Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hættir að taka við sjúklingum Sjálfstætt starfandi hjartasérfræðingar íhuga nú að segja upp samningi við Tryggingastofnun ríkisins, að sögn Axels Sigurðssonar sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt starfandi hjartalækna. Þeir eru farnir að stöðva bókanir þar til eftir áramót, nema mikið liggi við. Þetta á sér einnig stað í öðrum sérfræðigreinum. 19.10.2005 00:01
Lífslíkur aukast Ný bresk rannsókn sýnir að lífslíkur hafa aukist meðal kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein. Danskar rannsóknir benda til svipaðra niðurstaða. Ný lyf og bætt meðferðarúrræði hafa á síðustu áratugum aukið lífslíkur meðal þeirra sem greinast með brjóstakrabbamein. 18.10.2005 00:01
Minningardagskrá á Flateyri Flateyringar heima og heiman hyggjast minnast þess 26 október næstkomandi að tíu ár eru liðinn frá snjóflóðunum mannskæðu á þorpið við Önundarfjörð. Mun skipulögð dagskrá fara fram allan daginn auk þess sem sérstök minningardagskrá mun fara fram að kvöldi dags í íþróttahúsi staðarins. 18.10.2005 00:01
Forsendur kjarasamninga ræddar Fulltrúar Verkalýðshreyfingarinnar og fulltrúar Samtaka Atvinnulífsins munu í dag ganga til fundar við forystumenn ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðinu þar sem forsendur kjarasamninga verða ræddar. 18.10.2005 00:01
Bretar bregðast við fuglaflensu Landlæknir í Bretlandi segir ekki ólíklegt að 750 þúsund manns smitist af fuglaflensu í Bretlandi á næstu tveimur árum. 18.10.2005 00:01
Ung stúlka finnst á lífi Sex ára stúlku var bjargað úr rústum húss í fjallaþorpi austur af Balakot í Pakistan í dag en níu dagar eru síðan jarðskjálfti af stærðinni 7,6 á Richter reið yfir norðurhluta landsins. 18.10.2005 00:01
Átak hjá Selfosslögreglu Ljósabúnaði var áfátt á fimmtíu og sjö bílum af þeim 290, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær, einkum til að kanna ástand ljósa. Þetta var fyrsti dagur í þriggja daga átaki Selfosslögreglunnar á þessu sviði. Ökumenn fengu áminningu, en nokkrir voru sektaðir vegna annarra atriða, sem voru í ólagi. 18.10.2005 00:01
Biðraðir til trafala Eigandi veitingastaðar í Whitby á Norður Englandi á yfir höfði sér kæru vegna gríðarlegra biðraða við veitingastaðar hans. Ekki er óalgengt að sjá yfir eitt hundrað manns í biðröð eftir að komast inn en kokkurinn, sem er verðlaunakokkur, hefur auglýst að þar sé að fá besta fisk og bestu franskar í heimi. 18.10.2005 00:01
Baðolía í stað vodka Vodki hefur lengi vel verið vinsæll drykkur í Rússlandi og ódýr. Svo virðist þó sem nýr drykkur hafi tekið við hjá þeim Rússum sem hafa einfaldlega ekki efni á vodka, sem kostar frá 140 krónum, og drekka þeir því í staðinn baðolía sem inniheldur mikið magn af alcoholi og kostar aðeins 30 krónur. 18.10.2005 00:01
Fáir ferðamenn í New Orleans Illa gengur að fá ferðamenn til New Orleans þrátt fyrir öfluga markaðsherferð heimamanna til að fá fólk til borgarinnar. Bourbon stræti, sem er hvað þekktust fyrir líflega tónlist og góða veitingastaði, hefur smám saman verið að taka við sér. 18.10.2005 00:01
Starfslokasamningur kærður Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur nú fengið til rannsóknar starfslokasamning Jóhannesar Sigurgeirssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sameinaða Lífeyrissjóðsins, sem hann og stjórn sjóðsins gerðu þegar Jóhannesi var gert að víkja störfum vegna bágrar afkomu sjóðsins fyrir ári. 18.10.2005 00:01
