Innlent

Nýr forseti í Eistlandi

Forsetinn nýbakaði með eiginkonu sinni.
Forsetinn nýbakaði með eiginkonu sinni. MYND/AP

Fyrrverandi utanríkisráðherra Eistlands í tvö kjörtímabil, Toomas Hendrik Ilves, var í dag kjörinn forseti landsins. Hann sigraði sitjandi forseta Arnold Rüütel. Búist er við því að hann styrki tengsl Eistlands við Evrópusambandið og teygi sig meira í vestur en til Rússlands.

Toomas leggur ríkari áherslu á alþjóðleg tengsl og þykir ýmsum löndum hans hann fjarlægur og ekki nógu þjóðlegur þar sem hann er uppalinn í Bandaríkjunum og talar eistnesku með einhverjum hreim. Hann er hins vegar talinn nútímalegri en hinn 78 ára gamli Rüütel, forveri hans, sem er hluti af sovéskri kommúnistaarfleifð Eistlands, sem höfðar hins vegar fyrir vikið meira til rússneska minnihlutans í Eistlandi.

Toomas tekur við embættinu þann 9. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×