Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Chirac hvetur til stillingar í úhverfum Parísar Jacques Chirac, forseti Frakklands, reyndi í dag að lægja óeirðaölduna sem gengið hefur yfir úthverfi Parísarborgar undanfarna daga. Þær blossuðu upp fyrir sex dögum eftir að tveir piltar af innflytjendaættum létust af völdum raflosts þar sem þeir földu sig fyrir lögreglunni í lítilli rafstöð. 2.11.2005 15:59
Ráðist á mosku sjíta í Írak Að minnsta kosti sjö létust og fimmtán særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Musayyib í Írak í dag. Árásin er gerð á lokadegi helgimánaðar múslíma, Ramadan, en árásir á sjíta í mánuðinum hafa verið tíðar. Múslímar búa sig nú undir þriggja daga frí, svokallað Eid, í kjölfar Ramadan en fríið hefst á morgun eða hinn. 2.11.2005 15:50
73 þúsund látnir af völdum skjálftans í Pakistan Yfirvöld í Pakistan greindu frá því í dag að tala látinna eftir jarðskjálftann 8. október væri komin upp í 73 þúsund. Talan hefur hækkað um sextán þúsund frá síðustu yfirlýsingu yfirvalda. Yfirmaður hjálparstarfsins í landinu sagði að sífellt fleiri látnir fyndust í rústum húsa og hann óttaðist að talan myndi hækka enn frekar. 2.11.2005 15:34
Aðeins þriðjungur félaga tekur þátt Kauphöll Íslands heldur kynningardag fyrir markaðsaðila í London í næstu viku. Aðeins þriðjungur félaga í kauphöllinni tekur þátt í kynningunni. 2.11.2005 15:28
Loksins samkomulag um nýtingu kolmunnaaflans Strandríki Evrópusambandsins, Ísland, Noregur og Færeyjar, náðu loks samkomulagi um nýtingu kolmunnaaflans á Norðaustur-Atlantshafi eftir sjö ára samningaþóf og fjölda funda. Viðræðurnar voru haldnar í Kaupmannahöfn og fá Íslendingar hátt í 18 prósent í sinn hlut. 2.11.2005 14:04
Verið að efnagreina sprengiefnið Verið er að efnagreina leifar af sprengiefni úr sprengju sem sprakk undir mannlausum bíl fyrir utan hús í Skeifunni í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt með þeim afleiðingum að nærstödd kona meiddist og bíllinn stórskemmdist. 2.11.2005 13:18
Óeirðirnar í París færst enn í aukana Óeirðunum sem geisað hafa í París undanfarna daga virðist ekkert ætla að linna. Þær hafa nú færst í enn fleiri úthverfi borgarinnar en sex dagar er frá því þær hófust. 2.11.2005 12:54
Fyrir dóm í mánaðarlok Einkamál sem Öryrkjabandalag Íslands höfðar fyrir hönd umbjóðenda sinna gegn íslenska ríkinu vegna meintra vanefnda á samkomulagi frá árinu 2002 verður þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir lok þessa mánaðar. Málið varðar meintar vanefndir á 500 milljón krónum sem talsmenn öryrkja töldu að hefði vantað upp á til að samkomulag um línulega hækkun lífeyris yrði efnt að fullu á fjárlögum 2004. 2.11.2005 12:15
CIA felur meinta hryðjuverkamenn í fangelsum fyrrverandi Sovétlýðvelda Bandaríska leyniþjónustan CIA felur meinta hryðjuverkamenn í leynilegum fangelsum í fyrrverandi Sovétlýðveldum, að sögn Washington Post í dag. Ein flugvél, sem talið er að CIA noti til fangaflutninga, fór frá Reykjavík til Búdapest í Ungverjalandi í síðasta mánuði. 2.11.2005 12:12
Segja starfsmenn 2b ólöglega Vinnumálastofnun segir í áliti sem sent var Verkalýðsfélagi Akraness að starfsemi starfsmannaleigunnar 2b styðjist ekki við lög og því séu starfsmenn á þeirra vegum hér á landi í óleyfi. Sýslumaðurinn í Borgarnesi rannsakar enn kæru á hendur fyrirtækinu en margt bendir til að á pólskum starfsmönnum 2b sé brotið. 2.11.2005 12:00