Vill takmarka eignarhald fjölmiðla Geir H Haarde, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að hann telji að málamiðlum fjölmiðlanefndarinnar, svokölluðu um að eignharhald eins aðila eða aðila honum tengdum megi ekki vera meira en 25%, sé of há. 18.10.2005 00:01
Sífellt fleiri í framhaldsnám Aldrei hafa fleiri útskrifast úr námi á háskólastigi á Íslandi og á skólaárinu 2003 - 2004. Sama má segja um útskrifaða nema af framhaldsskólastigi. Örlítil fækkun er þó í útskrift nýstúdenta en sífellt fleiri útskrifast með stúdentspróf verkgreina og viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi. 18.10.2005 00:01
Enn í haldi Rússa Norskum strandgæslumönnum er enn haldið nauðugum um borð í rússneska togaranum Electron sem stefnir á Múrmansk í Rússlandi eftir að norskt varðskip skipaði því að stöðva á Barentshafi vegna ólöglegra veiða. Skipið er nú komið inn í rússneska landhelgi. 18.10.2005 00:01
Lithárnir án atvinnuleyfis Forsvarsmenn Afls Starfsgreinafélags á Austurlandi segja ljóst að enginn leyfi né samningar séu til staðar fyrir fjóra Litháa sem starfað hafa hjá fyrirtækinu Járn@járn á Reyðarfirði undanfarið. Lögregla hefur gefið fyrirtækinu frest til morguns til að afla gagna í málinu. 18.10.2005 00:01
Fær að leiða fram vitni Hæstiréttur hefur samþykkt kröfu Lúðvíks Gisurarsonar um að fá að leiða fram vitni sem varpað gætu ljósi á meint ástarsamband móður hans og Hermanns Jónassonar, fyrrverandi forsætisráðherra og lögreglustjóra í Reykjavík. Lúðvík heldur því fram að Hermann hafi verið faðir hans og eru vitnaleiðslurnar liður í viðleitni hans til að fá lífsýni úr Hermanni heitnum. 18.10.2005 00:01
Sýknuð af kókaínsmygli Sautján ára stúlka sem ákærð var fyrir smygl á kókaíni í Bretlandi var nú fyrir stundu sýknuð. Stúlkan kom fyrir dómara í Inner London Crown Court. Hún hélt því fram fyrir dómi að hún hefði verið burðardýr og haldið að hún væri að flytja peninga. Stúlkan grét við dómsuppkvaðningu þegar henni var ljóst að hún yrði látin laus. 18.10.2005 00:01
Veggur mældur á 27 kílómetra hraða Það er ekki alltaf að marka hraðamælingar lögreglunnar. Það sannreyndu blaðamenn breska dagblaðsins Daily Mail þegar þeir prófuðu radarmæla lögreglunnar. Veggur, sem eðli málsins samkvæmt var kyrrstæður, mældist á tuttugu og sjö kílómetra hraða og kyrrstæður bíll á bílastæði mældist á fjórtán kílómetra hraða. 18.10.2005 00:01
Kastaði köku í nýja ráðherrann Kristin Halvorsen fékk óblíðar móttökur þegar hún mætti í fjármálaráðuneytið í fyrsta skipti eftir að hafa tekið við embætti fjármálaráðherra í norsku ríkisstjórninni, að því er vefútgáfa Verdens Gang greinir frá. 18.10.2005 00:01
Skoða reglur einkavæðingarnefndar Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til að skoða verklagsreglur einkavæðingarnefndar og athuga hvort ástæða sé til að breyta þeim. Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis. 18.10.2005 00:01
Stöðvar ekki fyrr en í Rússlandi Skipstjóri rússneska togarans sem er á flótta undan norskum varðskipum með tvo norska strandgæslumenn innanborðs segist ekki ætla að nema staðar fyrr en hann er kominn í rússneska landhelgi. 18.10.2005 00:01
Bankar í höndum vinstrimanna Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, skammaði marga helstu bankastjóra landsins í dag fyrir að taka þátt í prófkjörum vinstriflokka á Ítalíu um síðustu helgi. Stjórnendur fjögurra af helstu bönkum landsins greiddu atkvæði í prófkjöri þar sem Romano Prodi, fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bar sigur úr býtum. 18.10.2005 00:01
