Innlent

Síðbúinn sauðburður

Við feðgarnir sáum bara allt í einu nýborið lamb stíga sín fyrstu skref við vegkantinn," segir Sigurður M. Þorvaldsson en hann varð vitni af nokkuð síðbúnum sauðburði í fyrrakvöld. Gibba af bænum Hrófá í Steingrímsfirði bar þá lamb við vegarkantinn og kom hjúunum á bænum, þeim Sigurði Sveinssyni og Ragnheiði Ingimundardóttur, í opna skjöldu. „Hjúin á Hrófá héldu að ég væri að gera að gamni mínu þegar ég hringdi í þau og sagði að gibban þeirra hefði borið," segir Sigurður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×