Fleiri
Tollgæslan tók jólasteikurnar 1.12.2005 07:45 Söfnun hafin fyrir Særúnu Bekkjarfélagar safna fé fyrir Særúnu Sveinsdóttur sem missti fæturna. 1.12.2005 07:45 SMS fyrir 1,5 milljarða á ári 1.12.2005 07:30 Tryggir sér búlgarska Símann Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar hefur tryggt sér yfirráð yfir búlgarska símafélaginu BTC sem er skráð í kauphöllinni í Búlgaríu. Félag í eigu Björgólfs gekk í gær frá kaupum á félagi sem átti 65 prósent í BTC. 1.12.2005 07:30 Kennsla í listdansi einkavædd Kennsla í listdansi verður einkavædd í haust ef áætlanir menntamálaráðuneytisins ganga eftir. Viljayfirlýsing á milli Menntaskólans í Hamrahlíð og forsvarsmanna nýs listdansskóla um greiðslu fyrir danskennslu verður undirrituð í dag. 1.12.2005 07:30 Lögregla kölluð átta sinnum út vegna búðahnupls Lögreglan í Reykjavík var köllluð átta sinnum út til að taka á búðahnupli í gær. Að sögn lögreglu kemur fólk á öllum aldri við sögu og virðist efnahagur ekki heldur skipta máli. 1.12.2005 07:16 Búið að undirrita kjarasamning milli Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjavíkurborgar Samningamenn Sjúkraliðafélags Íslands undirrituðu í gærkvöldi nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg, í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Hann er á líkum nótum og sjúkraliðar sömdu um við ríkið. Samningurinn verður borinn undir atkvæði félagsmanna á næstunni. 1.12.2005 07:14 Sjá næstu 50 fréttir
Mesti verðmunur 107 prósent Það skiptir máli hvar fólk kaupir inn til jólanna. Samkvæmt verðkönnun ASÍ munar allt að 107 prósentum á klassískum jólavörum, mestu á Jólasíld sem kostar 289 krónur í Bónus en 599 krónur í 10-11. Verð 34 vara var skoðað. 1.12.2005 20:15
Brasilíumenn af landi brott í fyrramálið Fimm brasilískir verkamenn, sem leituðu til Samiðnar vegna vangoldinna launa í gær, fara úr landi í fyrramálið. Samiðn telur þá eiga samtals um þrjár milljónir króna hjá fyrirtækinu Nýgifsi sem þeir unnu fyrir. 1.12.2005 20:00
Tilkynnt um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Í kvöld var tilkynnt hvaða bækur eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunna í ár. Annað árið í röð er glæpasaga tilnefnd í flokki fagurbókmennta, en það er bókin Tími nornarinnar eftir Árna Þórarinsson. 1.12.2005 19:59
Hæstiréttur sýknaði fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood Hæstiréttur sýknaði í dag fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood af kröfum fyrirtækisins. Mennirnir hættu hjá fyrirtækinu, lögbann var sett á þá, en þeir segjast ekki hafa byrjað hjá keppinautnum, fyrr en lögbanninu lauk. 1.12.2005 19:45
Ramadi hertekin í morgun Yfir fjögur hundruð uppreisnarmenn hertóku miðborg Ramadi í Írak í morgun. Ekki hafa fengist upplýsingar um mannfall en á veggspjöldum sem hafa verið hengd upp um alla borg segir að al-Qaida hafi náð völdum í borginni. 1.12.2005 19:27
Líklega gengið frá kaupum fyrir áramótin Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, hefur gert tilboð í Toyota-umboðið, P. Samúelsson hf. Búist er við að gengið verði frá kaupum hans á þessu stærsta bílaumboði landsins fyrir áramót. 1.12.2005 18:30
Mikill áhugi fyrir tónleikum gegn virkjanastefnu Miðar í stúku seldust upp á aðeins fjórum mínútum á stórtónleika gegn virkjanastefnu, en þar munu margir af helstu tónlistarmönnum Íslands koma fram auk erlendra tónlistarmanna. Mikill áhugi er fyrir tónleikunum en erlendir tónlistamenn hafa beðið um að fá að koma fram á tónleikunum. 1.12.2005 17:25
Sakfelldur fyrir skilorðsrof og dæmdur í ársfangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í eins árs fangelsi fyrir að hafa með fíkniefnabroti rofið skilorð. Rétturinn þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um átta mánuði og staðfesti jafnframt upptöku á amfetamíni og e-pillum sem fundust á manninum á dansleik á Akureyri í fyrra. 1.12.2005 17:25