Vilma orðin að fellibyl Hitabeltisstormurinn Vilma er nú formlega orðin að fellibyl. Vindkviðurnar ná allt að eitthundrað sjötíu og sjö kílómetra hraða á klukkustund en þegar vindhraðinn er kominn í eitthundrað og nítján kílómetra á klukkustund eru óveður skilgreind sem fellibylir. 18.10.2005 00:01
Gruna tengdabróður Assad um morð Tengdabróðir Bashar al-Assad Sýrlandsforseta er meðal þeirra sem liggja undir grun um morðið á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta kemur fram í skýrslu þeirra sem hafa rannsakað morðið fyrir Sameinuðu þjóðirnar að sögn þýska blaðsins Stern. 18.10.2005 00:01
Kenneth Clarke kosinn út Kenneth Clarke, fyrrum fjármálaráðherra Bretlands, varð fyrsti frambjóðandinn til leiðtogaembættis breska Íhaldsflokksins til að falla úr leik. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði um frambjóðendurna fjóra rétt í þessu og fékk Clarke fæst atkvæði. David Davis fékk flest atkvæði, en 62 af 198 þingmönnum greiddu honum atkvæði sitt. 18.10.2005 00:01
Leyfir ekki innflutning erfðaefnis Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir ekki koma til greina að leyfa innflutning erfðaefna til að blanda við íslenska kúastofninn. Hann furðar sig á ályktun borgfirskra bænda um að undirbúningur að slíkum innflutningi skuli hafinn. 18.10.2005 00:01
Fagnar fyrirhugðum aðgerðum Borgarstjóri fagnar fyrirhuguðum aðgerðum á kvennafrídaginn og beinir því til stjórnenda á vinnustöðum að bregðast jákvætt við óskum kvenna um að leggja niður vinnu. 18.10.2005 00:01
Unnu samkeppni um Háskólatorg Íslenskir aðalverktakar ásamt arkitektunum Ögmundi Skarphéðinssyni og Ingimundi Sveinssyni og samstarfsfólki á Arkitektastofu Ingimundar Sveinssonar urðu hlutskarpastir í samkeppni um tillögu að hönnun og byggingu Háskólatorgs Háskóla Íslands. 18.10.2005 00:01
Sveinum fer fækkandi Þeim sem ljúka sveinsprófi hefur farið fækkandi undanfarin ár. Þessa fækkun má útskýra með ríkjandi þenslu í þjóðfélaginu og yfirborgunum sem henni fylgir. Á skólaárinu 2003-2004 útskrifuðust 508 nemendur með sveinspróf og var það 57 nemendum færra en árið áður. 18.10.2005 00:01
Lélegur frágangur kostar milljónir Lélegur frágangur á farmi vörubíla hefur kostað tryggingarfélögin meira en 110 milljónir króna undanfarin tvö ár. Lögregla hyggst grípa til aðgerða gegn þeim sem ekki ganga almennilega frá farmi á bílum sínum. 18.10.2005 00:01
Spá hækkun fasteignaverðs Fasteignaverð mun hækka um sex prósent hér á landi á næstu tólf mánuðum að mati greiningardeildar KB banka. Helstu ástæðurnar segir Greiningardeildin vera þær að raunvaxtakostnaður hækki ekki mikið og að atvinnuástand verði áfram gott. 18.10.2005 00:01
Saddam sóttur til saka Réttarhöld yfir Saddam Hussein hefjast í Bagdad í dag en hann er ákærður fyrir að hafa fyrirskipað fjöldamorð á 143 sjíum árið 1982. Mannréttindasamtök bera brigður á sanngirni réttarhaldanna og segja þau stjórnast af hefnigirni. 18.10.2005 00:01
Litli prinsinn farinn heim María krónprinsessa Dana og Friðrik ríkisarfi fóru heim af sjúkrahúsinu í dag með son sinn sem fæddist á laugardaginn. Fjölmiðlum var um leið gefið tækifæri til að sjá nýfædda prinsinn, sem svaf sallarólegur á sínu græna eyra meðan myndavélarnar suðuðu og smelltu í gríð og erg. Móður og syni heilsast vel og sögðust foreldrarnir vera að springa úr stolti yfir frumburðinum. 18.10.2005 00:01
Síðbúinn sauðburður Við feðgarnir sáum bara allt í einu nýborið lamb stíga sín fyrstu skref við vegkantinn," segir Sigurður M. Þorvaldsson en hann varð vitni af nokkuð síðbúnum sauðburði í fyrrakvöld. </font /></b /> 18.10.2005 00:01
