Fleiri fréttir

Engin fangelsi á vegum CIA í Rúmeníu

Forsætisráðherra Rúmeníu sagði í dag að engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, væru í landinu. Þá hafa stjórnvöld í Tékklandi sagst hafa hafnað óskum bandarískra stjórnvalda um að fá að reka slíkt fangelsi þar í landi.

Lofar lögum um starfsmannaleigur

Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill strax láta setja lög um starfsmannaleigur og undrast hægagang ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Félagsmálaráðherra lofar lögum um starfsmannalegur fyrir jólafrí.

Innheimtumiðstöð sekta á Blönduósi

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar verði sett upp á Blönduósi. Markmiðið með þeim breytingum er að samræma, einfalda og efla innheimtu sekta og sakarkostnaðar í öllu landinu og stuðla að eflingu sýslumannsembættisins.

Baugsmál: Óvíst hvenær málið verður tekið fyrir

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær ákæruliðirnir átta, sem eftir standa í Baugsmálinu, verða teknir fyrir í Héraðsdómi. Ákæruliðirnir varða meint brot á almennum hegningarlögum, tollalagabrot og lög um ársreikninga.

Dönsk kona læst inni á baðherbergi í viku

Fjörutíu og fimm ára dönsk kona, búsett í Hjörning, er frjáls á ný eftir að hafa verið læst inni á baðherberginu heima hjá sér í heila viku. Þegar ekkert hafði heyrst til konunnar í heila sjö daga var lögreglu gert viðvart. Kom í ljós að læsing hurðarinnar hafði hlaupið í baklás.

2000 andlát á breskum sjúkrahúsum vegna mistaka

Meira en tvö þúsund andlát á breskum sjúkrahúsum á síðasta ári má rekja til mistaka og skorts á öryggisþáttum við umönnun sjúklinganna. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var af opinberum aðilum og segir frá í nýrri skýrslu. Á meðal þess sem leiddi sjúklingana til dauða var röng lyfjagjöf og bilun í tækjum sjúkrahúsanna.

Jón hafnar því að hafa svikið samkomulagið

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hafnar því alfarið að hann eða ríkisstjórnin hafi svikið samkomulag sem Jón gerði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við forystumenn öryrkja árið 2003, að sögn aðstoðarmanns hans.

Vonbrigði ASÍ með viðbrögð atvinnurekenda

Miðstjórn ASÍ hefur lýst yfir vonbrigðum með viðbrögð atvinnurekenda og ríkisstjórnar við áherslum ASÍ í viðræðum um endurskoðun kjarasamninga. Miðstjórnin kom saman í gær í fyrsta skipti eftir ársfund ASÍ í október og ræddi stöðu kjarasamninga.

Þaulskipulagt rán framið í Svíþjóð

Grímuklæddir ræningjar, vopnaðir sjálfvirkum byssum og sprengiefni, réðust á peningaflutningabíl norður af Gautaborg í Svíþjóð rétt fyrir klukkan átta í morgun að íslenskum tíma. Tveir öryggisverðir særðust í árásinni og voru fluttir á sjúkrahús en ekki er enn vitað hversu alvarlegt það er. Ræningjarnir höfðu sett upp naglamottur á nokkrum stöðum til að hindra aðkomu lögreglu.

Karl Bretaprins og Camilla í Hvíta húsinu

Karl Bretaprins og Camilla eiginkona hans snæddu kvöldverð með forsetahjónunum í Hvíta húsinu í gær en þau eru í vikulangri opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Umræðuefnið var sterkt samband þjóðanna tveggja, sérstaklega eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september árið 2001.

Sprengjuárás í Baska-héraði í nótt

Sprengja sprakk í bænum Zarautz á Spáni í nótt. Svo virðist sem enginn hafi særst í árásinni en sprengjunni hafði verið komið fyrir í ruslutunnu við götu í bænum. Önnur sprengja, sem fannst nærri dómshúsinu í bænum, hafði verið gerð óvirk af lögreglu skömmu áður.

