Erlent

Mesta mannfall vegna skopteikninganna hingað til

Sextán manns létust í hörðum átökum sem brutust út í Nígeríu í gær vegna skopteikninganna af Múhammeð spámanni. Ekki sér enn fyrir endann á afleiðingunum af myndbirtingum Jótlandspóstsins og átökin í Nígeríu í gær eru þau mannskæðustu hingað til. Hópur vopnaðra múslima réðst inní kirkjur, búðir og bifreiðar óbreyttra borgara í Lagos í gær og þegar lögregla náði loks tökum á ástandinu, höfðu sextán manns fallið í valinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×