Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hundamúmíur finnast í Perú Meira en 40 hundamúmíur hafa fundist við fornleifauppgröft í Perú. Hundarnir voru grafnir við hlið eigenda sinna með teppi og mat og þykir allt benda til þess að Chiribaya fólkið í Suður-Perú hafi trúað því að gæludýrin ættu framhaldslíf í vændum. Slíkur umbúnaður gæludýra hefur hingað til aðeins þekkst í gröfum Egypta til forna. 24.9.2006 14:00
Fresta stofnun sjálfsstjórnarsvæða um eitt og hálft ár Íraskir stjórnmálaflokkar hafa samþykkt að fresta stofnun sjálfsstjórnarsvæða í landinu um minnst 18 mánuði. Málefnið hefur ýtt undir ofbeldi í landinu að sögn þingmanna. Stjórnarskrárnefnd verður skipuð á morgun til þess að endurskoða ýmis ákvæði stjórnarskrárinnar að kröfu súnnímúslima sem eru í minnihluta í landinu. 24.9.2006 13:52
Handtók menn fyrir að hækka verð á brauði Simbabvebúar hafa búið við brauðskort í viku eftir að ríkisstjórnin greip til aðgerða gegn bakaríum út af verðhækkunum, sem orsakast af auknum framleiðslukostnaði. Lögreglan handtók þrjá framkvæmdastjóra stórra matvælafyrirtækja á mánudag fyrir að hækka verð án samþykkis ríkisstjórnarinnar. Brauð er á lista ríkisstjórnarinnar yfir grunnmatvæli sem ríkið stjórnar verðlagi á. 24.9.2006 13:00
Bjargaði vélarvana báti Björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd var kallað út rétt fyrir átta í morgun til bjargar vélarvana bát, Guðmundi Hóba, frá Grindavík. Veður á staðnum var gott og lítil hætta á ferðum. Björgunarskipið fylgdi Guðmundi Hóba til hafnar á Skagaströnd og komu þau í höfn upp úr tíu í morgun en báturinn reyndist vera með bilaðan gír. 24.9.2006 13:00
ETA ætlar að berjast áfram fyrir sjálfstæði Baskalands Sex mánuðum eftir að hafa tilkynnt varanlegt vopnahlé, senda aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, frá sér myndbandsyfirlýsingu þar sem þrír grímuklæddir menn segja samtökin munu halda áfram vopnaðri baráttu sinni þar til Baskaland hlýtur sjálfstæði frá Spáni. 24.9.2006 12:33
Björgólfur Thor kynþokkafyllstur Á meðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes birtir lista sinn yfir ríkustu Bandaríkjamennina hefur Financial Times tekið saman annars konar lista. Þar er kaupsýslumönnum skipt í hópa eftir fegurð og gælni. Á þessu lista er Björgólfur Thor Björgólfsson sagður bera af þegar kemur að kynþokka. 24.9.2006 12:30
Íraksstríðið sagt hafa aukið hættuna á hryðjuverkum Íraksstríðið hefur aukið hryðjuverkahættuna í heiminum og auðveldað róttækum múslimum að afla stuðnings. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri leyniskýrslu sem dagblaðið New York Times vitnar til í morgun. 24.9.2006 12:15
Mótmæla forsætisráðherranum með hvítu Þrýstingur eykst enn á forsætisráðherra Ungverjalands að hann segi af sér eftir að hafa logið að þjóðinni. Milli 20 og 50 þúsund manns mótmæltu á torginu fyrir framan þinghúsið í Búdapest í gærkvöldi en allt virðist hafa farið friðsamlega fram. Hvítt er orðinn einkennislitur mótmælendanna sem vilja með því vísa í sannleika og frið. 24.9.2006 12:00
Óhugnarlegt myndband birt Hryðjuverkasmatök sem sögð eru tengd al-Kaída birtu í morgun á vef sínum óhugnarlegt myndband sem sýnir illa meðferð á líkum bandarískra hermanna í Írak. 24.9.2006 11:30
Sektuðu 24 ökumenn á 90 mínútum Lögreglan í Reykjavík kærði 24 ökumenn fyrir of hraðan akstur á einni og hálfri klukkustund í gærkvöldi, aðallega á Hringbraut og Miklubraut. Þetta er langt yfir öllu meðallagi og virðist ekkert lát vera á hraðaksturshrinunni , sem verið hefur í nokkra daga. Yngsti ökumaðurinn var 17 ára og tók bílpróf fyrir tólf dögum. Hann hafði því ekki einu sinni fengið ökuskírteinið í hendurnar heldur framvísaði bráðabirgðaskírteini. 24.9.2006 11:15
Sluppu vel úr veltu í Aðaldalshrauni Tveir menn sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglunnar á Húsavík, þegar bíll þeirra fór út af veginum í Aðaldalshrauni í gærkvöldi og valt tvær veltur. Þeir voru talsvert lemstraðir og eitthvað skornir af glerbrotum, en ekki alvarlega meiddir. Gert var að sárum þeirra á sjúkrahúsinu á Akureyri. 24.9.2006 11:00
Vongóður um skipan þjóðstjórnar Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sagðist í morgun vongóður um skipan þjóðstjórnar Hamas- og Fatah-liða. Þar með vísaði hann á bug ummælum Abbas forseta frá í gær um að viðræður væru aftur komnar á byrjunarreit. Haniyeh segir viðræðum framhaldið og þeim miði í rétta átt. 24.9.2006 11:00
Dregur fréttir af andláti bin Ladens í efa Sendiherra Pakistana í Bandaríkjunum dregur í efa fréttir fransks blaðs frá í gær um að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Blaðið vitnaði í leynilega skýrslu frönsku leyniþjónustunnar þar sem sagði að hann hefði dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði. 24.9.2006 10:48
Ók fullur á undirstöðu hæðarslár Ölvaður ökumaður ók í gærkvöldi á miklum hraða á steinsteypta undirstöðu svonefndrar hæðarslár, vegna brúarbyggingar á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega og kastaði níðþungri undirstöðunni margra metra úr stað. Það þykir með ólíkindum að maðurinn skuli hafa sloppið lítið meiddur, enda hefur höggið verið gríðarmikið og bíllinn er gerónýtur. 24.9.2006 10:45
Bandaríkjamenn biðja stjórnvöld í Venesúela afsökunar Bandarísk yfirvöld hafa beðið stjórnvöld í Venesúela afsökunar á því að utanríkisráðherra landsins, Nicolas Madura, hafi verið í haldi öryggisvarða á Kennedyflugvelli í New York í eina og hálfa klukkustund í gær. Madura sótti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem haldið er þar í borg. 24.9.2006 10:15
Reyndi að smygla dópi inn á Litla-Hraun Kona á fertugsaldri, sem ætlaði að heimsækja fanga á Litla Hrauni um miðjan dag í gær, þótti hegða sér grunsamlega og kölluðu fangaverðir lögreglumenn á vettvang. Strax og í ljós kom að hún hafði komið akandi, var tekið úr henni sýni vegna gruns um að hún hefði ekið undir áhrifjum lyfja eða fíkniefna. 24.9.2006 10:15
Börnin þrjú fundin Þrjú börn, sem íbúar í Saint Louis í Bandaríkjunum hafa leitað síðustu daga, fundust myrt þar í borg í gærkvöldi. Nokkru áður hafði 26 ára kona verið ákærð fyrir að hafa myrt móður barnanna og skorið fóstur úr kvið hennar. 24.9.2006 10:01
"Nokkrir ansi ósáttir" - prófkjör Framsóknarmanna í norðvestur Framboðslisti Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi verður ákveðinn með póstkosnu prófkjöri, þvert á tillögu stjórnar kjördæmasambandsins sem vildi stilla upp á lista. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknar, segir afar fátítt að tillaga stjórnar kjördæmisráðs hljóti ekki brautargengi og segir það endurspegla miklar áhyggjur af stöðu flokksins. 23.9.2006 20:00
