Skýringar Landsflugs ekki fullnægjandi 20. febrúar 2006 12:09 Frá Vestmannaeyjum MYND/Vísir
Þriðja tilvikið þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar á þurfti að halda kom upp á föstudag. Skýringar Landsflugs á þessum tilvikum eru engan veginn fullnægjandi, segir bæjarstjórinn í Eyjum. Í síðustu viku var sagt frá tveimur tilvikum þar sem þörf var á sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum en engin vél var til staðar. Í fyrra skiptið var um ræða fárveikt tveggja ára gamalt barn en í síðara tilvikinu þurfti að flytja karlmann með beinbrot til Reykjavíkur. Síðastliðinn föstudag var svo kallað eftir vélinni í þriðja skiptið á þremur dögum, án þess að hún væri til staðar. Ekki var unnt að fá upplýsingar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja í morgun um ástand hins slasaða eða veika sem þá átti í hlut. Sjúkravélin kom hins vegar aftur til Eyja seinna á föstudeginum. Fyrir helgi óskuðu Vestmannaeyjabær og heilbrigðisráðuneytið eftir skýringum frá Landsflugi, sem sér um sjúkraflugið, um ástæður þess að vél hafi ekki verið til staðar í umræddum tilvikum. Rúnar Fossádal Árnason, framkvæmdastjóri Landsflugs, sagði að skýringa væri að vænta eftir helgi. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Eyjum, sagði í samtali við NFS í morgun að skýringar hefðu borist, og þar kæmi fram að meginástæðan sem gefin sé upp sé sú að það vanti flugskýli í Eyjum fyrir vélina sem notuð er í sjúkraflugið, því Dornier-vélar af þeirri tegund sem umrædd flugvél er þurfi ávallt að geyma innandyra. Bergur segir þessar skýringar engan veginn fullnægjandi og bendir á að það standi afdráttarlaust í samningnum um sjúkraflugið að það eigi alltaf að vera vél til taks í Eyjum, og það sé algjör krafa bæjaryfirvalda að ekki sé vikið frá þeim skilmála. Þá segir bæjarstjórinn að forsvarsmenn Landsflugs hafi vitað það fullvel þegar skrifað var undir samninginn um flugið að ekkert flugskýli væri til staðar fyrir vélina. Aðspurður hvert sé næsta skref í málinu segir Bergur að bæjaryfirvöld muni funda með forsvarsmönnum Landsflugs síðar í vikunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira