsta kosti 20 létu lífið og 40 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Írak í morgun. Árásarmaðurinn ók tankbíl hlöðnum eldsneyti beint á lögreglustöð. 22.8.2007 08:54