Bara milljarðamæringa á Forbes listanum 400 ríkustu menn Bandaríkjanna eru samanlagt metnir á jafnvirði tæplega 90 þúsund milljarða króna. Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur birt lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina þetta árið og í fyrsta sinn dugir ekki að vera milljónamæringur til að komast á blað. 23.9.2006 19:45
Maðurinn fundinn á Síldarmannagötum Maðurinn sem leitað var að á Síldarmannagötum er fundinn og er á leið til Reykjavíkur með þyrlu. Lögregla segir manninn þó ekki hafa verið illa haldinn heldur hafi þyrlan verið komin á staðinn til leitar og því hafi verið ákveðið að senda manninn með þyrlu í bæinn í skoðun. 23.9.2006 19:45
Slapp vel úr veltu Ung stúlka slapp vel þegar lítill fólksbíll valt á Þrengslavegi í Svínahrauni, við vegamótin við Suðurlandsveg. Bíllinn er ónýtur. Stúlkan missti stjórn á bílnum þegar hann lenti í lausamöl sem var á veginum þar sem nýbúið er að leggja klæðningu. Stúlkan var flutt á slysadeild þar sem hún fer í rannsóknir en hún virðist hafa sloppið með minniháttar meiðsl. 23.9.2006 19:27
Undirbúningur að útboði hafinn Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum krefst þess að ríkisstjórnin leysi flugsamgöngumál Vestmannaeyinga þegar í stað, en áætlunarflug milli lands og Eyja leggst af eftir helgi. Undirbúningur að útboði er þegar hafinn og verður málið lagt fyrir ríkisstjórnarfund á þriðjudag. 23.9.2006 19:18
Leitað að göngumanni á Síldarmannagötum Leit stendur yfir að karlmanni á áttræðisaldri sem varð viðskila við gönguhóp á leið um Síldarmannagötur, frá Hvalfirði í Skorradal. Maðurinn dróst aftur úr gönguhópnum þar sem hann var ferðlúinn og fannst svo ekki þegar einn úr hópnum hljóp til baka. Maðurinn er ekki illa búinn og heilsuhraustur miðað við aldur. 23.9.2006 19:17
23 létust í lestarslysi Nú er vitað að 23 týndu lífi í lestarslysi í Þýskalandi í gær. Lest, sem knúin er með segulafli, fór þá af sporinu þegar hún skall á viðgerðarvagni. Áætlað er að á fjórða tug farþega hafi verið um borð í lestinni en engan farþegalista er að finna þar sem um tilraunaferð var að ræða. 23.9.2006 19:00
Taugaveiki sögð hafa dregið bin Laden til dauða Franskt blað fullyrðir í dag að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Hann hafi dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði. Ekki hefur verið hægt að staðfesta fréttir blaðsins. 23.9.2006 18:45
Aukin hætta á skriðu Sprunga er í Óshyrnunni, fyrir ofan Óshlíðarveg milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Hún gliðnaði miklu meira síðasta vetur en árin þar á undan og segir bæjarstjórinn í Bolungarvík þetta enn ein rökin fyrir því að hefja jarðgangagerð strax. Ef hluti Óshyrnu hleypur í sjó fram, myndast áreiðanlega flóðbylgja, en erfitt er að meta hversu stór hún yrði, segir jarðfræðingur sem mældi gliðnunina í gær. 23.9.2006 18:44
Hægri leyniþjónusta Leyniþjónustan sem starfrækt var hérlendis á fimmta til áttunda áratug síðustu aldar, var að öllum líkindum leyniþjónusta Sjálfstæðisflokksins, ekki stjórnvalda hverju sinni, segir Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur. Hann dregur til að mynda mjög í efa að Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, hafi vitað um starfsemina á meðan hann gegndi embætti forsætisráðherra. 23.9.2006 18:40
