Fleiri
Tilkynnir vanhæfi bréflega 2.12.2005 06:45 Segja launin vera langt undir lágmarkstaxta Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingarmanna í Eyjafirði, segir tvö fyrirtæki á Akureyri, SS Byggi og Glugga, greiða tékkneskum starfsmönnum fyrirtækjanna lægri laun en lögbundnir lágmarkstaxtar kveði á um. 2.12.2005 06:30 Notaði dúkahníf við nauðgun Hæstiréttur þyngdi í gær um hálft ár refsingu manns sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í apríl í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu sem hann hafði áður átt í sambandi við. Þá stóð ákvörðun um 700.000 króna miskabætur. 2.12.2005 06:30 Samfylkingin tapar enn fylgi Samfylkingin tapar fylgi sjötta mánuðinn í röð samkvæmt nýrri mælingu Þjóðarpúls Gallup. Að öðru leyti eru litlar breytingar á fylgi flokka í könnuninni, sem unnin var dagana 26. til 28. nóvember. Samfylkingin mælist með rúmlega 25 prósenta fylgi, en var með um 28 prósenta fylgi í síðustu könnun Þjóðarpúlsins. 2.12.2005 06:30 Seldi vinum sínum aðgang að dóttur sinni Sjö menn sem sitja nú í gæsluvarðhaldi eða hafa verið dæmdir í Danmörku grunaðir um að hafa misnotað stúlku þegar hún var 10 ára gömul. Faðir stúlkunnar leyfði mönnunum að misnota hana gegn greiðslu. Mennirnir eru á fimmtugs aldri og allt upp í 73 ára gamlir. 2.12.2005 06:28 Almenn andstaða við einkavæðingu Aðeins einn af hverjum fjórum er hlynntur einkavæðingu heilbrigðiskerfisins, að því er fram kemur í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Tæplega einn af hverjum þremur er hlynntur einkavæðingu Landsvirkjunar. Tæp sextíu prósent eru andvíg einkavæðingu skóla, en almennt eru karlar hlynntari einkavæðingu en konur, nema hvað færri karlar vilja einkavæða Landvirkjun en konur. 2.12.2005 06:28 Skæruliðar aðsópsmiklir Uppreisnarmenn í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks skutu eldflaugum að stjórnarbyggingum og bandarískum varðstöðvum í gær. Engan sakaði þó í árásunum sem helst virðast hafa verið framdar í áróðursskyni. Skömmu eftir uppþotin héldu grímuklæddir skæruliðarnir hver sína leið. 2.12.2005 06:15 Thelma er ljósberi ársins Thelma Ásdísardóttir, sem nýlega hreif þjóðina með sér fyrir það hugrekki að segja frá þeirri reynslu sinni er hún var misnotuð af föður sínum og öðrum mönnum, mun í dag hlotnast sú viðurkenning að vera Ljósberi ársins. 2.12.2005 06:15 Listamenn fá bætur vegna skemmda á verkum Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í málum sem listamennirnir Rúrí og Bjarni Sigurbjörnsson höfðuðu á hendur ríkinu vegna skemmda sem urðu á listaverkum þeirra sem sett voru upp á Þingvöllum árið 2000 í tengslum við Kristnihátíð. 1.12.2005 22:45 Tíu árum síðar á ferðinni en annars staðar Fjölgun öryrkja hérlendis á undanförnum árum er ekkert einsdæmi. Öryrkjum tók að fjölga á Vesturlöndum upp úr 1980 og þróunin hér er aðeins tíu árum síðar á ferðinni en annars staðar segir Stefán Ólafsson prófessor. 1.12.2005 22:27 Tvö og hálft ár fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu sinni Karlmaður var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni á heimili sínu í Reykjavík fyrir rúmu ári. Réttturinn þyngdi dóm héraðsdóms um hálft ár. 1.12.2005 22:16 Sjá næstu 50 fréttir
