Innlent

Átak hjá Selfosslögreglu

Ljósabúnaði var áfátt á fimmtíu og sjö bílum af þeim 290, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær, einkum til að kanna ástand ljósa. Þetta var fyrsti dagur í þriggja daga átaki Selfosslögreglunnar á þessu sviði. Ökumenn fengu áminningu, en nokkrir voru sektaðir vegna annarra atriða, sem voru í ólagi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×