Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússar og Íranar ræða kjarnorkumál Samningaviðræður Rússa og Írana um samvinnu vegna kjarnorkuáætlunar Írana hófust í Moskvu í morgun. Þetta er haft eftir talsmanni öryggisráðs rússneska þingsins. Rússar hafa boðist til þess að auðga úran fyrir Írana og þar með draga úr þeirri alþjóðadeilu sem er uppi vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran. 20.2.2006 15:45
Sagði þingmanni að hann ætti að skammast sín Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylkingar, að hann ætti að skammast sín í fyrirspurnatíma á Alþingi. Fjármálaráðherra sagði Kristján opinbera það í hvert skipti sem hann færi í ræðustól að hann kynni ekki reikning. 20.2.2006 15:36
Vilja rannsókn á sölu Búnaðarbankans Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar óskuðu eftir því við upphaf þingfundar að rannsókn yrði hafin á sölu Búnaðarbankans og blekkingum sem Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands, segir kaupendur hafa beitt. 20.2.2006 15:21
Þurfa bæði að spara kvóta og ná honum öllum Loðnusjómenn þurfa nú bæði að spara sér kvótann og gæta þess um leið að ná honum öllum því útlit er fyrir að loðnan sé að fara að hrygna og drepast og þar með veiðist ekki meir. 20.2.2006 15:17
Ráðherra segir óþolandi að samningurinn um flugið sé ekki haldinn Heilbrigðisráðherra segir það óþolandi að samningur um sjúkraflug frá Vestmannaeyjum sé ekki haldinn. Þrjú tilvik komu upp í síðustu viku þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Eyjum þegar á þurfti að halda. 20.2.2006 15:04
Hagnaður SPRON rúmir fjórir milljarðar Hagnaður SPRON á síðasta ári nam fjórum koma einum milljarði króna og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins sem birt var í dag. Hagnaðurinn jókst um 150 prósent á milli ára og nema heildareignir SPRON-samstæðunnar nú 115 milljörðum króna. 20.2.2006 15:02
Utandagskrárumræða á Alþingi um tálbeitunotkun Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir utandagskrárumræðu á Alþingi um heimildir lögreglu til að leita uppi barnaníðinga. Í ljósi umfjöllunar Kompáss á Stöð 2 og NFS í gær um barnaníðinga, og notkun á tálbeitum til að lokka þá fram, þurfi að ræða á vettvangi Alþingis hvort ekki verði að rýmka heimildir lögreglu til að beita því ráði. 20.2.2006 13:40
Aðeins sekt fyrir að smygla dópi inn á Litla-Hraun Tvítug stúlka var síðastliðinn föstudag dæmd sek í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að smygla tæplega 9 grömmum af amfetamíni inn á Litla-Hraun. Héraðsdómi þótti hæfileg refsing 150.000 króna sekt eða 12 daga fangelsi. 20.2.2006 13:30
Skýringar Landsflugs ekki fullnægjandi Þriðja tilvikið þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar á þurfti að halda kom upp á föstudag. Skýringar Landsflugs á þessum tilvikum eru engan veginn fullnægjandi, segir bæjarstjórinn í Eyjum. 20.2.2006 12:09
Ný gögn í Baugsmálinu Uppnám varð við aðalmeðferð í Baugsmálinu svo kallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar ákæruvaldið lagði fram ný gögn í málinu sem verjendur höfðu ekki séð áður og ákæruvaldið fékk fyrst í hendurnar í gær. Áætlað er að vitnaleiðslur yfir öllum ákærðu í málinu fari fram í dag. 20.2.2006 11:47
Sign fer í víking Hljómsveitin Sign er á förum til Bretlands þar sem hún mun koma fram á sínum fyrstu tónleikum utan Íslands þann 28. febrúar. Tónleikarnir fara fram á Barfly í Camden Town í London en þegar hefur töluverður fjöldi blaðamanna og útsendara plötufyrirtækja boðað komu sína á tónleikana. 20.2.2006 11:44
