Fleiri fréttir

250 höfðu kosið á hádegi

250 höfðu tekið þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins í Kópavogi á hádegi. Fjórtán eru í framboði, þar af fimm sem stefna á fyrsta sæti á lista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar.

Frjálshyggjan á hröðu undanhaldi

Frjálshyggjan er á hröðu undanhaldi um allan heim, líka á Íslandi, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í morgun. Hún sagði stjórnmálabaráttuna á Íslandi standa milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.

Handsömun katta

Kettir voru fyrirferðamiklir á fundi borgarráðs í fyrradag. Á fundi borgarráðs voru bæði lögð fram drög að verklagsreglum um handsömun katta og drög að nýrri gjaldskrá um kattahald. Það er skemmst frá því að segja að hvort tveggja var samþykkt samhljóða.

Treysta Stefáni Jóni betur

Sextíu og sjö prósent þeirra borgarbúa sem taka afstöðu treysta Stefáni Jóni Hafstein betur en Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem næsta borgarstjóra. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Frjálsrar verslunar. Þá fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í borgarstjórn ef kosið yrði nú.

Búa sig undir miklar óeirðir

Frönsk yfirvöld hafa gripið til frekari varúðarráðstafana og hert öryggisgæslu mikið þar sem búist er við óeirðum vegna ákvörðunar um sólarhringsbann við almennum fundum utandyra, sem tók gildi klukkan níu í morgun. Þúsundir lögreglumanna standa vaktina í París, en óttast er að óeirðaseggir hvetji til skemmdarverka í borginni.

Átta bítast um efsta sæti

Prófkjör Framsóknarmanna í Kópavogi hófst klukkan tíu í morgun. Fjórtán eru í framboði og þar af átta sem gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem haldnar verða næsta vor.

Smíða vélmenni

Hópur barna á aldrinum tíu til sextán ára láta í dag reyna á hugvit sitt og hæfileikann til þess að vinna saman. Þessir íslensku grunnskólanemar ætla í dag að keppa í alþjóðlegri hönnunarkeppni þar sem þau smíða vélmenni úr legókubbum, forrita það og láta það síðan leysa ýmsar erfiðar þrautir.

Sex teknir vegna fíkniefnasölu

Sex voru handteknir í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna gruns um sölu, vörslu og neyslu fíkniefna. Þeir sem voru handteknir eru allir á aldrinum fimmtán til 24 ára.

Sjálfstæðismenn ynnu borgina

Sjálfstæðismenn fengju hreinan meirihluta ef kosið yrði nú til borgarstjórnar samkvæmt skoðanakönnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is.

Finnur ódýr flugfargjöld

Nú hefur stórfyrirtækið Google blandað sér í slaginn um þá viðskiptavini sem ferðast hvað mest og býður nú nýja þjónustu þar sem allir eiga að geta fundið ódýrustu flugmiða sem völ er á gegnum vefsíðu fyrirtækisins.

Nýrra aðlögunarleiða leitað

Síðla fimmtudagsins 27. október létu tveir unglingsdrengir, annar ættaður frá Malí, hinn frá Túnis, lífið er þeir reyndu að fela sig í spennustöð jarðlestarstöðvar í Parísarúthverfinu Clichy-sous-Bois. Sú saga gekk að drengirnir hefðu verið á flótta undan lögreglu og allt fór í bál og brand. Það var sem kveikt hefði verið í púðurtunnu.

Aðilar vinnumarkaðarins funda

Forsendunefnd aðila vinnumarkaðarins ætlar að hittast um eitt leytið í dag. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segist sæmilega bjartsýnn á gang viðræðna.

Svíar og Japanar njóta ásta

Engar þjóðir njóta ásta jafn mikið í eldhúsinu eins og Svíar og Japanir. Fimmti hver einstaklingur í þessum löndum segist hafa stundað ástarleiki í eldhúsinu einu sinni eða oftar. Þetta eru niður­stöður nýrrar Gallup-könnunar sem gerð var fyrir Ikea í 28 löndum.

Ók ofan í Héraðsvötn

Ökumaður fór útaf veginum áður en hann kom að brúnni yfir vestari ós Héraðsvatna í Skagafirði eldsnemma í gærmorgun og endaði ökuferðin útí fljóti. Maðurinn slapp með minniháttar meiðsl og segir lögreglan það mikið mildi því árbakkinn er brattur þar sem bíllinn fór fram af.

Þögn sló á borgir Evrópu

Í gær var þess minnst víða um Evrópu að 87 ár voru liðin frá því samið var um vopnahlé í heimsstyrjöldinni fyrri. Klukkan ellefu að morgni ellefta dags ellefta mánaðar ársins 1918 þögnuðu byssurnar sem höfðu gelt nær linnulaust síðustu fjögur árin á undan.

Ræningjar léku á lögreglu

Vopnaðir menn rændu peningageymslu öryggisfyrirtækisins Securitas í bænum Jönköping í Svíþjóð í gær. Ljóst er að ræningjarnir afvegaleiddu lögregluna með sprengjuhótun við háskólann í Jönköping en þar eru að minnsta kosti fjórir Íslendingar við nám. Engin sprengja fannst.