Varað við svifryki við fjölfarnar umferðargötur Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hvetur þá sem eru viðkvæmir í öndunarfærum að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum vegna mikils svifryks. Það mælist nú yfir umhverfismörkum í Reykjavík. Búist er við áframhaldandi stillu í veðri og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir umhverfismörkum. 2.12.2005 16:53
Fær ekki að syngja á jólatónleikum Brasilíska söngkonan Daniela Mercury fær ekki að syngja á jólatónleikum Vatíkansins eins og til stóð. 2.12.2005 16:45
Thelma valin ljósberi ársins Thelma Ásdísardóttir var útnefnd Ljósberi ársins 2005 á vegum Stígamóta. Í umsögn dómnefndar segir að Thelma er útnefnd ljósberi ársins þar sem hún snart með ógleymanlegum hætti við þjóðarsálinni þegar hún steig fram og kynnti uppvaxtarár sín til að gefa öðrum styrk til að takast á við óhugnað og eyðingu í sjúkum uppeldisaðstæðum. 2.12.2005 16:37
Tók fimm í gíslingu Tæplega þrítugur karlmaður tók fimm manns í gíslingu í sjónvarpsbyggingu í borginni Jekaterínburg í Úralfjöllum í Rússlandi í morgun. Maðurinn var vopnaður hríðskotariffli og hélt fólkinu í gíslingu í tvær klukkustundir áður en hann sleppti gíslunum og gaf sig á vald lögreglu. 2.12.2005 16:25
Hæstu vextir síðan 2001 Bankastjórn Seðlabanka Íslands tilkynnti í dag um hækkun stýrivaxta um fjórðung úr prósenti og tekur breytingin gildi 6. desember. Stýrivextir Sðlabankans verða þá 10,5 prósent og hafa ekki verið hærri síðan í nóvember árið 2001. 2.12.2005 16:09
Þroskashjálp skorar á stjórnvöld að veita fé til Mannréttindaskrifstofu Landssamtökin Þroskahjálp skora á Alþingi að tryggja áfram rekstrargrundvöll Mannréttindaskrifstofu Íslands með föstum fjárveitingum á fjárlögum. Með tilkomu Mannréttindaskrifstofu Íslands skapaðist vettvangur fyrir félög og stofnanir sem starfa að mannréttindamálum og réttindabaráttu ýmissa hópa til að samhæfa krafta sína með velferð allra í huga. 2.12.2005 15:56
Krefjast afsagnar Göran Persson Mikið uppnám hefur orðið í sænskum stjórnmálum eftir að sérstök rannsóknarnefnd, sem fór yfir viðbrögð stjórnvalda vegna flóðbylgjunnar sem reið yfir Suðaustur-Asíu á annan dag jóla í fyrra, kynnti skýrslu sína í gær. Skýrslan fer hörðum orðum um viðbrögð ríkisstjórnarinnar og afsagnar forsætis- og utanríkisráðherra er nú krafist. 2.12.2005 14:29
Kálfurinn Sigurrós fæddist tæpum tveimur mánuðum fyrir tímann Sigurrós er líklega minnsti kálfurinn sem fæðst hefur í Húsdýragarðinum en hún fæddist um tveimur mánuðum fyrir tímann. Sigurrós er sannkalaður jólakálfur en hún kom í heiminn á fyrsta dag í aðventu. 2.12.2005 14:13
Lögreglan leitar bíls sem stolið var í morgun Lögreglan í Reykjavík auglýsir eftir ljós grágrænum Yaris. Bílnum var rænt fyrir utan Borgartún 33 um klukkan hálf ellefu í morgun. Bíllinn er fimmdyra og með skráningarnúmerið L J 299. Lögreglan biður þá sem hafa séð bílinn eða geta veitt einhverjar upplýsingar að hafa samband í síma 444 1000/ 444 1102. 2.12.2005 13:45
Hjálparstarfið í hættu Sameinuðu Þjóðirnar þurfa að skera verulega niður hjálparstarf á hamfarasvæðunum í Pakistan ef ekki berst meira fjármagn strax á næstu dögum. 2.12.2005 12:59
Mjólka tekin formlega til starfa Landbúnaðarráðherra opnaði Mjólku, fyrstu einkareknu mjólkurstöðina á Íslandi í áratugi í morgun. Ráðherran segir íslensku mjólkina mikla gæðavöru í stöðugri sókn. 2.12.2005 12:54