Jón Ásgeir bar vitni í héraðsdómi í morgun Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóhannesar Jónssonar og Kristínar Jóhannesdóttur, mómæltu framlagningu gagna sem Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari lagði fram við réttarhöld í Baugsmálinu í morgun. 20.2.2006 10:37
Kennari játar morð á nemanda sínum Japanskur kennari játaði í morgun á sig morð á einum nemenda sinna. Maðurinn kom fyrir dóm í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa ráðist með hnífi á nemendann, tólf ára gamla stúlku, inni í skólastofu og veitt henni banvæn sár. 20.2.2006 10:00
Hvalaskoðunarbátur vélarvana Skipstjóri á hvalaskoðunarbát frá Reykjavík óskaði eftir aðstoð björgunarskipsins Ásríms. S. Björnssonar undir kvöld í gær, þar sem vél bátsins hafði stöðvast, líklega af olíuleysi, eftir því sem Frétastofan kemst næst. 20.2.2006 09:47
Ný gögn lögð fram í Baugsmálinu Uppnám varð við aðalmeðferð Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar ákærandi lagði fram ný gögn í málinu sem tengjast bílainnflutningi tveggja hinna ákærðu, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Kristínar Jóhannesdóttur. Verjendur óskuðu eftir tíu mínútna réttarhléi, sem nú stendur yfir, til að fara yfir gögnin en óvíst er með framhaldið. 20.2.2006 09:33
Ný innheimmtumiðstöð opnuð á Blönduósi Á haustmánuðum ákvað dómsmálaráðherra að flytja innheimtu sekta og sakarkostnaðar á landinu í heild til embættis sýslumannsins á Blönduósi. Markmiðið með þessum breytingum er að samræma, einfalda og efla innheimtu sekta og sakarkostnaðar í öllu landinu. 20.2.2006 09:30
Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum fækkar Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum í Danmörku fækkaði töluvert á síðasta ári miðað við árin á undan. Þetta sýna bráðabirgðatölur lögreglunnar þar í landi. Ákært var í 227 málum í fyrra, eða um helmingi færri en árið 2004 þegar tæplega 460 mál fóru fyrir dómstóla. 20.2.2006 09:14
Flak þýsku flugvélarinnar fundið Flak þýsku flugvélarinnar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimmtudag er fundið. Um borð í vélinni voru fimm Þjóðverjar og einn Íraki og voru þeir allir látnir þegar komið var að vélinni. 20.2.2006 09:10
Líklega ekki um fuglaflensu að ræða í Finnlandi Heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi greindu frá því í gær að niðurstöður úr sýnum úr hræjum nokkurra svana sem fundust þar í landi bendi ekki til að fuglarnir hafi drepist úr nokkurri gerð fuglaflensu. 20.2.2006 08:39
Samstarf Rússa og Írana um auðgun úrans Íranar eru reiðubúnir að fallast á tillögur stjórnvalda í Moskvu um samstarf við auðgun úrans í Rússlandi, ef samkomulag tekst um breytingar á tillögunum í viðræðum sem hefjast í Moskvu í dag. 20.2.2006 08:31
Skotbardagi fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn Tveir liggja með skotsár á sjúkrahúsi eftir að ágreiningur manna á milli fór úr böndunum fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn í gærmorgun. Mennirnir fengu báðir byssukúlu í annan fótinn og þá var þriðji aðili skorinn í andlitið. 20.2.2006 08:07
Ísraelar afhenda ekki skatta Ísraelar ætla ekki að afhenda heimastjórn Palestínumanna skatta sem þeir taka af palestínskum verkamönnum. Þá ætla þeir heldur ekki að afhenda þeim tolla sem Ísraelsstjórn innheimtir af vörum sem Palestínumenn flytja inn. 20.2.2006 08:05