Peningaflutningabíll rændur í Svíþjóð

Fyrir um klukkustund var ráðist á peningaflutningabíl rétt fyrir utan Gautaborg í Svíþjóð. Síðast þegar fréttist var sjúkrabíll á leið á staðinn en talið er að öryggisverðirnir sem í bílnum voru hafi slasast í árásinni. Svo virðist sem að um mjög vel skipulagt rán sé að ræða.

Evran tekin upp á Kýupur

Kýpverjar taka upp evruna 1. janúar árið 2008. Yfirvöld á Kýpur höfðu gert sér vonir um að sameinast myntbandalaginu árið 2007 en sökum gríðarlegs fjárlagahalla verður ekkert úr því.

CIA neitar að tjá sig

Bandaríska leyniþjónustan CIA neitar að tjá sig um fregnir bandaríska dagblaðsins The Washington Post þess efnis að Bandaríkjamenn hafi beitt meinta al-Qaida liða pyntingum í leynilegum fangelsum í Austur-Evrópu og víðar um heiminn.

Viðbúnaðaráætlun vegna flensu samþykkt í Danmörku

Ríkisstjórn Danmerkur hefur samþykkt viðbúnaðaráætlun vegna hugsanlegs fuglaflensufaraldurs í landinu. Samkvæmt áætluninni verða keyptar meiri birgðir af inflúensulyfinu Tamiflu sem eiga að duga 19 prósentum dönsku þjóðarinnar.

30 féllu og 150 særðust í Addis Ababa

Að minnsta kosti þrjátíu manns féllu og um 150 særðust í átökum lögreglu og stjórnarandstæðinga í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, í gær. Íslenskir kristniboðar eru að störfum í broginni.

Olís og Esso lækkuðu verð

Olís og Esso lækkuðu í gær verð á bensíni og dísilolíu um sextíu aura. Samkvæmt heimasíðu Skeljungs hefur engin lækkun orðið þar. Bæði Esso og Skeljungur lækkuðu verð á bensíni og dísilolíu, einnig um sextíu aura, í fyrradag.

Meiri afgangur en búist var við

Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður Kópavogs verði rekinn með tvöfalt meiri aðgangi í ár en stefnt var að þegar fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í fyrra.

Ástandið orðið hættulegt segir Chiraq

Jacques Chiraq Frakklandsforseti segir lögregluna verða að taka á óeirðum sem geisað hafa í níu úthverfum Parsíar undanfarna viku, og það strax. Hann segir ástandið orðið hættulegt en miklar deilur hafa orðið innan ríkisstjórnarinnar vegna málsins.

62 prósent borgarbúa vilja fremur Vilhjálm

Sextíu og tvö prósent borgarbúa vilja heldur sjá Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna í næstu borgarstjórnarkosningum en Gísla Martein Baldursson samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Vilhjálms.

Starfsmaður Impregilo tekinn með 600 grömm af hassi

Lögreglumenn frá Seyðisfirði lögðu á mánudag hald á 300 grömm af hassi í söluumbúðum, við húsleit í íbúðaskála hjá Impregilo við Kárahnjúka. Einnig var lagt hald á tölvu og 300 þúsund krónur í peningum. Eigandinn var svo handtekinn á Egilsstaðaflugvelli á mánudag og fundust þá önnur 300 grömm af hassi á honum.

Mega áfram gæta fimm barna

Ekkert verður af því að hugmyndum um að fækka börnum í umsjón dagforeldris úr fimm í fjögur verði hrint í framkvæmd. Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð þar sem dagforeldrum er eftir sem áður heimilt að gæta fimm barna í senn.