Fara í fyrsta lagi í febrúar á næsta ári Fjölmennt herlið á vegum Atlantshafsbandalagsins í Pakistan getur í fyrsta lagi farið þaðan í lok febrúar á næsta ári. NATO sendi um eitt þúsund hjúkrunarliða, verkfræðinga og þyrluflugmenn til hamfarasvæðanna í Pakistan, eftir að jarðskjálft reið þar yfir hinn áttunda október. 1.12.2005 17:14
Sjúkraliðar samþykkja samning Sjúkraliðar sem starfa á Hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli í Reykjavík hafa samþykkt kjarasamning. Samningurinn var undirritaður á fimmtudag í síðustu viku en samþykktur í atkvæðagreiðslu í dag. 1.12.2005 17:09
Átök einkenndu þingkosningar í Egyptalandi Átök hafa einkennt þriðju og síðustu umferð þingkosninganna í Egyptalandi sem fram fóru í dag. Að minnsta kosti einn maður hefur látið lífið í átökunum. 1.12.2005 17:06
Yngsta fólkið óttast ekki verðbólgu Verðbólga veldur sextán til 24 ára fólki minnstum áhyggjum en 25 til 34 ára fólki mestum áhyggjum. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun Gallup fyrir Samtök iðnaðarins. Þar kemur fram að 54 prósent aðspurðra sögðu mikla verðbólgu valda sér mjög eða frekar miklum áhyggjum en 37 prósent sögðu hana valda sér mjög eða frekar litlum áhyggjum. 1.12.2005 17:00
Búist við jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá borgarsjóði Hreinar skuldir borgarsjóðs Reykjavíkur hafa lækkað um 1,4 milljarða króna samkvæmt árshlutauppgjöri sem lagt var fyrir borgarráð í dag. Í tilkynningu frá borgarstjóra segir að rekstrarniðurstaða borgarsjóðs 30. september 2005 hafi verið jákvæð um 743 milljónir króna, en samkvæmt útkomuspá verður niðurstaðan í árslok hagstæð sem nemur 549 milljónum. 1.12.2005 16:45
Drengur hætt kominn í sundlaug Bolungarvíkur Ellefu ára drengur var hætt kominn í sundkennslu í sundlauginni í Bolungarvík í morgun þegar hann var að leik. Drengurinn lét sig fljóta með andlitið í kafi en þegar hann hafði verið þannig nokkuð lengi fór félaga hans að gruna að ekki væri allt með felldu. 1.12.2005 16:27
Skattbyrðin hefur tvöfaldast Skattbyrði öryrkja hefur aukist mjög síðasta áratuginn samkvæmt nýrri rannsókn Stefáns Ólafssonar prófessors. Skattbyrði einhleypra öryrkja hefur farið úr sjö prósentum í sautján prósent, eða rúmlega tvöfaldast, og skattbyrði öryrkja í sambúð hefur aukist um 60 prósent. 1.12.2005 16:24
Borgarráð samþykkir tilboð í Heilsuverndarstöðina Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að taka tilboði verktakafyrirtækisins Mark-Húsa í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Þar með er ljóst að fyrirtækið eignast húsið. Mark-Hús buðu 980 milljónir króna í húsið, um fimmtíu milljónum meira en sá sem átti næsthæsta tilboð. 1.12.2005 15:49
Skrifað undir viljayfirlýsingu um listdanskennslu Í dag var undirrituð viljayfirlýsing milli menntamálaráðuneytis, Menntaskólans við Hamrahlíð og Dansmenntar ehf. um samstarf um listdansnám á framhaldsskólastigi. Dansmennt tekur því við hlutverki Listdansskóla Íslands sem lagður verður niður í vor. 1.12.2005 15:13
Allt að 300 prósenta munur Það munar allt að 300 prósentum á hæsta og lægsta verði bökunarvara samkvæmt verðkönnun ASÍ. Í meira en helmingi tilfella munar 50 prósentum eða meira í verði milli verslana en kannað var verð 45 vörutegunda. Í tíu tilvikum var verðmunurinn meira en 100 prósent. 1.12.2005 14:42
Aftur hryðjuverk í Bangladesh Einn lést og tuttugu og fimm manns eru sárir eftir öfluga sprengingu við dómhús í Bangladesh í morgun. 1.12.2005 13:15
Skilaboð Sameinuðu á alþjóðlega alnæmisdeginum Þjóðir heims mega ekki sofa á verðinum í baráttunni við alnæmi, þó að fjölmiðlar hafi fjallað meira um aðra sjúkdóma undanfarin misseri. Þetta eru skilaboð Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlega alnæmisdeginum sem er í dag. 1.12.2005 12:23