Sextíu og tveggja ára kona frá Californiu ól barn Sextíu og tveggja ára kona frá Californiu ól barn síðastliðinn föstudag og er hún meðal elstu kvenna sem það hefur gert í heiminum. Janise Wulf átti fyrir 11 börn, 20 barnabörn og þrjú barna barnabörn. Meðganga þessa 12 barns Janise gekk vel framan af, en vegna hækkandi blóðþristings var barnið tekið með keysaraskurði viku fyrir tímann. 20.2.2006 08:01
Loðnuskip að fikra sig fyrir Garðskaga Loðnuskipin, sem enn eiga eitthvað eftir af kvóta, eru nú að fikra sig fyrir Garðskaga inn á Faxaflóa á eftir loðnugöngunni, og veiða ekki nema smá slatta í einu til frystingar. 20.2.2006 08:00
Bin Laden segist ekki verða tekinn höndum lifandi Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, heitir því að hann verði aldrei tekinn höndum lifandi og segir Bandaríkjamenn hafa gripið til sömu villimannslegu úrræðanna í Írak og Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti. Þetta kemur fram í hljóðupptöku sem birt var á vefsíðu herskárra samtaka í morgun. 20.2.2006 07:55
Skotið á hús í Fossvogi Rannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík var kvödd að húsi í Fossvogi undir morgun til að rannsaka skotárás, sem gerð var á hús þar. 20.2.2006 07:55
Beit nef af kærustu sinni og gleypti það Rólegt matarboð fjölskyldu í Californíu endaði með hörmungum þegar maður beit nef af kærustu sinni og gleypti það. Jody Bannet kom fram í stofu alblóðug í framan eftir að hafa verið í rifrildum við kærsta sinn og sá þá heimilisfólkið að nefið vantað á hana, lögregla og sjúkralið var kvatt á staðinn og kærastinn hendtekinn. 20.2.2006 07:51
Skopmyndundunum af Múhameð enn mótmælt Þúsundir manna komu saman bæði í Pakistan og í Tyrklandi í gær til að mótmæla skopmyndunum af Múhameð spámanni. Lögreglan þurfti að beita táragasi og gúmmíkúlum til að dreifa mannfjöldanum sem hrópaði slagorð gegn Bush Bandaríkjaforseta. 20.2.2006 07:50
Sögulegar viðræður um framtíð Kosovo-héraðs Samninganefndir Serba og Kosovo-Albana koma saman til sögulegs fundar í Vín í Austurríki í dag til að ræða framtíð Kosovo-héraðs. Kosovo-Albanir krefjast þess að héraðið fái sjálfstæði frá Serbíu en Serbar segja Kosovo mikilvægan hluta af ríki sínu og vilja halda einhverri stjórn þar. 20.2.2006 07:44
Óttast um líf 65 námuverkamanna Óttast er að enginn hafi komist lífs af eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas, um 135 kílómetra suðvestur af Texas í Bandaríkjunum í gær. Alls eru sextíu og fimm námuverkamenn fastir inni í námunni og hefur ekkert samband náðst við þá þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. 20.2.2006 07:42
Ættu að krefjast þess að Bandaríkjamenn loki Guantanamo Ríkisstjórn Íslands ætti að krefjast þess að Guantanamo-fangelsinu verði lokað. Þetta sagði Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins í Silfri Egils í dag. Jónína Bjartmarz var gestur Egils í Silfri Egils í dag 19.2.2006 19:45
Silvía Nótt til Aþenu? Þótt Silvía Nótt hafi sigrað í keppninni um framlag Íslands í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva er óvíst að hún flytji lagið í Aþenu því kærumál gegn laginu er enn í gangi. Margir hafa líkt athyglinni sem lagið og flytjandinn hafa fengið við farsa. 19.2.2006 19:30
Eyþór Arnalds vann yfirburðarsigur í Árborg Eyþór Arnalds fyrrverandi varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vann yfirburðarsigur í prófkjöri flokksins í Árborg. Sitjandi leiðtoga var afdráttarlaust hafnað. Jóhannes Gunnar Bjarnason er nýr leiðtogi Framsóknarflokks á Akureyri. 19.2.2006 18:56
