Innlent

Gerður Kristný fékk Blaðamannaverðlaun Íslands

MYND/

Gerður Kristný Guðjónsdóttir fékk Blaðamannaverðlaun Íslands fyrir bók sína Myndin af pabba en verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Bókin segir af lífi Thelmu Ásdísardóttur og systra hennar en við gerð bókarinnar lagðist Gerður Kristný í ítarlegar rannsóknir á lífi þeirra. Sunna Ósk Logadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu var verðlaunuð fyrir bestu umfjöllun ársinis, um rekstur og starfsemi Landspítalans og Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður Fréttablaðsins var útnefnd besti rannsóknarblaðamaður ársins fyrir úttekt sína á einkavæðingu ríkisbankanna og fréttaskrif um aðkomu áhrifamanna í aðdraganda málaferla gegn forsvarsmönnum Baugs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×