Innlent

Gegnsæi í skattheimtu

Lagt var fram í borgarstjórn í gær að uppsetningu launaseðla Reykjavíkurborgar verði breytt þannig að fram komi hvernig skattur skiptist á milli ríkis og sveitarfélags. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sem bar tillöguna fram, sagði markmið hennar vera að auka gegnsæi í opinberri stjórnsýslu og stuðla að því að launafólk átti sig betur á uppbyggingu skattkerfisins.  Steinunn Valdís Óskarsdóttir mælti með að vísa tillögunni til borgarráðs sem var samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum. Hún sagði þó nokkur tæknileg vandkvæði á tillögunni. Til dæmis væru ekki allir starfsmenn Reykjavíkurborgar búsettir í sama sveitarfélagi og því væri misjafnt hvað starfsmenn væru að greiða í útsvar. Kjartan sagði að slík tæknileg úrlausnarefni væri hægt að leysa. Það skipti heldur ekki máli hvort upplýsingar á launaseðli væru nákvæmar þar sem þær eru ekki nákvæmar í dag eins og kemur í ljós við endurgreiðslu skatta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×