Óvissa um sameiginlegt framboð Enginn niðurstaða er komin í viðræður Vinstri-grænna, Frjálslyndra og Samfylkingar á Ísafirði um sameiginlegt framboð í bæjarstjórnarkosningunum að ári. Funda á aftur í næstu viku. Samfylkinarmenn á Ísafirði vilja sinn hlut stærri en hinna flokkanna í slíku framboði samkvæmt heimildum fréttastofu. 2.11.2005 12:00
11 milljarða skuldabréfaútgáfa í vikunni Gengi krónunnar hélt áfram að hækka í morgun eftir mikla hækkun í gær og er það rakið til stóraukinnar útgáfu skuldabréfa sem tryggð eru í íslenskum krónum. Hún nemur orðið ellefu milljörðum króna það sem af er vikunni og samtals á annað hundrað milljörðum. 2.11.2005 11:56
Blunkett segir af sér í annað sinn David Blunkett, ráðherra atvinnu- og eftirlaunamála í bresku ríkisstjórninni, sagði af sér í morgun. Blunkett hefur sætt ámæli fyrir að brjóta gegn siðareglum ráðherra með því að taka að sér launuð störf eftir að hann sagði af sér embætti innanríkisráðherra á síðasta ári. 2.11.2005 11:09
Dregið af launum fyrir að leggja niður vinnu á kvennafrídaginn Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar um að nokkur fyrirtæki í landinu hafi dregið eða ætli að draga af launum þeirra starfsmanna sem lögðu niður vinnu og gengu út klukkan 14.08 á kvennafrídaginn í lok október. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að þetta verði kannað betur í dag. 2.11.2005 10:48
Telur N-Kóreu ætla að halda áfram kjarnorkuframleiðslu Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ekkert benda til þess að Norður-Kórea hyggist draga til baka áætlanir sínar um að hætta að framleiða kjarnorkuvopn. Yfirvöld í landinu hafa áður lofað að hætta framleiðslunni. 2.11.2005 09:46
Karl Bretaprins ræddi við Kofi Annan Karl bretaprins og eiginkona hans, Camilla Parker Bowles, eru komin til New York en þau eru í vikulangri opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Karl hitti meðal annars Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og ræddu þeir ýmis vandamál sem steðja að heiminum. 2.11.2005 09:40
Ísraelskur hemaður féll á Gaza Ísraelskur hermaður féll í skotbardaga við Palestínumenn á Gaza-ströndinni í morgun, að sögn talsmanns Ísraelshers. Þetta er fyrsta mannfallið í þeirra röðum síðan Ísraelsmenn yfirgáfu landnemabyggðirnar á Gaza snemma í haust. 2.11.2005 09:04
Íslendingar fjórða hamingjusamasta þjóðin Íslendingar eru fjórða hamingjusamasta þjóð í heimi ef marka má tölfræði hollensks gagnabanka sem starfræktur hefur verið undanfarin 20 ár. 2.11.2005 08:45
430 milljarðar til að verjast fuglaflensunni George Bush Bandaríkjaforseti hefur farið fram á við bandaríska þingið að það veiti sjö milljarða dollara fjárveitingu, eða tæplega 430 milljarða króna, til að berjast gegn fuglaflensunni sem hefur orðið 61 manni að bana í heiminum. 2.11.2005 08:40
Varað við eiturslöngum á Amager Lögregla í Taarnby í Danmörku varar fólk við eiturslöngum sem sleppt hefur verið í skógi á Amager, ekki ýkja langt frá nokkrum barnaheimilum. Fyrir um tveimur vikum fann maður dauða slöngu í skóginum sem reyndist vera af baneitraðrir tegund og í fyrradag fannst önnur slík lifandi og var hún aflífuð. 2.11.2005 08:00
Og fjarskipti hefja útrás sína í Færeyjum Og fjarskipti eignuðust í gær allan hlut í færeyska fjarksiptafyrirtækinu Kall en fyrir viðskiptin áttu Og fjarkskipti rúmlega áttatíu prósent í fyrirtækinu. Kaupin á Kalli eru fyrsta skref útrásar hjá fyrirtækinu. 2.11.2005 08:00
