Innlent

Margar misnota veikindarétt

Formaður Læknafélags Íslands segir margar verðandi mæður misnota veikindarétt og fæðingarorlof og fái til þess vottorð frá lækni. Tryggingayfirlæknir telur almennt að vottorð séu misnotuð og að taka verði á því. Í nýjasta tölublaðið læknablaðsins er grein eftir Sigurbjörn Sveinsson, fomann læknafélagsins um fæðingarorlof og veikindi á meðgöngu. Þar segir Sigurbjörn frá því að ófríks kona hefði beðið hann um vottorð svo hún gæti hætt að vinna nokkrum vikum fyrir fæðingu. Hann neitaði henni um vottorðið þar sem hún væri fullfríks. Þetta undraðist konan og sagði það viðtekna venju í þjóðfélaginu að lengja fæðingarorlof með þessum hætti. Sigurbjörn lét ekki þar við sitja heldur fékk að fara yfir upplýsingar hjá stóru fyrirtæki á ákveðnu tímabili. Þar kom í ljós að 49 af 54 konum sem höfuðu lagt fram læknisvottorð um veikindi fyrir fæðingu. Sigurður telur þörf á umræðu um þessi mál og ekki síst á meðal lækna og á milli heilbrigðisstofnana og tryggingastofnunar. Í Svíþjóð fengu til dæmis tryggingastofnari þar ákveðið fjármagn til að halda námskeið fyrir lækna. Því læknarnir lendi oft í erfiðri aðstæðu þar sem þeir eru talsmenn sjúklingsins og þurfi um leið að veita tryggingastofnun hlutlægar upplýsingar. En hverju gætu læknar breytt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×