Fleiri fréttir

Helmingur yfir löglegum hraða

Hraðamælingar lögreglunnar á Akureyri við grunnskóla og í íbúðahverfum gefa til kynna að rétt um helmingur ökumanna sem eiga leið þar um virða ekki hraðatakmarkanir. Hámarkshraði við skólana er 30 km/klst þar sem mikið er af börnum á gangi í nágrenninu.

Skvettist úr brunahönum

Mörg útköll voru hjá lögreglu og slökkvilið í smáíbúðahverfinu í Reykjavík í nótt þar sem einhver skrúfaði frá brunahönum í hverfinu. Alls var skrúfað frá níu brunahönum. Varðstjóri slökkviliðsins segir hvimleitt að þurfa að eyða tíma í svona nokkuð auk þess sem þetta getur skemmt brunahanana ef frost er úti.

Unglingum vísað út af skemmtistað

Hátt í tuttugu ungmennum var vísað af lögreglu út af einum skemmtistað á Akureyri í nótt. Ungmennin voru á aldrinum sextán til að verða átján ára en aldurstakmark þar eru átján ár. Af öðrum skemmtistað þar í bæ var tveimur ungmennum, undir aldri, vísað út. Lögreglan fór á skemmtistaðina, ásamt fólki frá framhaldsskólunum á Akureyri og forvarnarfulltrúa bæjarins.

Foreldrar fá umönnunargreiðslur

Reykjanesbær mun frá og með næstu mánaðamótum greiða umönnunargreiðslur til foreldra. Tilgangurinn með greiðslunum er að gefa foreldrum aukinn möguleika á samvistum við ung börn sín. Greiddar verða þrjátíu þúsund krónur til foreldra sem lokið hafa töku fæðingarorlofs.

23 létust í lestarslysi

23 týndu lífi og 10 slösuðust þegar hraðlest, sem knúin er áfram af segulafli, fór af sporinu í norð-vestur Þýskalandi í gær. Lestin skall á faratæki viðgerðarmanna á upphækkaðri tilraunabraut og fór útaf sporinu.

Leiðtogi íraskra hryðjuverkasamtaka handtekinn

Írösk yfirvöld segjast hafa handtekið leiðtoga stærstu andspyrnusamtakanna þar í landi. Um er að ræða Ansar al-Sunna samtök súnnímúslima en liðsmenn þeirra eru sagðir bera ábyrgð á fjölmörgum sjálfsvígsárásum í Írak. Samtökin eru sögð nátengd al-Kaída hryðjuverkasamtökunum.

Bin Laden sagður látinn

Franska dagblaðið L´Est Republicain greinir frá því í morgun að Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé látinn. Þetta er haft upp úr leyniþjónustuskýrslu sem mun hafa verið lekið í blaðið. Fulltrúi franska varnarmálaráðuneytisins segist ekki geta staðfest að þetta komi fram í skýrslunni.

Létust í biðröð eftir eldsneyti

Minnst 31 manneskja lést þegar bílsprengja sprakk við eldsneytistank í sjíahverfinu Sadr í Bagdad. Flestir þeirra sem létust voru konur sem stóðu í biðröð til þess að fá hreinsað bensín til að elda á. Sprengjuárásin er með stærstu árásum undanfarnar vikur.

Kakkalakkafaraldurshætta

Hætta er á að skorkvikindum snarfjölgi á varnarsvæðinu ef því verður lítið sinnt. Kakkalakkar geta breiðst út um land ef eftirlit með svæðinu fellur niður, að mati framkvæmdastjóra umhverfissviðs Reykjanesbæjar.

Æfing gegn hryðjuverkum

Samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum fór fram fyrr í vikunni.

Bandaríkin hótuðu árás

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hitti George W. Bush að máli í gær í Hvíta húsinu. Heimsóknin komst í hámæli vegna ummæla sem Musharraf lét falla í viðtali í þættinum 60 Minutes á CBS fyrir fundinn; að Bandaríkjamenn hefðu hótað að „sprengja Pakistan aftur á steinöld“ ef ríkið fylkti ekki liði í „stríðinu gegn hryðjuverkum“.

Skiptast á að taka sér frí

Steinunn og Steinar hafa skipst á að taka sér frí undanfarnar vikur þar sem synir þeirra búa við skerta vistun á leikskóla vegna manneklu. Ekki hefur tekist að ráða faglært fólk í lausar stöður.