Enn tapar Samfylking fylgi Samfylkingin þarf að þétta raðirnar til að bæta úr stöðu sinni. Þetta segir formaður flokksins en fylgi hans mælist nú rétt um 26% sem er það lægsta á þessu kjörtímabili. Flokkurinn hefur misst átta prósentustiga fylgi frá því Ingibjörg Sólrún tók við. Hún hafnar því að óeining ríki innan þingflokksins en segir forystuna verða að taka á sig tap, eins og fylgisaukningu. 2.12.2005 12:25
Tæplega 100 milljónir söfnuðust á uppboði UNICEF Hátt í hundrað milljóna króna framlag safnaðist í uppboði undir hátíðarkvöldverði Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem sir Roger Moore var ræðumaður. Nokkur hundruð manns voru þar saman komin í boði Baugs, FL Group og Fons, sem fyrr um daginn höfðu gefið samtals 135 milljónir til mannúðarstarfa í Gíneu-Bissá í Afríku. 2.12.2005 12:20
Blair gefur eftir Bretar eru tilbúnir að gefa eftir hluta af endurgreiðslum sínum til að sátt náist um nýtt fjárlagafrumvarp innan Evrópusambandsins. 2.12.2005 11:13
Særði tvo yfirmenn í sjálfsmorðstilraun Bandarískur sjóliði og tveir yfirmenn hans særðust þegar hermaðurinn reyndi, að því er virtist, að fremja sjálfsmorð á herstöð í Texas í gær. Þegar yfirmennirnir komu að manninum, mundandi byssu, reyndu þeir að stöðva hann og upphófust þá átök um skotvopnið. 2.12.2005 10:50
Sá þúsundasti tekinn af lífi Þúsundasti bandaríski fanginn var tekinn af lífi í morgun, eftir að dauðarefsing var tekin upp á nýjan leik í Bandaríkjunum fyrir þrjátíu árum. 2.12.2005 10:42
Önnur vélin lenti í Keflavík í lok mars 2002 Önnur fangaflugvélin frá CIA sem staðfest er að hafi lent í Frakklandi, millilenti fyrst í Keflavík. Þetta kemur fram í dagblaðinu Le Figaro í dag. 2.12.2005 10:38
Ekið á stúlku við Melaskóla Ekið var á stúlku við Melaskóla rétt fyrir klukkan hálf níu í morgun. Hún var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar en talið er að meiðsl hennar séu lítilsháttar. Stúlkan, sem er í yngri bekkjum Melaskóla, var gangandi á gangbraut og á leið í skólann þegar ekið var á hana. 2.12.2005 09:30
Allt að 107 prósenta verðmunur á jólamatvörum Allt að 107 prósenta verðmunur var á ýmsum matvörum til jólanna í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudag. Kannað var verð m.a. á laufabrauði, konfekti, drykkjarvörum, hangikjöti og síld. 2.12.2005 09:30
Eldri borgarar á Bíldudal safna fyrir bocciasetti Eldri borgarar á Bíldudal hafa undanfarið haldið spilakvöld og spilað Félagsvist í Læk, þjónustuseli aldraðra á Bíldudal. Markmið spilakvöldanna er að safna fyrir bocchiasetti vegna mikils áhuga á íþróttinni. 2.12.2005 09:00
6 ára gamall drengur beið bana eftir árás þriggja hunda 6 ára gamall drengur beið bana í Oberglatt í Sviss í gær þegar þrír varðhundar réðust á hann. Drengurinn var á leið á dagheimili og átti aðeins eftir nokkur hundruð metra þegar hundarnir komu skyndilega hlaupandi og réðust á hann á meðan sjónarvottar stóðu hjálpvana hjá og gátu ekkert gert. 2.12.2005 08:15
Tollvörður grunaður um þjófnað Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú hugsanlega aðild tollvarðar að þjófnaðarmáli. Fjórir einstaklingar sem störfuðu hjá Samskipum urðu þá uppvísir að því að stela áfengi sem geymt var í vöruhúsi fyrir tollskyldan varning sem átti að fara til förgunar. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins leikur grunur á að umræddur tollvörður hafi tekið hluta af áfenginu. 2.12.2005 08:00
