Innlent

Vill takmarka eignarhald fjölmiðla

Geir H. Haarde, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að hann telji að málamiðlum fjölmiðlanefndarinnar svokölluðu, um að eignharhald eins aðila eða aðila honum tengdum megi ekki vera meira en 25%, sé of há. Réttara sé að miða við lægra hlutfall. Geir segist þó ekki vilja nefna neina ákveðna tölu í þessu samhengi enda eigi eftir að vinna málið í samstarfi stjórnarflokkanna. Hann segir ljóst að rík sátt sé í samfélaginu um takmarkanir á eignarhaldi á fjölmiðlum, svo sé líka á Alþingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×