Innlent

Spá hækkun fasteignaverðs

Fasteignaverð mun hækka um sex prósent hér á landi á næstu tólf mánuðum að mati greiningardeildar KB banka. Helstu ástæðurnar segir Greiningardeildin vera þær að raunvaxtakostnaður hækki ekki mikið og að atvinnuástand verði áfram gott. Greiningardeildin spáir því hins vegar að verð fasteigna muni lækka töluvert í næstu niðursveiflu, eins og ávallt hafi verið raunin. Hve mikil lækkunin verði velti á framboði husnæðis, þróun langtímavaxta á húsnæðislánum og almennri launaþróun í landinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×