Mikil sprengjuhreinsun á varnarliðssvæðinu Sprengjuhreinsa þarf stórt landsvæði eftir að varnarliðið hverfur endanlega úr landi. Sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar hefur yfir búnaði og þekkingu að ráða til verksins, en kostnaðurinn yrði mikill. 23.9.2006 18:38
Olli slysi með ofsaakstri í Ártúnsbrekkunni Hvítri sportbifreið var ekið aftan á jeppling í Ártúnsbrekku í Reykjavík um klukkan hálf sex síðdegis. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu var sportbifreiðinni ekið vestur Vesturlandsveg í brekkunni við Esso á ofsahraða í mikilli umferð. Jepplingurinn kastaðist út af akbrautinni hægra megin. 23.9.2006 18:03
Hlekktist á í lendingu Lítilli flugvél hlekktist á þegar flugmaðurinn ætlaði að lenda henni á sléttum mel skammt frá Gæsavötnum, norðvestan við Vatnajökul. Flugvélin endaði á hvolfi einum 200 metrum frá þeim stað þar sem hún lenti fyrst. Hún er óflugfær og verður líklega flutt burt á bílpalli en flugmaðurinn slapp ómeiddur. 23.9.2006 17:42
Tveir slasaðir í Ártúnsbrekku Ártúnsbrekkan er lokuð í austurátt vegna umferðarslyss sem varð þar fyrir skömmu. Fjölmennt lögreglu- og slökkvilið vinnur að því að klippa út fólk úr bílum. Samkvæmt fyrstu upplýsingum lögreglu eru tveir slasaðir en nánari upplýsingar eru ekki enn á reiðum höndum. 23.9.2006 17:36
Sækist eftir 4.-6. sæti í Suðurkjördæmi Gylfi Þorkelsson, framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg, sækist eftir 4.-6. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Hann leggur sérstaka áherslu á menntamál og bætt samskipti ríkis og sveitarfélaga, auk þess sem umhverfismál eru ofarlega á baugi. Prófkjör Samfylkingarinnar í kjördæminu verður þann 4. nóvember nk. 23.9.2006 17:23
Valgerður hitti kvenutanríkisráðherra Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, tók í dag þátt í hringborðsumræðum kvenutanríkisráðherra sem sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Aðalumfjöllunarefni fundarins var með hvaða hætti hægt væri að efla völd kvenna og þátttöku þeirra á ýmsum sviðum samfélagsins, ekki síst í stjórnmálum og á vinnumarkaðnum. 23.9.2006 17:05
Bændur í Ölfusi heyjuðu í blíðunni Tveir bændur í Ölfusi heyjuðu í dag þrátt fyrir að farið sé að síga á seinni hlutann í september. Annar þeirra missti af þurrki á Íslandi þegar hann baðaði sig í sólinni á Krít. 23.9.2006 17:01
Nýr forseti í Eistlandi Fyrrverandi utanríkisráðherra Eistlands í tvö kjörtímabil, Toomas Hendrik Ilves, var í dag kjörinn forseti landsins. Hann sigraði sitjandi forseta Arnold Rüütel. Búist er við því að hann styrki tengsl Eistlands við Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið og teygi sig meira í vestur en til Rússlands. 23.9.2006 16:42
Einn til viðbótar handtekinn fyrir dagheimilisbruna Einn Svíi til viðbótar hefur verið handtekinn vegna rannsóknar á fimm íkveikjum í dagheimilum í sænska bænum Skövde undanfarnar vikur. Þrír voru handteknir á fimmtudagskvöldið en einum þeirra var sleppt um hádegisbilið í dag. Sænska lögreglan telur sig vera að þrengja hringinn en vill ekki gefa nánari upplýsingar um hina grunuðu. 23.9.2006 16:30