Óleyfileg framboðsauglýsing

"Okkur hefur borist formleg kvörtun vegna þessa skiltis og hún verður rædd á bæjarráðsfundi í dag og að honum loknum á ég von á því að bæjarstarfsmenn rífi það niður," segir Hansína Á. Björgvinsdóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi. Þar í bæ hefur Ómar Stefánsson, sem sjálfur situr í bæjarráði og er prófkjörsframbjóðandi á lista Framsóknarflokksins, hengt auglýsingaskilti á girðingu í eigu bæjarins.

Bubbi krefst milljónabóta

Bubbi Morthens hefur stefnt 365 prentmiðlum og Garðari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Hér og nú, vegna umfjöllunar um sig og myndbirtingar henni tengdri. Bubbi krefst þess að ummæli sem fram koma í fyrirsögnum blaðsins verði dæmd dauð og ómerk auk skaðabóta upp á tuttugu milljónir.

Vinda verður ofan af íbúðalánaruglinu

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að vilji stjórnvöld slá á þensluna í íslensku efnahagslífi verði þau að vinda ofan af því sem hann kallar íbúðalánarugl. Hann segir ekkert vit í því að hækka vexti, það murki einfaldlega lífið úr útflutningsfyrirtækjum.

Seðlabankinn hækki bindi- og lausafjárskyldu bankanna

Útgáfa skuldabréfa í krónum erlendis hefur aukist um ellefu milljarða króna á tveimur dögum. Vegna þessa hækkaði gengi krónunnar enn í morgun og evran hefur ekki verið lægri gagnvart henni í meira en fimm ár. Prófessor í hagfræði segir að Seðlabankinn verði að hækka bindi- og lausafjárskyldu bankanna til að mæta ört vaxandi verðbólgu.

Kári hyggst kæra stjórnir LÍ og LR vegna greinar

Kári Stefánsson hyggst kæra stjórnir Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur til siðanefndar lækna fyrir að fjarlægja ekki grein Jóhanns Tómassonar læknis af vefútgáfu læknablaðsins. Í greininni deilir Jóhann hart á Kára.

Telja Bandaríkjastjórn hafa fangelsað 70 þúsund manns

Talið er að bandarísk yfirvöld hafi frá árinu 2001 haft forgöngu um að fangelsa 70 þúsund manns víðs vegar um veröldina. Þrátt fyrir að Alþjóða Rauði krossinn hafi ítrekað farið fram á að fá upplýsingar um fólkið og þær aðstæður sem það býr við hafa bandarísk yfirvöld engu svarað.

Bandaríkjamenn hafa ekki svarað fyrirspurnum um fangaflug

Bandaríska leyniþjónustan CIA er með leynileg fangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn í Austur-Evrópu og vísbendingar eru um að fangar hafi verið fluttir þangað um Ísland. Bandarísk stjórnvöld hafa engu svarað fyrirspurnum Íslendinga um málið.

Segist ekkert vita um sprengju undir bíl

Sprengja sprakk undir mannlausum bíl við Mylluna í Skeifunni í nótt. Fjarlægja þurfti sprengjubrot úr fæti á konu sem stóð skammt frá bílnum. Sá sem hafði bílinn til umráða segist enga hugmynd hafa um af hverju sprengja var undir bílnum.

Bubbi krefur Hér og nú um 20 milljónir

Bubbi Morthens ætlar að krefja útgefanda og ritstjóra tímaritsins Hér og nú um tuttugu milljónir króna í skaðabætur vegna umfjöllunar og myndbirtinga blaðsins um hann.

Ísraelsher skaut palestínskan uppreisnarmann

Ísraelskir hermenn skutu palestínskan uppreisnarmann til bana nærri bænum Jenín á Vesturbakkanum í dag í áhlaupi Ísraelshers. Bráðaliðar og vitni segja uppreisnarmanninn hafa tilheyrt al-Aqsa herdeildunum, vopnuðum væng Fatah-hreyfingarinnar, og að hann hafi fallið í byssubardaga við hersveitirnar.

