Handsömun katta 12. nóvember 2005 11:15 MYND/Stefán
Kettir voru fyrirferðamiklir á fundi borgarráðs í fyrradag. Á fundi borgarráðs voru bæði lögð fram drög að verklagsreglum um handsömun katta og drög að nýrri gjaldskrá um kattahald. Það er skemmst frá því að segja að hvort tveggja var samþykkt samhljóða. Í tillögum frá umhverfisráði um verklagsreglurnar var meðal annars lagt til að gelda skuli alla fressketti eldri en sex mánaða sem gangi lausir utandyra. Ef meindýraeyðir handsamar ógeltan fresskött sem kominn er yfir umræddan aldur verður honum sleppt á staðnum, nema hann sé ómerktur eða hafi valdið ítrekuðu ónæði. Hafi sami ógelti köttur hins vegar verið handsamaður þrisvar verður hann fluttur í Kattholt við þriðju handsömun. Handsömunargjald, sem eingöngu verður innheimt hafi köttur verið fluttur í dýrageymslu, er 5000 krónur en innifalið í því er fóður og vistun fyrsta sólarhringinn. Tekið er fram í verklagsreglunum að „meðalhófs" muni verða gætt við handsömun katta, og að dýrin verði eingöngu flutt í Kattholt verði markmiði samþykktar ekki náð með öðrum hætti. Þá kemur einnig fram að brugðist verði við öllum kvörtunum en meindýraeyðar muni meta hvort setja skuli út búr, þó ekki að eigin frumkvæði. Að lokum segir í drögum að verklagsreglunum að meindýraeyðar muni koma til með að sinna kvörtunum í þeirri röð sem þær berast, en þó þurfi að forgangsraða verkefnum þannig að tilfelli þar sem köttur er inni í íbúð nágranna þarf að setja í forgang. Undir þetta skrifar „skrifstofustjóri Skrifstofu neyslu og úrgangs".
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Sjá meira