Hundruðum tonna eytt á mánuði

Varnarliðið vinnur nú að því að eyða miklu magni af ýmsum vörum og búnaði sem það hefur ekki talið nýtast sér annars staðar. Aron Jóhannsson, umhverfis­stjóri sorpeyðingarstöðvarinnar Kölku sem sér um eyðinguna, segir að um töluvert magn sé að ræða. Samkvæmt Aroni er um 350-400 tonnum eytt mánaðarlega og hefur verkefnið staðið yfir í nokkra mánuði. Varningurinn er af öllum toga og nær allt frá matvælum til herbúnaðar.

Fjórðungsaukning á einu ári

Yfirdráttarlán hafa aukist um fjörutíu milljarða króna síðustu tólf mánuði, eða um 24 prósent, að því er greiningardeild KB banka segir. Í lok síðasta mánaðar námu yfirdráttarlán 191 milljarði króna.

Upplýsingaflæði milli landa hefði hindrað hryðjuverk

Hefðu upplýsingar sem lágu fyrir hjá ýmsum öryggisdeildum skilað sér í miðlægan gagnagrunn hefði að líkindum verið hægt að hindra hryðjuverk sem framin voru á síðustu árum í Bandaríkjunum og Evrópu.

Landsflug hættir að fljúga til Eyja

Landsflug hefur ákveðið að hætta öllu áætlunarflugi á flugleiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Ákvörðunin tekur gildi á mánudag en arðsemin var ófullnægjandi að mati stjórnenda Landsflugs.

Fagnar þátttöku Ómars í stjórnmálum

Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðarráðherra, segist fagna hugsanlegri komu Ómars Ragnarssonar í stjórnmál. Jón telur samt hugmyndir Ómars um að hætta við að taka Kárahnjúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði í notkun flokkast undir gamansemi.

Allt gengur sinn vanagang í Tælandi

Valdaránið í Taílandi virðist varla hafa haft nokkur áhrif á daglegt líf í landinu. Allar stofnanir eru opnar og skriðdrekarnir á götum Bangkok virðast fremur draga ferðamenn að en hrekja þá frá.

Útsendingar NFS heyra sögunni til

Tuttugu starfsmönnum NFS var sagt upp í dag, þar af sjö fréttamönnum. Forstjóri fyrirtækisins segir ekki um uppgjöf að ræða, heldur verði áherslum breytt. Samfelldum fréttaútsendingum allan daginn verður hætt í kvöld, en meiri þungi lagður í kvöldfréttir og fréttir á netinu.

Hlutverk Íslendinga á Sri Lanka

Íslendingar gegna veigamiklu hlutverki á Srí Lanka, þar sem átökum virðist ekkert vera að linna. Þeir Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ingi R. Ingason myndatökumaður eru nýkomnir heim frá Srí Lanka og afraksturinn má sjá í fréttaskýringaþættinum Kompási á sunnudaginn.

Nýr varnarsamningur kynntur á þriðjudag

Búist er við að nýr varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna verði kynntur í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag. Utaníkismálanefnd Alþingis hefur verið boðuð til fundar í Þjóðmenningarhúsinu þann dag.

Stunduðu njósnir áratugum saman

Íslensk stjórnvöld hafa njósnað áratugum saman um íslenska borgara og útlendinga sem taldir eru ógna öryggi landsins. Sérstök strangleynileg öryggisþjónustudeild var stofnuð árið 1950 en jafnframt var Útlendingaeftirlitið notað að hluta sem yfirvarp fyrir njósnastarfsemi stjórnvalda. Þór Whitehead sagnfræðingur, sem rannsakað hefur starfsemina, telur hana enn í gangi.

Skífan sektuð um 65 milljónir króna

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr í sumar um að Skífan skuli greiða 65 milljónir króna í sekt fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sínu og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga.

Amerískt spínat reyndist ekki mengað

Ekkert bendir til þess að amerískt spíntat sem innkallað var af íslenskum markaði í liðinni viku hafi verið mengað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá matvælaeftirliti Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar.

Gerð grein fyrir umferðaröryggi Háaleitisbrautar

Vegna slyssins við Háaleitisbraut á dögunum, þar sem ekið var á stúlku á gangbraut, óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir því á fundi borgarráðs í gær að gerð verði grein fyrir umferðaröryggi við götuna, hvaða leiðir séu til úrbóta og að lögð verði fram aðgerðaráætlun í því efni.