Sýslumaður hafnaði lögbanni

Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í gær lögbannskröfu á sýningu heimildarkvikmyndarinnar Skuggabörn og var hún frumsýnd í gærkvöld í Regnboganum eins og áætlað var. Skuggabörn fjallar um undir­heima Reykjavíkur og í henni er fylgst með blaðamanninum Reyni Traustasyni sem rannsakað hefur þá veröld síðastliðin tvö ár.

Frumvarpið verður mildað

Danska ríkisstjórnin íhugar nú breytingar á frumvarpi um varnir gegn hryðjuverkum. Í frétt Berlingske Tidende segir að þetta sé gert í kjölfar niðurstöðu breska þingsins um að fella sams konar frumvarp þar í landi. Talið er líklegt að heimildir til símahlerana og myndbandsupptöku á opinberum stöðum verði ekki eins rúmar og upphaflega var gert ráð fyrir. Frumvarpið hefur töluvert verið gagnrýnt í Danmörku, ekki síst af þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna.

Kína og kjarnorkuvandi á Kóreuskaganum

Þessa dagana standa yfir í Peking viðræður um kjarnorkumál á Kóreuskaganum. Þótt öll spjót beinist nú að Norður-Kóreu eru Kínverjar einnig í flókinni stöðu þar sem þeir freista þess að fá deilendur til að sættast á tímamótasáttmála sem undirritaður var í

Vill frekar spennu en atvinnuleysi

Halldór Ásgrímsson fór vítt og breitt í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í Kópavogi í gær. Hann sagði engar forsendur fyrir því að Seðlabankinn héldi áfram að hækka vexti.

120 manns teknir höndum

Jórdönsk yfirvöld skýrðu frá því í gær að 120 manns hefðu verið teknir fastir í tengslum við hryðjverkin í Amman á miðvikudagskvöld. Al-Kaída segir í yfirlýsingu að sjálfsmorðsprengju­mennirnir hafi verið fjórir en ekki þrír eins og í upphafi var talið.

Fróði braut á ritstjóra

"Ég vildi fá staðfestingu á því að þessi uppsögn væri ólögleg. Ég vildi einnig minna atvinnuveitendur á að þessi uppsagnarvernd í fæðingarorlofslögunum er í gildi og hana ber að virða," segir Lóa Aldísardóttir fjölmiðlakona. Úrskurðunarnefnd í fæðingar- og foreldraorlofsmálum úrskurðaði í fyrradag að tímaritaútgáfan Fróði hafi brotið fæðingarorlofslög í máli Lóu sem þá var ritstjóri Húsa og híbýla.

Veikir í tvær vikur á ári

Munurinn á fjölda veikindadaga ríkisstarfsmanna og starfsmanna einkafyrirtækja í Danmörku hefur aukist undanfarin ár. Ríkisstarfsmenn verða veikir að meðaltali 14,5 daga á ári en aðrir launþegar í átta daga.

Flugmaðurinn hafði millilent

Flugvellinum í Karlstad í Svíþjóð var lokað um hádegisbilið í gær þar sem maður var grunaður um sjálfsmorðssprengjuárás. Maður sást á vappi með nokkrar töskur nálægt flugturninum og var strax hringt úr síma flugmálastjórnarinnar á vellinum í lögregluna. Flugstöðin var rýmd, flugvellinum var lokað og björgunarsveitin mætti á staðinn meðan lögreglan rannsakaði svæðið. Engin sprengja fannst enda kom í ljós að um var að ræða flugmann sem hafi millilent á flugvellinum.

Tína hundaskít á Geirsnefi

Hundaeigendur ætla að gera sér glaðan dag á Geirsnefi á morgun - og tína hundaskít. Þrátt fyrir að öll aðstaða sé til að hreinsa upp eftir hunda þarna, skortir á hirðusemi hundaeigenda, sem getur leitt til þess að hundar veikist og jafnvel drepist.

Megirðu brenna í helvíti, Zarqawi

„Megirðu brenna í helvíti, Abu Musab al-Zarqawi", hrópuðu þúsundir Jórdana á götum Amman í dag þar sem þeir mótmæltu hryðjuverkaárásum al-Qaida í fyrrakvöld. Þessi reiði Jórdana virðist hafa komið leiðtogum hryðjuverkasamtakanna á óvart því þeir sendu frá sér aðra yfirlýsingu í dag þar sem reynt var að réttlæta sjálfsmorðssprengingarnar sem urðu nær sextíu manns að bana.

Rjúpur seldar á uppsprengdu verði

Rjúpnaveiðimenn óttast að veiðibann verði sett á aftur vegna ofveiði. Rjúpur ganga nú kaupum og sölum á allt að fjögur þúsund krónur stykkið, þrátt fyrir sölubann. Það þýðir að fimm manna fjölskylda greiðir um tuttugu þúsund krónur fyrir kjötið í jólamatinn.

