Erlent

Óttast um líf 65 námuverkamanna

MYND/AP

Óttast er að enginn hafi komist lífs af eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas, um 135 kílómetra suðvestur af Texas í Bandaríkjunum í gær. Alls eru sextíu og fimm námuverkamenn fastir inni í námunni og hefur ekkert samband náðst við þá þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Unnið er nú hörðum höndum við að ná mönnunum út. Súrefni er af mjög skornum skammti en námamennirnir voru á þrjú hundruð metra dýpi ofan í jörðinni þegar sprengingin varð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×