Sóðaleg viðskipti Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt í viðskiptafræði segir að S-hópurinn hafi beitt blekkingum þegar hann keypti Búnaðarbankann. Hann segir að viðskiptin hafi verið sóðaleg og rannsókn á þeim eigi að fara fram. 19.2.2006 18:32
OR segir Landvernd ganga of langt í andstöðunni Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur líkir andstöðu Landverndar við framkvæmdir í Kerlingarfjöllum við umhverfisverndarsamtökin sem sneru sér að því að fá bann við þorskveiðum þegar þeim hafði tekist að stöðva hvalveiðar. 19.2.2006 18:28
Vilja hindra að Big-Ben fái Úlfarsfellslóðirnar Meirihlutinn í borginni ætlar að leita allra leiða til þess að hnekkja þeirri niðurstöðu að allar einbýlishúsalóðirnar við Úlfarsfell, nema ein, fari til sama mannsins. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri-grænna telur að þessi niðurstaða hafi verið fyrirséð og vill endurtaka lóðaúthlutunina og láta draga um hver fái lóðirnar. 19.2.2006 18:13
Langstærsti þjóðgarður Evrópu í burðarliðnum Allt stefnir í að langstærsti þjóðgarður í Evrópu verði að veruleika á Íslandi á næstu árum. Umhverfisráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um svokallaðan Vatnajökulsþjóðgarð næsta haust. Hann myndi ná allt frá Skaftafelli í suðri til Ásbirgis í norðri. 19.2.2006 16:55
Mesta mannfall vegna skopteikninganna hingað til Sextán manns létust í hörðum átökum sem brutust út í Nígeríu í gær vegna skopteikninganna af Múhammeð spámanni. Ekki sér enn fyrir endann á afleiðingunum af myndbirtingum Jótlandspóstsins og átökin í Nígeríu í gær eru þau mannskæðustu hingað til. 19.2.2006 16:00
6 létust í flugslysi í Írak á fimmtudaginn Sex lík fundust í morgun í braki lítillar flugvélar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimtudaginn. Um borð í vélinni voru þrír Þjóðverjar og einn Íraki, en þjóðerni hinna tveggja sem létust er ekki þekkt. 19.2.2006 15:04
Tveir fundust á lífi Tveir fundust á lífi í morgun í rústum þorpsins Guinsaugon á Filippseyjum, eftir aurskriðurnar á föstudag. Vinna er hafin við að grafa upp barnaskóla þorpsins, þar sem 250 börn urðu undir tíu metra þykkri eðjunni. Útilokað þykir að nokkurt þeirra sé á lífi. 19.2.2006 13:30
Ætla að mótmæla skerðingu náms Nemendur Menntaskólans á Akureyri hyggjast fella niður nám á miðvikudaginn í næstu viku, til að mótmæla skerðingu náms til stúdentsprófs. 19.2.2006 12:53
Harður árekstur tveggja bíla Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar um klukkan hálftvö í nótt. Fleiri voru í bílunum, en þeir sluppu ómeiddir. Grunur leikur á að ökumaður annars bílsins hafi verið ölvaður. Töluverð olía lak úr bílunum eftir áreksturinn og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á vettvang til að hreinsa veginn. 19.2.2006 12:30
Tveir í haldi grunaðir um sölu fíkniefna Tveir menn eru í haldi lögreglunnar á Ísafirði grunaðir um sölu á hassi. Mennirnir voru handteknir um tíuleytið í gærmorgun í Ísafjarðardjúpi, þar sem þeir voru á leiðinni akandi til Ísafjarðarbæjar. 19.2.2006 12:30
Ofsaakstur á Kjalarnesi Lögreglan á Akranesi stöðvaði ungan ökumann fyrir ofsaakstur á Kjalarnesi í gær en hann mældist á 170 kílómetra hraða á klukkustund. Ökumaðurinn var nýkominn með fullnaðarskírteini en hefur nú sviptur því til bráðabirgða. 19.2.2006 11:30
Gerður Kristný fékk Blaðamannaverðlaun Íslands Gerður Kristný Guðjónsdóttir fékk Blaðamannaverðlaun Íslands fyrir bók sína Myndin af pabba en verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Bókin segir af lífi Thelmu Ásdísardóttur og systra hennar en við gerð bókarinnar lagðist Gerður Kristný í ítarlegar rannsóknir á lífi þeirra. 19.2.2006 11:30