Fékk ekki bætur fyrir drátt á kransæðaaðgerð Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af hátt í tíu milljóna króna kröfu manns um bætur fyrir tjón sem hann varð fyrir vegna dráttar sem varð á því að hann fengi viðhlítandi meðferð við kransæðasjúkdómi. 2.12.2005 08:00
Aflífaður fyrir smygl Ástralskur eiturlyfjasmyglari var tekinn af lífi í Singapúr í nótt, þrátt fyrir ítrekaða beiðni ástralskra stjórnvalda um að manninum yrði sýnd miskunn. Stjórnvöld í Ástralíu eru æf vegna málsins og það gæti átt eftir að draga dilk á eftir sér. 2.12.2005 07:53
Þungur áfellisdómur yfir ríkisstjórninni Skýrsla Stefáns Ólafssonar prófessors, um örorku og velferð á Íslandi og í öðrum vestrænum löndum, er þungur áfellisdómur yfir ríkisstjórninni og blaut tuska framan í öryrkja. Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingar, í grein á heimasíðu sinni. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að skattbyrði öryrkja hér á landi hefur stóraukist frá árinu 1995. 2.12.2005 07:44
Drengur missti meðvitund í sundkennslu Ellefu ára drengur var hætt kominn í sundkennslu í sundlauginni í Bolungarvík í gærmorgun . Drengurinn var að leik í lauginni og lét sig fljóta með andlitið í kafi þegar atvikið varð. 2.12.2005 07:33
Símakaup fyrir 160 milljarða Fjárfestingar Novators, eignarhaldsfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, í evrópskum símafélögum nema að minnsta kosti 160 milljörðum króna. Stærst þessara fjárfestinga er í BTC í Búlgaríu en Björgólfur á um 75 prósent hlutabréfa í félaginu. Verðmæti BTC hefur fimmfaldast frá því að fyrirtækið var einkavætt árið 2004 en markaðsvirði félagsins er um 150 milljarðar króna. 2.12.2005 07:30
Talsvert smygl fannst um borð í Dettofossi Tollverðir fundu talsvert smygl um borð í Dettifossi í Grundartangahöfn í fyrrinótt, eftir að lögregla stöðvaði pallbíl, lestaðan smygli, á leið frá skipinu. 2.12.2005 07:16
Rafmagns-stuðbyssa fannst við húsleit í Keflavík Rafmagns-stuðbyssa fannst við húsleit hjá þekktum afbrotamanni í Kefalvík í nótt, en þeir sem verða fyrir stuði úr slíku vopni vankast og stuðið getur valdið hjartsláttartruflunum. 2.12.2005 07:14
Kjötkrókur snemma á ferð Jólasveinninn kjötkrókur kom til byggða á Akureyri í nótt, nokkuð á undan áætlun svo lögreglan handtók hann. Í fórum hans fundust þrjú lambalæri og tveir lambahryggir auk fjögurra pakka af humri í forrétt. Hann var fótgangandi og vöktu klyfjar hans eftirtekt lögreglu. 2.12.2005 07:12
Sjómenn fá 26.000 króna eingreiðslu nú í mánuðinum Landsssamband íslenskra útvegsmanna og öll samtök sjómanna sömdu um það í gær að sjómenn skyldu fá 26.000 króna eingreiðslu nú í mánuðinum, í samræmið við það sem ASÍ og Samtök atvinnulífsins sömdu um vegna endurskoðunar kjarasamninga. 2.12.2005 07:09
Einn af hverjum fjórum er hlynntur einkavæðingu heilbrigðiskerfisins Aðeins einn af hverjum fjórum er hlynntur einkavæðingu heilbrigðiskerfisins, að því er fram kemur í nýjum þjóðarpúlsi Gallups og tæplega einn af hverjum þremur er hlynntur einkavæðingu Landsvirkjunar. 2.12.2005 07:06
Fjórða fíkniefnamálið í Kópavogi á einum sólarhring Lögreglan í Kópavogi, ásamt sérsveitarmönnum frá Ríkislögreglustjóra, tollgæslumönnum og fíkniefnahundi frá Hafnarfirði gerði húsleit í þremur íbúðum í Kópavogi í nótt og fann talsvert af fíkniefnum. 2.12.2005 07:02