Gegnsæi í skattheimtu Lagt var fram í borgarstjórn í gær að uppsetningu launaseðla Reykjavíkurborgar verði breytt þannig að fram komi hvernig skattur skiptist á milli ríkis og sveitarfélags. 18.10.2005 00:01
Borgarstjóri fagnar kvennafrídegi Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, fagnar aðgerðum sem fyrirhugaðar eru til að minnast 30 ára afmælis kvennafrídagsins 24. október. Hún segir í yfirlýsingu að allt of hægt gangi að jafna launamun kynjanna og aðstöðumun til að afla tekna. 18.10.2005 00:01
Sýknuð af smygli í London Sautján ára íslensk stúlka sem ákærð var fyrir smygl á kókaíni í Bretlandi var sýknuð í dag . Hún hélt því fram fyrir dómi að hún hefði verið burðardýr án sinnar vitundar en hún var aðeins sextán ára þegar hún var handtekin. 18.10.2005 00:01
Eftirlaun ráðherra til skoðunar Misræmi á kostnaði vegna eftirlaunafrumvarpsins kemur forsætisráðherra á óvart. Hann segir stjórnvöld hafa rætt um að endurskoða lögin, en það verði ekki gert nema með samkomulagi allra stjórnmálaflokka. Alþingi samþykkti breytt lög um eftirlaun æðstu embættismanna og þingmanna rétt fyrir árslok 2003, og þiggja níu fyrrverandi ráðherrar nú eftirlaun, þótt þeir séu í öðrum störfum hjá ríkinu. 18.10.2005 00:01
Norskum strandgæslumönnum rænt Tveir eftirlitsmenn frá norsku strandgæslunni sem rússneskur togari rændi á sunnudagskvöld, eru enn um borð í togaranum. Rússnesk stjórnvöld hafa sent herskip á móti honum og er því ætlað að ná í Norðmennina. Rússarnir halda því fram að skotið hafi verið að þeim, en því neita norsk stjórnvöld. 18.10.2005 00:01
Tilbúinn að endurskoða kvótakerfið Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að ekki komi til greina að flytja inn fósturvísa til þess að blanda við íslenska kúakynið. Hann vill hins vegar skoða hvort lyfta eigi þaki af mjólkurkvótanum til þess að mæta auknum þörfum markaðarins. 18.10.2005 00:01
Evrópa ekki nógu vel undirbúin Evrópa er ekki nógu vel undirbúin fyrir fuglaflensufaraldur, en allt verður gert til að bæta úr því, segir yfirmaður heilbrigðismála hjá Evrópusambandinu. Stöðugt fjölgar þeim Evrópulöndum þar sem grunur leikur á að flensan hafi stungið sér niður. 18.10.2005 00:01
Margar misnota veikindarétt Formaður Læknafélags Íslands segir margar verðandi mæður misnota veikindarétt og fæðingarorlof og fái til þess vottorð frá lækni. Tryggingayfirlæknir telur almennt að vottorð séu misnotuð og að taka verði á því. 18.10.2005 00:01
ASÍ vill svör frá ríkisstjórninni Forseti Alþýðusambands Íslands segir að stjórnvöld verði að brúa bilið milli gerðra kjarasamninga og verðbólgunnar sem nú blasir við, eigi friður að haldast á almennum vinnumarkaði. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin vilji ræða málið þar sem skynsamlegt sé fyrir alla að kjarasamningar haldi. 18.10.2005 00:01
Hjálparstarf gengur enn erfiðlega Fimmtíu og fjögur þúsund manns eru nú talin hafa farist í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmírhérað fyrir tíu dögum. Neyðaraðstoð hefur enn ekki borist til hálfrar milljónar manna. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir hjálparstarf í Kasmír erfiðara en eftir flóðbylgjuna miklu í Indlandshafi í fyrra, og telur ekki nógu mörg vetrartjöld til í heiminum til að veita öllum þeim sem eru heimilislausir eftir skjálftann, tímabundið húsaskjól í vetur. 18.10.2005 00:01
Kyrkislanga í klósettinu Þriggja metra löng kyrkislanga, sem Manchesterbúar gáfu nafnið Keith, er nú loks hætt að skríða milli klósetta í íbúðarblokk í borginni, en það hafði hún gert í þrjá mánuði, íbúunum til mikillar hrellingar. 18.10.2005 00:01