Beit stykki úr kjamma kindar Hundur særði kind það alvarlega við Grindavík í gær að aflífa þurfti rolluna en stórt stykki hafði verið bitið úr kjamma dýrsins. Eigandi kindarinnar segir í viðtali við Víkurfréttir að færst hafi í vöxt að hundum sé sleppt lausum í hólf þar sem rollubændur hafa kindur sínar eftir að þær koma af fjalli á haustin. 2.11.2005 07:57
Sænsk herþyrla hrapaði Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar herþyrla af gerðinni Super Puma hrapaði í sjóinn undan Blekinge í Svíþjóð í gærkvöld. Átta manns voru í þyrlunni. Björgunaræfing á vegum sænska hersins stóð yfir þegar óhappið varð. 2.11.2005 07:45
Hryðjuverkamenn undirbúa árásir í Ástralíu Hryðjuverkamenn undirbúa nú árásir í Ástralíu. Þetta sagði forsætisráðherra landsins á blaðamannafundi sem haldinn var í Canberra, höfuðborg landsins, í gær. 2.11.2005 07:25
Meiddist á fæti þegar sprengja sprakk í Skeifunni Kona sem var á gangi í Skeifunni í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt meiddist á fæti þegar öflug sprenging varð undir mannlausum bíl, sem hún var að ganga framhjá, og brot úr sprengjunni þeyttist í hana. 2.11.2005 07:20
Vill 300 milljónir í hestaíþróttina Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ætlar að leggja til við ríkisstjórnina á næstu vikum eða mánuðum að allt að 300 milljónir króna fari til uppbyggingar hestaíþróttarinnar á landsbyggðinni. Hann vonast til að eitthvað fjármagn fáist strax á næsta ári. 2.11.2005 07:15
Ritstjórnarmeðlimir hjá Læknablaðinu segja af sér Fimm af sex ritstjórnarfulltrúum í ritstjórn Læknablaðsins sögðu í gær af sér vegna umdeildrar greinar sem birtist í blaðinu um afleysingarströf Kára Stefánssonar, forstjóra deCode, á taugadeild Landspítalans í sumar. 2.11.2005 07:15
Vilja álver við Húsavík Einar Már Sigurðarson og Kristján L. Möller, þingmenn Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, telja vænlegast að nýtt álver á Norðurlandi rísi við Húsavík, einkum með tilliti til nálægðar við öflug orkusvæði og mikillar samstöðu Húsvíkinga. 2.11.2005 07:00
Fá lægri ellilífeyris- og örorkubætur Lífeyris- og örorkuþegar lífeyrissjóða eru sumir hverjir farnir að finna fyrir nýjum reglum um útreikninga á skuldbindingum lífeyrissjóða vegna örorku. Reglurnar tóku gildi um síðustu áramót og hafa orðið til þess að bætur sumra hafa lækkað. 2.11.2005 07:00
Kaupþing og Leifsstöð semja Kaupþing Banki hefur samþykkt að lána Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir stækkun norðurbyggingar flugstöðvarinnar til suðurs og endurgerð annarar hæðar hennar. Lánssamningurinn nemur þrem komma þrem milljörðum króna, og er um að ræða framkvæmdalán sem breytist í langtímalán við lok framkvæmda. Áætlað er að þær taki tvö ár og að heildarkostnaðurinn nemi tæpum 5 milljörðum króna. 2.11.2005 06:45
Ekið á rolluhóp í tvígang Ekið var á fjórar kindur og skömmu síðar á að minnsta kosti átta til viðbótar við bæinn Eyjanes í Hrútafirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að níu rollur drápust og aflífa þurfti þrjár. 1.11.2005 23:45
Þrír teknir vegna hraðaaksturs Á meðan að lögregluembætti um allt land hafa sinnt útköllum vegna árekstra sem rekja má til hálku hefur lögreglan á Höfn haft í allt öðru að snúast síðustu daga. Þar hafa á síðustu tveimur dögunum þrír verið teknir fyrir hraðaakstur. 1.11.2005 23:00