Þórunn Björnsdóttir fær Barnamenningarverðlaununum árið 2005 Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri Skólakórs Kársness, tók við Barnamenningarverðlaununum árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn sem veðlaunin eru veitt en Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, veitti verðlaunin í húsakynnum fyrirtækisins fyrr í dag. 1.12.2005 12:14
Roger Moore kynnti hæsta framlag íslenskra fyrirtækja til þróunarhjálpar Þrjú íslensk stórfyrirtæki ætla að veita Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, 135 milljónir króna í styrk til þróunarhjálpar í Afríkuríkinu Gínea-Bissá. Þetta er hæsta framlag íslenskra fyrirtækja til þróunarhjálpar sem veitt hefur verið. Sir Roger Moore, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna, kom hingað til lands af þessu tilefni. 1.12.2005 12:14
Össur kaupir stærsta stoðtækjafyrirtæki Bretlands Össur hefur keypt stærsta dreifingar- og sölufyrirtæki á stoðtækjum í Bretlandi. Kaupverðið á fyrirtækinu Innovative Medical Products Holding er átján og hálf miljón bandaríkjadala eða um tolf hundruð milljónir króna. 1.12.2005 11:34
Þriðji hver starfsmaður myndi þiggja mútur Einn af hverjum þremur opinberum starfsmönnum í Víetnam myndi þiggja mútur ef honum byðist það. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem gerð var þar í landi. Spilltustu starfsmennirnir samkvæmt könnuninni eru þeir sem sjá um úthlutanir á landssvæðum og húsnæði en fast á hæla þeirra koma lögreglumenn, tollverðir og starfsmenn skattsins. 1.12.2005 10:30
A Little Trip to Heaven valin til sýninga á Sundance kvikmyndahátíðinni Kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, hefur verið valin til sýninga á bandarísku Sundance kvikmyndahátíðin sem haldin verður dagana 19.-29. janúar næstkomandi. Kvikmyndahátíðin er stærsta og virtasta kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum. 1.12.2005 10:30
Málfundafélagið Faxi og Nesprýði ehf. hlutu menningarveðlaun Reykjanesbæjar árið 2005 Málfundafélagið Faxi og Nesprýði ehf. hlutu Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2005 sem afhent voru í gær. 1.12.2005 10:00
Ekki aðgengi fyrir alla í norrænum þinghúsum Ekki er aðgengi fyrir alla í norrænu þinghúsunum samkvæmt könnun sem sem norræna samstarfsnefndin um málefni fatlaðra gerði á aðgengismálum. Í könnuninni kemur fram að nær ómögulegt er fyrir þá sem eru í hjólastól að flytja ræðu í ræðustólum húsanna og þá er aðgengi fatlaðra að vefupplýsingum ekki nægilega gott. 1.12.2005 09:45
Einfætt íþróttahetja á Íslandi Sarah Reinersten varð fyrsta aflimaða konan til að ljúka hinni svokölluðu Járnkalla-þríþraut í október síðastliðnum. Sarah, sem missti fótinn fyrir ofan hné á vinstri fæti þegar hún var sjö ára gömul, er stödd á Íslandi þessa vikuna. Járnkalla þríþrautin felst í því að synda fjóra km í sjó, hjóla 180 km í skóglendi og við erfiðar aðstæður og loksins að hlaupa heilt maraþon. Til að hljóta nafnbótina Járnkall verður fólk að ljúka þessu öllu á innan við 17 klukkustundum. 1.12.2005 09:45
Hafa hertekið Ramadí Fjögur hundruð vopnaðir írakskir uppreisnarmenn hafa hertekið hluta af borginni Ramadi í Írak. Þá skutu uppreisnarmennirnir úr sprengjuvörpum á herstöð Bandaríkjamanna og einnig á opinbera byggingu í borginni. 1.12.2005 09:30
Feður tóku aðeins fjóra daga umfram sjálstæðan rétt í fyrra Feður í fæðingarorlofi í fyrra tóku aðeins að jafnaði fjóra daga af þeim þremur máðunum sem foreldrar mega skipta á milli sín samkvæmt lögum. Þetta kemur fram í Staðtölum Tryggingastofnunar. Þetta þýðir að mæður taka að jafnaði sex mánuði í fæðingarorlof en þetta er svipað hlutfall og árið 2003 þegar sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs varð þrír mánuðir. 1.12.2005 09:00
