Erlent

Skopmyndundunum af Múhameð enn mótmælt

Tekist á á götum úti í Islamabad í gær.
Tekist á á götum úti í Islamabad í gær. MYND/AP

Þúsundir manna komu saman bæði í Pakistan og í Tyrklandi í gær til að mótmæla skopmyndunum af Múhameð spámanni. Lögreglan þurfti að beita táragasi og gúmmíkúlum til að dreifa mannfjöldanum sem hrópaði slagorð gegn Bush Bandaríkjaforseta. Danski sendiherrann í Islamabad hefur verið kallaður heim til Danmerkur af öryggisástæðum og var sendiráðið lokað vegna mótmælanna. Ekkert lát virðist ætla að vera á mótmælum í heiminum en hópur vopnaðra múslima réðst inn í kirkjur, búðir og bifreiðar óbreyttra borgara í Lagos í Nígeríu á fimmtudag. Þegar lögreglan náði loks tökum á ástandinu höfðu sextán manns fallið í valinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×