Erlent

Samstarf Rússa og Írana um auðgun úrans

Íranar eru reiðubúnir að fallast á tillögur stjórnvalda í Moskvu um samstarf við auðgun úrans í Rússlandi, ef samkomulag tekst um breytingar á tillögunum í viðræðum sem hefjast í Moskvu í dag. Þetta sagði utanríkisráðherra Írans í gær. Þá sagði hann að það yrði að vera ljóst hvenær verkefninu yrði hrundið í framkvæmd. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur hrósað Rússum fyrir framlag þeirra til lausnar á deilunni um kjarnorkuáætlanir Írana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×