Útsendingum NFS hætt í dag - 20 manns sagt upp

Ákveðið hefur verið að hætta útsendingum fréttastöðvarinnar NFS frá og með deginum í dag. Þetta kom fram á fundi Ara Edwald, forstjóra 365, með starfsmönnum. Um tuttugu manns verður sagt upp störfum, þar af átta frétta- og dagskrárgerðarmönnum.

Orðin mest sótta íslenska heimildarmyndin

Íslenska heimildarmyndin Þetta er ekkert mál er orðin sú mest sótta í íslensku kvikmyndahúsi frá upphafi. Yfir átta þúsund manns hafa borið hana augum á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá því að hún var frumsýnd en hún fjallar, eins og kunnugt er, um ævi og afrek kraftlyftingarmannsins Jóns Páls Sigmarssonar.

Al Gore kemur til landsins

Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að koma bráðlega hingað til lands og kynna sér meðal annars árangur Íslendinga á sviði endurnýjanlegrar orku.

Landsflug hættir flugi til Vestmannaeyja

Forsvarsmenn flugfélagsins Landsflugs ehf. hafa tekið þá ákvörðun að hætta öllu áætlunarflugi á Vestmannaeyjar frá og með mánudeginum 25. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir enn fremur að ákvörðunin sé tilkomin vegna þess að flugleiðin hafi ekki staðist væntingar um arðsemiskröfur.

Hörð átök vegna aftaka á Indónesíu

Til harðra átaka kom á Austur-Indónesíu í morgun þegar hópur kristinna manna frelsaði mörg hundruð fanga úr fangelsum á svæðinu, lagði elda að bílum og rændi verslanir í eigu múslima.

Kemur í fyrsta sinn fram opinberlega eftir átök

Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-skæruliða, kom fram opinberlega í dag í fyrsta sinn síðan til átaka kom milli Ísraela og skæruliðahópsins í sumar. Nasrallah tekur þátt í miklum útifundi í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag.

Á leið með trillu til Patreksfjarðar

Bátur frá björgunarsveitinni á Patreksfirði er nú á leið til hafnar með trillu í eftirdragi sem varð olíulaus í morgun. Þá var hún stödd um sjö sjómílur norður af Kópanesi sem er mitt á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.

„Skrifborðsæfing" vegna hugsanlegra hryðjuverka

Samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum var haldin í Danmörku í fyrradag. Æfingin var svokölluð „skrifborðsæfing“ þar sem látið var reyna á samskipti stjórnstöðva ríkislögreglustjóraembættanna með það að markmiði að æfa samvinnu og samhæfingu við möguleg hryðjuverkatilfelli á Norðurlöndunum.

Býður sendiherra á sinn fund

Páfi ætlar að gera tilraun til að ná sátt við múslima og hefur boðið sendiherra þeirra í heimsókn til sín til að ræða málin.

Róberti sagt upp störfum sem forstöðumaður NFS

Róbert Marshall hefur verið sagt upp störfum sem forstöðumaður NFS. Þetta kemur fram í bréfi sem hann sendi starfsfólki í morgun. Eins og greint hefur verið frá stendur til að gera breytingar á útsendingum stöðvarinnar og verða þær kynntar á næstunni.

Húsaleiga fer hækkandi á höfuðborgarsvæðinu

Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu fer hækkandi þrátt fyrir offramboð á húsnæði og að íbúðir standi tómar. Formaður Húseigendafélagsins rekur þessa þróun til þess að færri og færri fái nú fyrirgreiðslu til fasteignakaupa og að eftirspurn hafi því aukist á leigumarkaði.

Vill varanlegar lausn á húsnæðismálum NÍ

Umhverfisráðherra segir tíma til kominn að húsnæðisvandi Náttúfurfræðistofnunar Íslands og náttúrugripasafnsins verði leystur. Hún leggur til að stofnununum verði fundinn staður á Keflavíkurflugvelli.

Útlendingaeftirlitið yfirvarp fyrir íslenska njósnastarfsemi

Útlendingaeftirlitið var áratugum saman notað að hluta sem yfirvarp fyrir íslenska njósnastarfsemi. Njósnirnar beindust einkum að starfsemi austantjaldsríkja hérlendis og starfsemi kommúnista og sósísalista. Þetta kemur fram í grein Þórs Whitehead sagnfræðings, sem vakið hefur mikla athygli.

Sjá næstu 50 fréttir