Öxi lokuð tímabundið

Vegurinn um Öxi, sem liggur frá Djúpavogi og upp á Breiðdalsheiði, er lokaður tímabundið vegna umferðaróhapps. Þar valt tengivagn á hliðina og lokaði veginum. Engin slys urðu á fólki og starfsmenn vegagerðarinnar vinna nú í því að fjarlægja tengivagninn.

Portúgali handtekinn vegna meintrar fíkniefnasölu

Eitt hunndrað grömm af ætluðu hassi fundust í sölupakkningum í vistarverum 34 ára Portúgala á Kárahnjúkum í lok október. Einnig var lagt hald á tölvu og tæplega 300 þúsund krónur í peningum. Maðurinn var í frí þegar leitin var gerð og var hann handtekinn á Egilsstaðaflugvelli í gær.

Skólaskipið Dröfn á hringferð

Skólaskipið Dröfn hélt af stað í dag í hringferð sína um landið. Dröfn mun koma við á helstu þéttbýlisstöðum og sigla með nemendur í efstu bekkjum grunnskkóla. Hringferðin mun standa út nóvember og þar gefst nemendum kostur á að kynnast sjávarútveginujm og vinnunni um borð í fiskiskipum.

Háttsettur al-Qaida liði slapp úr haldi Bandaríkjamanna

Háttsettur al-Qaida liði slapp úr haldi Bandaríkjamanna í Afganistan í sumar. Þetta staðfesti ónafngreindur starfsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins við Reuters-fréttastofuna í dag. Kúveitinn Omar al-Faruq var gripinn í Indónesíu árið 2002 og afhentur Bandaríkjamönnum, en hann er talinn einn af hæstsettu mönnum innan al-Qaida í Suðaustur-Asíu.

Skuldabréfaútgáfan ákveðin traustyfirlýsing

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir skuldabréfa útgáfu erlendu bankana í íslenskum krónum ákveðna traustyfirlýsingu við erlendu bankanna en ekki sé þó ljóst hver áhrifin séu.

Vafasamt að draga meira úr framkvæmdum

Vafasamt er að draga meira úr framkvæmdum en gert er ráð fyrir í fjárlögum að mati Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Framkvæmdir hér á landi eru ekki nema þrír fimmtu af því sem þær voru fyrir tveimur árum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur að það sé í höndum ríkisstjórnarinnar að ná verðbólgu niður og hún þurfi meðal annars að fresta framkvæmdum.

Gefa ekki rétta mynd af hagnaðinum

Kaupréttarsamningarnir geta orðið til þess að hagnaðartölur gefi ekki rétta mynd af afkomu fyrirtækja þar sem þeir koma ekki fram í bókhaldi. Þarna getur munað tugum prósenta.

Getur vel hugsað sér að verða borgarstjóraefni

Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri-grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor, getur vel hugsað sér að vera borgarstjóraefni í samstarfi við félagshyggjuflokkanna að afloknum kosningum.

Of fjarskipti tryggja sér Kall

Og fjarskipti hafa tryggt sér allt hlutafé í færeyska fjarskiptafyrirtækinu Kalli p/f og ræður því yfir öllum hlutum í félaginu.

Tekinn með heimatilbúna sprengju

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt akureyrskan karlmann til fjögurra mánaða fangelsisvistar. Hann var handtekinn með heimatilbúna sprengju og fíkniefni í júlí og var fjórum sinnum stöðvaður undir stýri á bifreið þrátt fyrir að vera búinn að missa leyfið.

Hlutafjáraukning hjá FL Group

Hlutafé í FL Group verður aukið um fjörutíu og fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Þar með er talið hlutafé sem afhent verður sem hluti kaupverðs í skiptum fyrir hluti í Sterling flugfélaginu. Viðskiptavakt verður bæði í Landsbankanum og Kaupþingi banka.

Sjá næstu 50 fréttir