Ímynd 2006 gegn átröskun Forma, félag átröskunarsjúklinga, stóð í dag fyrir málþingi og dagskrá undir titlinum Ímynd 2006 í Borgarleikhúsinu til að vekja athygli á málefnum átröskunarsjúklinga og aðstandenda þeirra. Þar voru meðal annars lesin upp dagbókarbrot átröskunarsjúklinga þar sem þeir lýsa baráttu sinni við anorexíu og búlimíu. 23.9.2006 15:50
Íslandsmót í atskák í Vestmannaeyjum Íslandsmótið í atskák fer nú fram í Vestmannaeyjum í tilefni af 80 ára afmæli Taflfélags Vestmannaeyja. Þar keppa nokkrir af bestu skákmönnum Íslands af yngri kynslóðinni. Bæjarstjórinn Elliði Vignisson setti mótið í dag og lék fyrsta leikinn í skák yngsta keppandans, sem er sjö ára gamall. 23.9.2006 15:07
Átta á slysadeild eftir árekstur lögreglubíls og fólksbíls Átta manns voru fluttir á slysadeild eftir talsvert harðan árekstur fólksbíls og lögreglubíls á Höfðabakkabrú upp úr hálftvö. Þar af voru fimm börn sem voru farþegar í fólksbílnum. Meiðsl allra voru minniháttar, sem má teljast mikil mildi þar sem börnin voru ekki öll í öryggisbelti og þar að auki var einum of margir farþegar í bílnum. 23.9.2006 15:04
Vilja lækka matarverð um fjórðung Þingmenn Samfylkingarinnar kynntu í dag tillögur til lækkunar matarverðs á Íslandi sem þeir telja að geti lækkað matarreikning íslenskrar fjölskyldu um 200 þúsund á ári. Meðalfjölskylda á Íslandi eyðir um 750.000 krónum á ári í matvæli. Samfylkingin vill meðal annars fella niður vörugjöld og innflutningstolla af matvælum og lækka virðisaukaskatt af matvælum um helming. 23.9.2006 14:30
Dagur heyrnarlausra í dag Dagur heyrnarlausra er í dag og í tilefni af því er meðal annars aðalfundur félags heyrnarlausra og óvissuferð. Messa í Kirkju heyrnarlausra sem hefur verið fastur liður í hátíðarhöldum á degi heyrnarlausra fellur niður vegna þess að presturinn er í námsleyfi. Einnig er sýning á heyrnartækjum og fyrirlestrar í Heyrnar- og talmeinastöðinni. 23.9.2006 14:30
Keisaraskurðir hættulegir fyrir barnið Bandarískir vísindamenn segja keisaraskurði, sem barnshafandi kona óskar sjálf eftir, vera mun hættulegri fyrir barn en venjuleg fæðing. Í nýbirtum rannsóknarniðurstöðum þeirra kemur fram að börn sem tekin eru með keisaraskurði að ósk móðurinnar séu í þrefalt meiri hættu á að deyja í fæðingu eða eftir hana en þau sem fæðast venjulega. 23.9.2006 14:00
Lögreglan í árekstri Tvö umferðaróhöpp urðu fyrir stundu á götum Reykjavíkur. Hið fyrra varð á Borgarvegi í Grafarvogi en hið seinna varð þegar lögreglubíll var á leið á slysstað og lenti í árekstri á Höfðabakkabrúnni. Einhver slys munu vera á fólki en lögregla gat ekki gefið nánari upplýsingar að svo stöddu. 23.9.2006 13:49
Brúin yfir Jöklu farin Nú er unnið að því að rífa brúna yfir Jöklu sem stendur niðri í fyrirhuguðu lónsstæði Hálslóns, fyrir ofan Kárahnjúkastíflu. Að sögn Sigurðar Arnaldssonar, talsmanns Landsvirkjunar á Kárahnjúkum, er brúin það síðasta af mannvirkjum og búnaði verktakanna sem er fjarlægt af lónsstæðinu. Áætlað er að loka fyrir rennsli Jöklu og byrja að fylla Hálslón upp úr miðri næstu viku. 23.9.2006 13:07
Gæsaskyttan fundin Maður sem leitað var að á Eyvindarstaðaheiði er kominn í leitirnar. Björgunarfélagið Blanda var kallað út en sú leit var afturkölluð skömmu síðar. Maðurinn fannst heill á húfi. 23.9.2006 13:03