Hagræðing við HA

Uppbyggingu Háskólans á Akureyri verður haldið áfram af fullum krafti segir menntamálaráðherra, og bendir á að betur hafi verið gert við hann en aðra háskóla. Þorsteinn Gunnarsson rektor fór yfir væntanlegar sparnaðaraðgerðir með nemendum og starfsmönnum í dag. Þeir telja einsýnt að segja þurfi upp fólki.

Verðbólgan farin að lækka

Lækkandi verðbólga bendir til mjúkrar lendingar í hagkerfinu, segir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Greinilegt sé að aðhald í ríkisrekstri og vaxtahækkanir Seðalabankans skili árangri. Aðkoma ríkisvaldsins að kjarasamningum var rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og er forsætisráðherra bjartsýnn á að samningar haldi.

Refsingu frestað

Rangt var farið með dómsorð Hæstaréttar í máli lögreglumanns, sem ók í veg fyrir bifhjólamann, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hið rétta er að refsingu lögregluþjónsins var frestað og verður látin niður falla að tveimur árum liðnum. Fréttastofa Stöðvar 2 biðst velvirðingar á þessum leiðu mistökunum.

Með sólarrafhlöður á þakinu

Það hafa verið alls kyns vandræði með orkufyrirtækin í Kaliforníu undanfarin ár. Fjölskylda ein í ríkinu hefur litlar áhyggjur af því, enda keypti hún hús með sólarrafhlöðum á þakinu. Þær eru svo öflugar að rafmagnsreikningurinn er hreint hlægilegur.

Vill ekki nefna leiðir

Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, getur ekki tilgreint með hvaða hætti hann vill jafna kjör opinberra starfsmanna og fólks á almennum vinnumarkaði.

Karnival í Köln

Köln í Þýskalandi er ekki fyrsta borgin sem kemur í hugann þegar minnst er á karnival. Kölnarbúar blása þó á slíkt og klukkan 11.11 í morgun, þann 11.11., hófst þeirra árlega kjötkveðjuhátíð. Hitastigið var heldur lægra en í Ríó í febrúar, enda voru búningarnir heldur efnismeiri en þar tíðkast.

Bílvelta nærri Svínavatni

Bíll valt á Biskupsstungnabraut, skammt frá Svínavatni, í dag. Ökumaður, sem var einn í bílnum, virðist hafa sloppið með minniháttar meiðsl en hann var fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi til rannsókna.

Bíll endaði úti í á eftir aðsvif ökumanns

Betur fór en á horfðist þegar bíll fór út af veginum við Vesturósbrú nærri Sauðárkróki í morgun og endaði úti í ósnum. Ökumaður bílsins fékk aðsvif þegar hann kom akandi niður hlíð skammt frá brúnni.

Færeyingar láta kanna meint fangaflug í sinni lofthelgi

Færeyingar hafa nú bæst í hóp þeirra þjóða sem áhyggjur hafa af meintu fangaflugi bandarísku leyninþjónustunnar. Joannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, hefur beðið dönsk yfirvöld að kanna hvort CIA hafi misnotað færeyska lofthelgi og flogið yfir lofthelgi eyjanna með grunaða hryðjuverkamenn í leynifangelsi þar sem þeir eru pyntaðir.

24 árekstrar í Reykjavík í dag

Tuttugu og fjórir árekstrar hafa orðið í Reykjavík í dag. Þar á meðal varð einn fjöggura bíla árekstur fyrir utan Stjórnarráðið skömmu eftir hádegi. Þá rann fólksbíll á ljósastaur á Hverfisgötu. Nánast tíðindalaust hefur verið annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

Loks samkomulag um nýja ríkisstjórn í Þýskalandi

Jafnaðarmenn og Kristilegir demókratar í Þýskalandi hafa loks komist að samkomulagi um að mynda samsteypustjórn undir forystu Angleu Merkel, sem jafnframt verður fyrsta konan sem gegnir embætti kanslara landsins. Samningaviðræður hafa tekið hátt í tvo mánuði, en kosningar fóru fram í landinu þann 18. september síðastliðinn.

Stór hluti Janköping enn lokaður eftir rán

Enn er stór hluti Janköping í Mið-Svíþjóð lokaður af eftir rán sem framið var í morgun á peningageymslu Securitas. Vélmenni sprengjuleitarsveitar lögreglunnar eru nú að kanna hvort sprengja sé í bíl ræningjanna sem fannst við ránsstaðinn.

Andrenalín.is fær nýsköpunarverðlaun SAF

Adrenalín.is fékk nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti á Grand hóteli í dag. Verðlaunin fékk fyrirtækið fyrir nýja adrenalíngarðinn á Nesjavöllum sem tekinn var í notkun í júlí síðastliðnum.

Sýslumaður hafnar kröfu um bann á sýningu Skuggabarna

Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði fyrir örfáum mínútum kröfu um lögbann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason, sem fjallar um nokkur ungmenni í undirheimum Reykjavíkur.

Málin að þokast í rétta átt

Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands hittist klukkan hálf fjögur í dag. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir að málin séu nú að þokast í rétta átt en nefndin þurfi þann tíma sem er til stefnu til að komast að niðurstöðu.

Sjá næstu 50 fréttir