Við vorum svangir Brasilíumennirnir sem unnu við að setja upp gifsveggi fyrir Nýgifs fengu aldrei greidd mánaðarlaun. Ekki var gerður við þá skriflegur ráðningarsamningur. Þeir lögðu eitt sinn niður vinnu vegna þess að þeir áttu ekki peninga fyrir mat. 2.12.2005 07:00
Segja launin vera langt undir lágmarkstaxta Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingarmanna í Eyjafirði, segir tvö fyrirtæki á Akureyri, SS Byggi og Glugga, greiða tékkneskum starfsmönnum fyrirtækjanna lægri laun en lögbundnir lágmarkstaxtar kveði á um. 2.12.2005 06:30
Notaði dúkahníf við nauðgun Hæstiréttur þyngdi í gær um hálft ár refsingu manns sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í apríl í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu sem hann hafði áður átt í sambandi við. Þá stóð ákvörðun um 700.000 króna miskabætur. 2.12.2005 06:30
Samfylkingin tapar enn fylgi Samfylkingin tapar fylgi sjötta mánuðinn í röð samkvæmt nýrri mælingu Þjóðarpúls Gallup. Að öðru leyti eru litlar breytingar á fylgi flokka í könnuninni, sem unnin var dagana 26. til 28. nóvember. Samfylkingin mælist með rúmlega 25 prósenta fylgi, en var með um 28 prósenta fylgi í síðustu könnun Þjóðarpúlsins. 2.12.2005 06:30
Seldi vinum sínum aðgang að dóttur sinni Sjö menn sem sitja nú í gæsluvarðhaldi eða hafa verið dæmdir í Danmörku grunaðir um að hafa misnotað stúlku þegar hún var 10 ára gömul. Faðir stúlkunnar leyfði mönnunum að misnota hana gegn greiðslu. Mennirnir eru á fimmtugs aldri og allt upp í 73 ára gamlir. 2.12.2005 06:28
Almenn andstaða við einkavæðingu Aðeins einn af hverjum fjórum er hlynntur einkavæðingu heilbrigðiskerfisins, að því er fram kemur í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Tæplega einn af hverjum þremur er hlynntur einkavæðingu Landsvirkjunar. Tæp sextíu prósent eru andvíg einkavæðingu skóla, en almennt eru karlar hlynntari einkavæðingu en konur, nema hvað færri karlar vilja einkavæða Landvirkjun en konur. 2.12.2005 06:28
Skæruliðar aðsópsmiklir Uppreisnarmenn í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks skutu eldflaugum að stjórnarbyggingum og bandarískum varðstöðvum í gær. Engan sakaði þó í árásunum sem helst virðast hafa verið framdar í áróðursskyni. Skömmu eftir uppþotin héldu grímuklæddir skæruliðarnir hver sína leið. 2.12.2005 06:15
Thelma er ljósberi ársins Thelma Ásdísardóttir, sem nýlega hreif þjóðina með sér fyrir það hugrekki að segja frá þeirri reynslu sinni er hún var misnotuð af föður sínum og öðrum mönnum, mun í dag hlotnast sú viðurkenning að vera Ljósberi ársins. 2.12.2005 06:15
Listamenn fá bætur vegna skemmda á verkum Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í málum sem listamennirnir Rúrí og Bjarni Sigurbjörnsson höfðuðu á hendur ríkinu vegna skemmda sem urðu á listaverkum þeirra sem sett voru upp á Þingvöllum árið 2000 í tengslum við Kristnihátíð. 1.12.2005 22:45
Tíu árum síðar á ferðinni en annars staðar Fjölgun öryrkja hérlendis á undanförnum árum er ekkert einsdæmi. Öryrkjum tók að fjölga á Vesturlöndum upp úr 1980 og þróunin hér er aðeins tíu árum síðar á ferðinni en annars staðar segir Stefán Ólafsson prófessor. 1.12.2005 22:27
Tvö og hálft ár fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu sinni Karlmaður var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni á heimili sínu í Reykjavík fyrir rúmu ári. Réttturinn þyngdi dóm héraðsdóms um hálft ár. 1.12.2005 22:16