Innlent

Varað við svifryki við fjölfarnar umferðargötur

Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hvetur þá sem eru viðkvæmir í öndunarfærum að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum vegna mikils svifryks. Það mælist nú yfir umhverfismörkum í Reykjavík. Búist er við áframhaldandi stillu íveðri og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir umhverfismörkum. Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×