Einn fluttur á slysadeild Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir áreksturs vörubíls á fólksbíls á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar um hálf átta leytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var smá hálka á brautinni. 1.11.2005 22:46
Ragnhildur Gísladóttir hlýtur bjartsýnisverðlaun Ragnhildur Gísladóttir, söngkona, leikkona og lagahöfundur hlaut í kvöld Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2005 sem afhent voru í Íslensku óperunni. 1.11.2005 21:32
Lóðin fer á markaðsverði Borgarstjóri segir að ekki standi annað til en að Íslandsbanki greiði markaðsverð fyrir lóð Strætós við Kirkjusand. Borgin hefur áhuga á að þar rísi einnig raðhúsabyggð. 1.11.2005 20:30
Skoðuðu launareikninga í dag Pólverjar sem komu til starfa hér á landi á vegum starfsmannaleigunnar 2B fóru í banka á Egilsstöðum til að skoða launareikningana sína í dag. Fulltrúar launþegahreyfinga ræddu við lögmann starfsmannaleigunnar í dag og verður viðræðum haldið áfram á næstu dögum. 1.11.2005 20:30
Birki fer að vaxa á hálendinu vegna hærra hitastigs Birki mun fara að vaxa á hálendinu og trjátegundir eins beyki og eik munu dafna víða um land á næstu áratugum, rætist spár um hækkun hitastigs á Íslandi, að mati Ingva Þorsteinssonar náttúrufræðings. Þá mun uppskera aukast og kornrækt styrkjast. 1.11.2005 20:30
Lögreglan í málið Lögreglan í Reykjavík telur rétt að skoða hvort efni tímaritsins Bleikt og blátt brjóti í bága við hegningalög. Talsmaður Femínistafélagsins segir leitt að útgefandi blaðsins hafi farið þá leið að hafa myndefni blaðsins klámfengið. Ritstjórinn segir um erótík að ræða. 1.11.2005 20:15
Ljósmyndir vegna vegabréfa teknar hjá sýslumönnum Ráða þyrfti ljósmyndara við öll sýslumannsembætti landsins, að mati Ljósmyndarafélags Íslands, ætli ríkið að sjá um passamyndatöku í landinu, þar sem ljósmyndun er lögvernduð iðngrein. 1.11.2005 20:15
Hefði ekki getað orðið á verri tíma Ramadan, föstumánuður múslíma var nýhafinn þegar jarðskjálftinn stóri reið yfir fjallahéruð Pakistans. Örþreyttir hjálparstarfsmenn vinna því á fastandi maga frá morgni til kvölds. Skjálftinn hefði því varla getað riðið yfir á verri tíma, að sögn íslensks sendifulltrúa Rauða krossins sem þar er að störfum. 1.11.2005 19:45
Foreldrar í störfum kennara Foreldrar í Reykjanesbæ gengu í störf kennara í Heiðarskóla í morgun þar sem kennarar mættu ekki til starfa. 1.11.2005 19:30
Borgarstjórn leggur fram fimm milljónir vegna skjálfta Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að leggja fimm milljónir króna til hjálparstarfs í þágu fórnarlamba jarðskjálftanna í Pakistan í síðasta mánuði. Tillaga borgarstjóra þar að lútandi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn. 1.11.2005 19:13
Strandaglópar vegna óveðurs Nokkrir gistu í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í nótt vegna óveðursins í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Flestir þeirra 130 sem gistu þar aðfararnótt sunnudags gátu komist leiðar sinnar í gær. 1.11.2005 19:00
Nýjar leiðir til að sporna við útrýmingu Namibíumenn fara nú ótroðnar slóðir til að vernda smáan stofn blettatígra í landinu. Með því að þjálfa upp tyrkneska fjárhunda, sem vakta húsdýrahjarðir, halda þeir blettatígrunum frá þeim. 1.11.2005 18:45
Enn logar allt í óeirðum í París Allt hefur logað í óeirðum dögum saman í einu úthverfa Parísar, Clichy-Sous-Bois, eftir að tveir ungir drengir létust eftir að hafa fengið raflost þar sem þeir földu sig fyrir lögreglunni í lítilli rafstöð. 1.11.2005 18:15