Karlaráðstefna um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi Nú klukkan níu hefst Karlaráðstefna um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum með þeirri undantekningu að frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, mun ávarpa ráðstefnuna og sitja hana sem verndari og heiðursgestur. Það er Árni Magnússon félagsmálaráðherra sem boðar til karlaráðstefnunnar en karlar eru hvattir til að mæta. 1.12.2005 08:55
Læknar í Frakklandi hafa framkvæmt fyrstu andlitságræðslu sögunnar Læknar í Frakklandi hafa framkvæmt fyrstu andlitságræðslu sögunnar. Læknarnir segja aðgerðina hafa heppnast vel og að hið nýja andlit virki eðlilegt. 1.12.2005 08:30
78 meintir meðlimir eiturlyfjahrings handteknir Sjötíu og átta manns, sem grunaðir eru um aðild að kólumbískum eiturlyfjahring, voru handteknir í Kólumbíu og Bandaríkjunum í gær. Hópurinn er grunaður um að hafa staðið að smygli á eiturlyfjum til Bandaríkjanna, meðal annars með því að fela efnin inni í húsgögnum og málverkum. 1.12.2005 08:11
Meirihluti Bandaríkjamanna efast um sigur í Írak Meirihluti Bandaríkjamanna efast um að George Bush Bandaríkjaforseti búi yfir áætlun sem muni leiða til "sigurs Bandaríkjamanna", eins og það er orðað, í Íraksstríðinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir CNN sjónvarpsstöðina og dagblaðið USA Today en könnunin var birt í gærkvöldi. 1.12.2005 08:03
Framtíð í nýju landi björt Framtíð í nýju landi er þriggja ára tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að aðstoða víetnömsk ungmenni á aldrinum 15 til 25 ára við að afla sér menntunar og verða virkari í íslensku samfélagi. Samkvæmt Anh-Dao Tran, verkefnisstjóra, gengur verkefnið mjög vel, en í gær var eitt ár frá því það var sett á laggirnar. 1.12.2005 08:00
Mokstur hafin á vegum á Vestfjörðum Í nágrenni Reykjavíkur er hálka og skafrenningur um Hellisheiði, en greiðfært um Reykjanesbraut, Suðurnes og einnig upp í Borgarnes. Á Vestfjörðum er víða hafinn mokstur á vegum, t.d um Klettsháls, Hálfdán, Dynjandis- og Hrafseyrarheiðar, Um Djúp og Steingrímsfjarðarheiði. Þá er einnig verið að hreinsa með Suðausturströndinni. 1.12.2005 07:55
Bandaríski herinn borgar írökskum dagblöðum fyrir að birta jákvæðar blaðagreinar um herinn Bandaríski herinn borgar írökskum dagblöðum á laun fyrir að birta jákvæðar blaðagreinar um aðgerðir Bandaríkjahers í Írak. Dagblaðið Los Angeles Times hefur komist yfir gögn sem staðfesta þetta. 1.12.2005 07:50
Sífellt fleiri frá bráðalyf gegn HIV veirunni í Danmörku Um hundrað einstaklingar fengu bráðalyf gegn HIV veirunni í Danmörku á síðasta ári. Það er tvöfalt fleiri en fyrir fimm árum. 1.12.2005 07:45
Söfnun hafin fyrir Særúnu Bekkjarfélagar safna fé fyrir Særúnu Sveinsdóttur sem missti fæturna. 1.12.2005 07:45
Tryggir sér búlgarska Símann Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar hefur tryggt sér yfirráð yfir búlgarska símafélaginu BTC sem er skráð í kauphöllinni í Búlgaríu. Félag í eigu Björgólfs gekk í gær frá kaupum á félagi sem átti 65 prósent í BTC. 1.12.2005 07:30
Kennsla í listdansi einkavædd Kennsla í listdansi verður einkavædd í haust ef áætlanir menntamálaráðuneytisins ganga eftir. Viljayfirlýsing á milli Menntaskólans í Hamrahlíð og forsvarsmanna nýs listdansskóla um greiðslu fyrir danskennslu verður undirrituð í dag. 1.12.2005 07:30
Lögregla kölluð átta sinnum út vegna búðahnupls Lögreglan í Reykjavík var köllluð átta sinnum út til að taka á búðahnupli í gær. Að sögn lögreglu kemur fólk á öllum aldri við sögu og virðist efnahagur ekki heldur skipta máli. 1.12.2005 07:16
Búið að undirrita kjarasamning milli Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjavíkurborgar Samningamenn Sjúkraliðafélags Íslands undirrituðu í gærkvöldi nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg, í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Hann er á líkum nótum og sjúkraliðar sömdu um við ríkið. Samningurinn verður borinn undir atkvæði félagsmanna á næstunni. 1.12.2005 07:14